Lífið

Páll Óskar og Einar í Idol 3

Páll Óskar verður dómari í Idol.
Páll Óskar verður dómari í Idol.

Breytingar verða á dómnefnd í þriðju þáttaröð Idol - Stjörnuleitar á Stöð 2 sem hefst í lok ágúst. 

Í dómnefnd með Bubba Morthens og Siggu Beinteins bætast nú við Páll Óskar Hjálmtýsson og Einar Bárðarson en Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson gefur hins vegar ekki kost á sér. Í tilkynningu frá Stöð 2 segir að báðir nýju dómnefndarmeðlimirnir, Páll Óskar og Einar Bárðar, séu landsmönnum af góðu kunnir. 

Páll Óskar sem söngvari, útvarpsmaður, skífuþeytir og keppandi fyrir Íslands hönd í Evróvisjón en Einar Bárðason, eigandi Concert, sé þekktur lagahöfundur sem hafi ekki síður getið sér gott orð sem atkvæðamikill umboðsmaður, meðal annars Hildar Völu Idol-stjörnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.