Grunaður um barnamisnotkun 14. ágúst 2006 07:00
Karlmaður á sextugsaldri hefur verið kærður fyrir kynferðisbrot gegn þremur ungum stúlkum á samkomu línudansara í Heimalandi í Rangárþingi um verslunarmannahelgina. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er maðurinn grunaður um að hafa berað kynfæri sín fyrir framan þrjár 8 til 12 ára stúlkur í anddyri húss á meðan aðrir gestir voru staddir í samkomusal hússins. Þá er hann grunaður um að hafa leitað á yngstu stúlkuna og meðal annars þreifað á kynfærum hennar. Maðurinn, sem ku hafa verið ölvaður, stökk síðan á flótta þegar ein stúlknanna hótaði að kalla á föður sinn. Það mun einnig vera í rannsókn hvort maðurinn hafi fyrr um daginn leitað á fjórðu stúlkuna, en sú er fimm ára gömul. Maðurinn var sjálfur gestur á samkomunni og því er vitað hver hann er, þótt enn sé hann ófundinn. Móðir einnar stúlkunnar mun hafa gengið í hús í nágrenni þekktra aðsetra mannsins í höfuðborginni með mynd af honum og varað íbúa við honum. Lögreglan á Hvolsvelli fer með rannsókn málsins en vill ekkert gefa upp um það að svo stöddu.
Innlent Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Sjá meira