Innlent

Björgvin G. Sigurðsson leiðir eftir fyrstu tölur

MYND/Vísir

Fyrstu tölur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi voru birtar klukkan 18:20. Björgvin G. Sigurðsson er nú í 1. sæti með 503 atkvæði. Ragnheiður Hergeirsdóttir er í 2. sæti með 427 atkvæði í 1.-2. sætið. Lúðvík Bergvinsson er í 3 sæti með 524 atkvæði í 1.-3. sætið. Róbert Marshall í 4. sæti með 705 atkvæði í 1.-4. sætið og Jón Gunnarsson í 5. sæti með 606 atkvæði í 1-.5. sætið.

Búið er að telja 1. 500 atkvæði af rúmlega 5.000.

Samfylkingin fékk fjóra þingmenn kjörna í Suðurkjördæmi í síðustu Alþingiskosningum.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×