Hagnaður Landsafls rúm 241 milljón 1. september 2006 14:26
Landsafl hf., fasteignafélag í eigu Landsbankans og Straums-Burðaráss Fjárfestingarbanka, skilaði 241,4 milljóna króna hagnaði á fyrri helmingi ársins samanborið við tæplega 1,4 milljarða króna hagnaðs á sama tímabili í fyrra. Afkoman er viðunandi, að mati stjórnenda félagsins. Í tilkynningu frá Landsafli til Kauphallar Íslands kemur fram að hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) hafi numið 403 milljónum króna á tímabilinu samanborið við 326 milljónir króna árið á undan. Þá námu rekstrartekjur félagsins 529 milljónum króna samanborið við rúmlega 448 milljónir króna í fyrra. Samkvæmt efnahagsreikningi í lok júní námu heildareignir félagsins rúmum 16,8 milljörðum króna og bókfært eigið fé nam rétt rúmum 5 milljörðum króna. Í uppgjörinu kemur fram að horfur í rekstri félagsins séu góðar á komandi misserum en að endanleg niðurstaða muni þó meðal annars ráðast af skilyrðum á fjármagnsmörkuðum og gengisskráningu íslensku krónunnar. Landsafl hefur yfir að ráða um 125.000 fermetrum af skrifstofu- og verslunar- og iðnaðarhúsnæði, vörugeymslum og fleiru og eru viðskiptavinir þess fjölmargir, meðal annars ríki og sveitarfélög, félög skráð í Kauphöll Íslands sem og ýmis önnur stór og smá fyrirtæki, að því er segir í tilkynningunni.
Fréttir Innlent Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira