Tónlist

ABBA-safn í Svíþjóð

Safn tileinkað ABBA verður opnað í Stokkhólmi árið 2008.
Safn tileinkað ABBA verður opnað í Stokkhólmi árið 2008.

Safn tileinkað sænsku hljómsveitinni ABBA verður opnað í miðborg Stokkhólms árið 2008. Þar verða til sýnis föt og hljóðfæri sem sveitin notaði á farsælum ferli sínum, auk verðlauna, handskrifaðra laga og texta. Einnig verður þar hljóðver þar sem gestir geta tekið upp sín eigin ABBA-lög.

Aðstandendur safnsins fengu hugmyndina eftir að hafa kynnt sér Bítlasafnið í London. Það tók þá aftur á móti næstum tvö ár að sannfæra fyrrum meðlimi sveitarinnar, þau Benny Anderson, Björn Ulvaeus, Agnetha Faltskog og Anni-Frid Lyngstad, um að safnið væri góð hugmynd. „Það er gaman að einhver vilji notast við tónlistarferil okkar á þennan hátt,“ sagði ABBA í yfirlýsingu sinni. ABBA hefur selt yfir 370 milljónir platna. Jafnframt hafa yfir 27 milljónir séð söngleikinn Mamma Mia! sem þeir Björn og Benny sömdu saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×