Ólafur í góðum félagsskap í New York 29. nóvember 2006 13:00 Sagði við fjölmiðla að litið væri á Ólaf Elíasson sem rokkstjörnu á Íslandi.
Listaverk Ólafs Elíassonar, „Eye see you" og „You see me" voru afhjúpuð í verslun Louis Vuitton í New York fyrir skemmstu. Annað verkanna kemur til með að hanga til frambúðar í versluninni á meðan hitt fær aðeins að hanga yfir hátíðarnar. Margt var um manninn á opnuninni en meðal þeirra sem mættu voru tónlistarmaðurinn Pharrell Williams, fyrirsætan Alek Wek, kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein og ristjóri tímaritsins Vogue, Anna Wintour. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands mætti svo einnig til þess að heiðra listamanninn og sagði við fjölmiðla að litið væri á Ólaf Elíasson sem rokkstörnu á Íslandi. Ólafi Ragnari þótti líka mikið koma til verslunarinnar og lét meðal annars þau orð falla að búðin væri næstum jafn stór og Ísland sjálft. Pharrell Williams er rappari og tónlistarmaður sem hefur farið eins og stormsveipur um Bandaríkin undanfarin ár. Nú er kappinn orðinn mikilsmetinn í tískuheiminum og auðvitað lét hann sig ekki vanta á opnunina Ólafs. Vel fór á með þeim Ólafi eins og sést á meðfylgjandi mynd. Ólafur Elíasson og Pharrell Williams tóku sig vel út saman. ..
Menning Mest lesið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Lífið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Lífið Calvin Harris orðinn faðir Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira