Tónlist

Sérþarfir stjarnanna og stíf gæsla

Sissel Kyrkjebo er mjög vinsæl hér á landi og syngur ásamt þeim Ragnhildi Gísladóttur og Eyvör Pálsdóttur.
Sissel Kyrkjebo er mjög vinsæl hér á landi og syngur ásamt þeim Ragnhildi Gísladóttur og Eyvör Pálsdóttur.

„Við verðum með sérþjálfaða öryggisverði sem gæta stjarnanna og kannski ekki hvað síst Stradivarius-fiðlunnar sem Hjörleifur Valsson spilar á enda metin á nokkrar milljónir,“ segir Samúel Kristjánsson hjá Frost.

Fyrirtækið hefur veg og vanda af einhverjum stærstu tónleikum Íslandssögunnar, Frostrósir: Evrópskar Dívur en þeir verða í Laugardalshöllinni laugardaginn 5. desember. Í engu verður sparað þegar þær Petula Clark og Sissel Kyrkjebo stíga á sviðið ásamt fjölda annarra söngkvenna því hátt í fimm hundruð starfsmenn koma að þessum tónleikum á einn eða annan hátt. Samúel hefur verið á fleygiferð að undanförnu enda syngja sumar stjörnurnar ekki í hvaða míkrafóna sem er og þá þarf að útvega. „Gríska söngkonan Eleftheria Arvanitaki hefur kannski gert hvað mestu kröfurnar enda er hún ef til vill langvinsælust af þeim öllum þótt við Íslendingar könnumst ekki mikið við hana,“ segir Samúel.

Kostnaðurinn við tónleikana er gríðarlegur og nemur veltan í kringum verkefnið um hundrað milljónir. „Sviðsetningin ein kostar í kringum þrjátíu milljónir enda verður þetta að standast alþjóðleg gæði hvað umgjörð varðar,“ segir Samúel en dívurnar syngja síðan í sérstakri sjónvarpsútsendingu frá Hallgrímskirkju sem verður sýnd til fjölda Evrópulanda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×