Tap á rekstri Leifsstöðvar 1. september 2006 10:31 Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Mynd/Teitur
Rétt rúmlega eins milljarðs krónu tap varð á rekstri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar (FLE) á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma fyrir ári skilaði rekstur flugstöðvarinnar 380 milljóna króna hagnaði. Hluti tapsins er kominn vegna gengistaps en stór hluti skulda FLE er í erlendri mynt. Í tilkynningu frá FLE segir að heildartekjur félagsins hafi numið rúmum 3 milljörðum króna á tímabilinu og er það 12 prósenta aukning á milli ára. Fjölgun farþega sem fara um flugstöðina vegur þyngst í aukningu tekna, en þeim hefur fjölgað um rúm 11 prósent fyrstu sex mánuði ársins miðað við síðasta ár. Farþegum til og frá landinu hefur fjölgað um rúmlega 16 prósent, en þeir eru helstu viðskiptavinir flugstöðvarinnar, að því er segir í tilkynningunni. Þá segir að hluti af tapi FLE sé komið til baka við lok tímabilsins. Rekstrargjöld FLE hækkuðu um 9 prósent á milli ára en hlutfall hagnaðar fyrir afskriftir af rekstrartekjum er nú 32,4 prósent samanborið við 31 prósent fyrir sama tímabil í fyrra. Hagnaður FLE fyrir afskriftir og fjármagnsliði námu 986 milljónum króna samanborið við 840 milljónir króna fyrstu sex mánuði ársins 2005. Í tilkynningunni kemur fram að rekstur FLE hafi verið umfram áætlanir það sem af er þessu ári þrátt fyrir miklar framkvæmdir sem nú standa yfir í flugstöðinni. Fjárfestingar félagsins á tímabilinu eru rúmlega 2,2 milljarðar. Eignir FLE námu rúmum 16 milljörðum króna í lok júní og höfðu aukist um 16 prósent frá áramótum. Vegna framkvæmda og óhagstæðrar gengisþróunar hafa langtímaskuldir félagsins vaxið úr 6,5 milljörðum um síðustu áramót í 9,6 milljarða í lok júní. Eigið fé nam 4,6 milljörðum króna og eiginfjárhlutfall var 28 prósent.
Fréttir Innlent Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira