Þarf að fá ríkisborgararétt 6. febrúar 2005 00:01
Lögfræðingar Bobbys Fischers segja að það sé grundvallaratriði að íslensk stjórnvöld veiti honum íslenskan ríkisborgararétt. Ríkisborgararéttur myndi marka tímamót og koma máli hans loks á hreyfingu. Allsherjarnefnd Alþingis hefur í tvígang frestað því að taka afstöðu til þess hvort veita eigi Fischer ríkisborgararétt á þeim grundvelli að ekkert liggi fyrir í málinu sem renni stoðum undir þá fullyrðingu Fischers í persónulegu bréfi til Alþingis að íslenskur ríkisborgararéttur myndi styrkja stöðu hans gagnvart japönskum stjórnvöldum. Lögfræðingar Fischers hafa nú svarað þessu og sent frá sér lögfræðiálit um málið og mun bréf sama efnis verða sent til Alþingis á næstu dögum. Lögfræðingarnir benda á að í japönskum lögum segir beinlínis „að hverjum þeim sem vísa eigi úr landi skuli þá vísað til þess lands af hvers þjóðerni hann er eða þar sem hann á ríkisborgararétt“. Þeir segja því að það skipti sköpum og muni marka tímamót fái Fischer íslenskan ríkisborgararétt því þá verði Ísland heimaland hans. Japanska dómsmálaráðuneytinu væri þar með hvorki stætt á því að meina honum að yfirgefa Japan né vísa honum til Bandaríkjanna.
Bobby Fischer Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira