Sjítar vilja ekki hefnd 20. desember 2004 00:01
Leiðtogar sjíta í Írak biðja fylgismenn sína um að sýna stillingu og hefna ekki sjálfsmorðsárásanna sem urðu 60 manns að bana í gær. Talið er víst að sprengjunum tveimur, sem sprungu annars vegar í Najaf og hins vegar Karbala í gær, hafi verið komið fyrir af öfgasinnuðum súnní-múslimum. Árásirnar hafi verið til þess ætlaðar að hleypa illu blóði í sjíta-múslima og koma af stað víðtækum átökum nú í aðdraganda forsetakosninganna sem haldnar verða í Írak í lok janúar. Leiðtogar sjíta hafa hins vegar biðlað til landsmanna um að láta þetta ofbeldi ekki á sig fá og láta það ekki verða til þess að koma af stað borgarastyrjöld á milli þessara tveggja stærstu hópa Íraks. Sjítar eru í meirihluta í Írak og telja um 60% þjóðarinnar en súnní-múslimar hafa hins vegar haldið um stjórnartaumana í landinu í áratugi, enda er Saddam Hussein súnní. Saddam sjálfur hefur hvatt landa sína til að hunsa kosningarnar og flestir leiðtogar súnní-múslima eru því fylgjandi að fresta þeim eitthvað, að minnsta kosti þar til hægt verður að ná tökum á uppreisnarástandinu í landinu. Óttast er að sú upplausn sem ríkir verði til þess að fáir treysti sér á kjörstaði til að kjósa.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Sjá meira