Liðsheildin verður sterkari 21. september 2006 07:00
Forysta Nýs afls hefur ákveðið að leggja samtökin niður sem stjórnmálaflokk og hvetja félagsmenn til að ganga í Frjálslynda flokkinn. Jón Magnússon, formaður Nýs afls, segir þessa tilhögun hafa átt sér dálítinn aðdraganda. Formlegar viðræður stóðu ekki lengi en upphaf þeirra var fyrir síðustu kosningar, segir Jón. Frumkvæðið hafi komið frá fólki sem stóð utan flokkanna tveggja. Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segir það gott ef fólk vilji ganga til liðs við flokkinn. Það er mjög gott þegar hópar sem liggja nálægt hvor öðrum í ýmsum málefnum ná saman. Báðir segja þeir einhvern áherslumun að finna á stefnu flokkanna en benda á að stefnuskrár séu til endurskoðunar á flokksþingum og ekki loku fyrir það skotið að stefna Frjálslynda flokksins taki breytingum. Ekkert er ákveðið um framboðsmál Frjálslyndra fyrir þingkosningarnar í vor og lögðu báðir áherslu á að ekki hefðu verið gerðir samningar um að félagar í Nýju afli fengju sérstök sæti á framboðslistum. Rúmlega 400 eru á félagaskrá í Nýju afli. Yfir þúsund eru í Frjálslynda flokknum. Báðir flokkar buðu fram í öllum kjördæmum í síðustu þingkosningunum.
Innlent Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Fleiri fréttir Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Sjá meira