Apar kunna að nota spjót 28. febrúar 2007 00:01 Vísindamenn segja unga apa læra af mæðrum sínum. Karlapar snúi hins vegar baki við nýrri þekkingu og vilja ekkert nýtt læra, að þeirra mati. MYND/AFP
Vísindamenn sem rannsakað hafa simpansa í Afríkuríkinu Senegal segjast hafa séð nokkur dæmi um að aparnir hafi útbúið sér viðarspjót til að veiða önnur dýr með. Vísindamennirnir, sem birtu niðurstöður rannsókna sinna í vísindatímaritinu Current Biology, segja hátterni apanna geta bent til þess að þeir séu enn að þróast og gætu á endanum stigið skref nær því að líkjast manninum að mörgu leyti. Vísindamennirnir telja af rannsóknum sínum að tækniþekking mannsins hafi borist áfram á milli kynslóða með svipuðum hætti og hjá öpunum í Senegal. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem sést hafi til simpansa veiða sér til matar með þessum hætti. Hátterni apanna náðist hins vegar ekki á filmu. Breska ríkisútvarpið hefur eftir vísindamönnunum, sem heita Jill Pruetz og Paco Bertolani, að þeir hafi séð hvorki fleiri né færri en 22 dæmi um að apar hafi ýmist tekið upp greinar af jörðu niðri eða brotið þær af trjám og notað þær sem spjót til að pota ofan í hol tré og veiða þar smærri dýr sér til matar. Í einhverjum tilfellum munu aparnir hafa notað ýmist tennur eða önnur verkfæri til að tálga odd á greinar og gera þær oddhvassari til að eiga meiri möguleika á því að veiða dýrin í trjánum. Í meirihluta tilfellanna voru það kvendýr og ungar sem tóku það eftir mæðrum sínum að beita greinum með þessum hætti á meðan karldýrin héldu sér til hlés, að sögn vísindamannanna. Pruetz segir þetta dæmigerða þróun þegar komi að innleiðingu og miðlun tækniþekkingar. Dýr af yngstu kynslóðinni séu fljótari að læra en eldri dýr. Þau læri iðulega af mæðrum sínum sem þau eyði mestum tíma með. En af eldri dýrum séu karlarnir þeir síðustu til að taka upp nýja hætti. Og stundum hunsa þeir hana algjörlega, að hennar sögn. Vísindamennirnir víkka þetta atriði enn frekar út í grein sinni í Current Biology og draga þá ályktun að vel megi vera að svipuð þróun hafi átt sér stað hjá mannfólkinu.
Héðan og þaðan Mest lesið „Allir alltaf að segja að hann sé svo mjúkur“ Atvinnulíf Auglýsingastofurnar finna fyrir samdrætti Viðskipti innlent Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ Atvinnulíf Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Viðskipti erlent Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Viðskipti innlent Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Viðskipti innlent „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Sjá meira