Innlent

Eldur í íbúðarhúsi í Breiðholti

Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út fyrir stundu þegar eldur kom upp í íbúðarhúsi að Rangárseli 20 í Breiðholti. Húsið er tveggja hæða parhús og að sögn vaktstjóra hjá slökkviliðinu logaði mikill eldur út úr húsinu. Einum íbúa hússins tókst að forða sér en að svo stöddu er ekki vitað hvort fleiri hafi verið í húsinu.  



Fleiri fréttir

Sjá meira


×