Aðfangadagur tungunnar 15. nóvember 2006 08:30 Steinar Bragi skáld Les á aðfangakvöldi tungunnar á Sólon.
Í kvöld verður upplestrarhátíð Bjarts á Kaffi Sólon í Bankastræti. Þær Bjartsfreyjur segja hátíðina bera upp á aðfangadag íslenskrar tungu, en á morgun verður afmælisdagur Jónasar haldinn hátíðlegur. Hefst hátíðahaldið í kvöld kl. 20.30, stundvíslega. Þar mun Eiríkur Guðmundsson lesa upp úr bókinni Undir himninum, Sigurjón Magnússon upp úr Gaddavír, Steinar Bragi upp úr Hinu stórfenglega leyndarmáli heimsins og sérlegur fulltrúi Jökuls Valssonar, sem er fastur í Svíþjóð, lesa upp úr Skuldadögum. Stjarna Bjartur Records Ltd, Magga Stína, syngur nokkur lög eftir Megas og þýðendur lesa upp úr nýútkomnum erlendum skáldsögum: Árni Óskarsson upp úr Laugardegi eftir Ian McEwan, Jón Karl Helgason upp úr Brestir í Brooklyn eftir Paul Auster og Hermann Stefánsson upp úr Ósýnilegum glæpum eftir Argentínumanninn Guillermo Martínes. Síðast en ekki síst mun Silja Aðalsteinsdóttir lesa upp úr nýrri þýðingu sinni á hinu stórkostlega 160 ára gamla bókmenntaverki Wuthering Heigths eftir Emily Bronte. Bóksalar verða staddir á hátíðinni og bjóða gestum sérstök kjör í tilefni dagsins. Í tilkynningu forlagsins segir: „Er hátíð þessi í senn haldin til þess að fagna glæsilegri útgáfu Bjarts síðustu vikurnar og degi íslenskrar tungu, fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, sem ber upp daginn eftir. Á aðfangadag opnar maður pakkana og er sæll á jólunum."
Menning Mest lesið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Lífið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Lífið Calvin Harris orðinn faðir Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira