Ákærður fyrir morð á ítölskum njósnara 19. júní 2006 23:15 Nicola Calipari. MYND/AP
Ítalskur saksóknari hefur að sögn þarlendra fjölmiðla ákveðið að ákæra bandarískan hermann fyrir morð á ítalska leyniþjónustumanninum Nicola Calipari við varðstöð í Írak í fyrra. Líklegt er að réttað verði í málinu að honum fjarstöddum og hann kærður fyrir morð og tvö morðtilræði. Leyniþjónustumaðurinn, Nicola Calipari, tryggði lausn ítölsku blaðakonunar Giuliönu Sgrena sem hafði verið rænt í Írak. Þau voru á leið í bíl á flugvöllinn í Bagdad þegar skotið var á þau við varðstöðina. Sgrena og ökumaður særðust. Erminio Amelio, saksóknari, hefur ekki staðfest fréttir ítalskra miðla í dag um að hann ætli að kæra hermanninn. Hann sagði þó í síðustu viku að rannsókn væri lokið og eftir væri að ákveða hvort hermaðurinn, Mario Lozano, yrði kærður. Lögfræðingur Lozano, sem yfirvöld í Ítalíu hafa skipað honum, segir líklegt að réttað verði yfir skjólstæðing hans að honum fjarstöddum en hann verði kærður fyrir morð og morðtilræði. Bandarísk og ítölsk yfirvöld hafa sent frá sér tvær, ólíkar skýrslur um málið þar sem ekki tókst samkomulag um atburðalýsingu. Bandarísk yfirvöld segja að bifreiðinni hafi verið ekið hratt að varðstöðinni og hermenn óttast að andspyrnumenn væru þar á ferð. Ítölsk yfirvöld segja að bílnum hafi verið ekið á eðlilegum hraða og hermennirnir hafi ekki látið vita af því að þau nálguðust eftirlitsstöð.
Erlent Fréttir Mest lesið Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Margt bendi til þess að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Alvarlegt bílslys í Öræfum Innlent Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Erlent Grímuskylda á Landspítalanum Innlent Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Innlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Erlent Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Fleiri fréttir Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Sjá meira