Lífið

Fyrsta plata Snorra væntanleg í verslanir í byrjun júlí

Snorri Snorrason sem kom sá og sigraði Idol stjörnuleit Stöðvar 2 í vetur er nú í þann mund að ljúka upptökum á sinni fyrstu breiðskífu. Platan er væntanleg í verslanir í byrjun júlí og hefur hún hlotið nafnið "Allt sem ég á". Það er Snorri sjálfur sem hefur stýrt upptökunum ásamt Vigni Snæ Vigfússyni gítarleikara og upptökumanni hjá RMP. Platan var í hljóðblöndun og öðrum lokafrágangi um helgina og í dag mánudag var hún send erlendis í framleiðslu.

Efnistök plötunnar eru úr ýmsum áttum en þess má geta að Snorri semur stóran hluta laganna sjálfur. Á plötunni eru einnig nýjar útgáfur erlendra laga með íslenskum textum m.a. eftir Snorra, Stefán Hilmarsson og Andreu Gylfadóttur. Á plötunni er einnig að finna eitthvað af lögum sem Snorri tók og gerði eftirminnileg í Idolinu í vetur.

Snorri mun í vikunni senda frá sér nýtt lag af plötunni en bæði lagið og textinn eru samin af honum. Lagið heitir "Farin burt" og verður frumflutt í útvarpi á fimmtudaginn nk. Snorri er síðan að undirbúa útgáfutónleika en hugmyndin er að þeir verði haldnir um miðjan júlí nk.

Snorri söng lagið "Allt sem ég á" í Idol keppninni og náði það toppsætinu á Netlista Tónlist.is. Í kjölfar sigursins hefur Snorri verið einn allra eftirsóttasti söngvari landins. Hann hefur komið fram um allt land og virðist ekkert lát vera á vinsældum hans. Um síðustu helgi kom Snorri til dæmis fram á 9 stöðum á landinu.

Snorri Snorrason er 28 ára Reykvíkingur og var kosinn Idol stjarna Íslands árið 2006 en hann atti kappi við Ínu Valgerði Pétursdóttur, 18 ára Húsvíking og hafði betur. Óhætt er að segja að "Hvíti kóngurinn" eins og hann er kallaður af stuðningsmönnum, hafi farið ótroðnar slóðir, bæði í nálgun við keppnina og lagavalið og vann hann hug og hjörtu Íslendinga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.