Olía hækkar í verði 31. ágúst 2006 10:33 Olíuborpallur. Mynd/AFP
Hráolíuverð hækkaði lítillega á helstu mörkuðum vegna ótta við hugsanlegan samdrátt í olíuframleiðslu Írana. Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) gáfu Írönum frest fram til dagsins í dag til að hætta auðgun úrans og er að margra mati útlit fyrir að SÞ grípi til refsiaðgerða gegn Írönum. Verð á hráolíu, sem afhent verður í október, hækkaði um 37 sent í rafrænum viðskiptum í kauphöllinni í New York í Bandaríkjunum og fór í 70,40 dali á tunnu en verð á Norðursjávarolíu, sem afhent verður á sama tíma, hækkaði um 42 sent á markaði í Bretlandi og fór í 70,60 á tunnu. Þá hafa árásir skæruliða á olíuvinnslustöðvar í Nígeríu einnig áhrif á olíuverðið en olíuframleiðsla í Nígeríu hefur dregist saman um fjórðung það sem af er árs af þessum sökum. Óttast er að yfirvofandi verkfall tveggja stærstu verkalýðsfélaga í Nígeríu muni hafa enn frekari áhrif á olíuframleiðslu í landinu.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira