Eggert kominnn á Upton Park 21. nóvember 2006 10:08 Eggert Magnússon, tilvonandi stjórnarformaður West Ham United, og Björgólfur Guðmundsson sem er aðalmaðurinn á bak við kaup íslenskra fjárfesta á West Ham. MYND/Ómar V.
Eggert Magnússon kom nú fyrir stundu á Upton Park, heimavöll West Ham United, og skoðaði hann ásamt Alan Pardew, knattspyrnustjóra félagins. Þeir gengu svo út á grasið og fengu báðir trefla með merki og nafni liðsins og leyfðu ljósmyndurum að taka myndir af tímamótunum. Eftir þetta gekk Eggert svo á fund með stjórnarmönnum í West Ham en boðað hefur verið til blaðamannafundar kl. 11 að íslenskum tíma þar sem kaup íslensku fjárfestanna á félaginu verða kynnt. Í yfirlýsingu á heimasíðu West Ham segir Eggert að Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbankans, leggi til mest af fénu til kaupanna á félaginu, og að hann sýni Eggert fullan stuðning í því að styrkja félagið. Þeir hafi þekkst í gegnum fótboltann í mörg ár og deili ástríðu fyrir íþróttinni, sérstaklega á Englandi. „Það er mikil spenna innan félagsins varðandi það hvaða árangri við getum náð saman og ég vona að áhangendur liðsins séu sama sinnis. Félagið getur verið stolt yfir svo mörgum hlutum og ég vona að allir þeir sem dá og styðja félagið leggi stolt sitt og ástríðu í að byggja upp West Ham United til framtíðar," segir í tilkynningu Eggerts.
Erlent Fréttir Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira