14 ára siglir einn yfir Atlantshafið 29. desember 2006 23:11 Myndin er úr myndasafni. MYND/AP
14 ára breskur strákur, Michael Perham, freistar þess nú að verða yngsti maðurinn í sögunni til þess að sigla einn og óstuddur yfir Atlantshafið. Hann hóf ferðina þann 18. nóvember síðastliðinn og býst við því að klára ferðina þann 2. janúar. Faðir hans siglir þó 2 sjómílum á eftir honum til vonar og vara. Lagði hann upp frá Bretlandi og áætlar að enda í Antigua í Karibíahafinu. Michael datt fyrst í hug að gera þetta þegar hann var 11 ára en hann hefur æft siglingar síðan hann var sjö ára. Faðir hans er reyndur siglingakappi og hefur því ekki miklar áhyggjur af syni sínum sem hann segist hafa kennt vel. Annað gildir þó um móður hans sem bíður heima eftir því að sonur hennar komist til Antigua heill á húfi. Michael siglir á 28 feta seglbát og fer á meðalhraða yfir 6 hnútum á klukkustund. Skólastjóri Michaels sagði þegar hann bað um frí í þrjár vikur til þess að geta siglt að það væri ekkert mál því að hann myndi læra miklu meira á því en að vera í skólanum í 3 vikur í viðbót. Michael er líka að safna áheitum á ferðina og ætlar sér að styrkja börn í neyð í bretlandi. Hann hefur þegar safnað um 250.000 krónum.Fréttavefur Daily Mail segir frá.
Erlent Fréttir Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Fleiri fréttir Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Sjá meira