Óbreytt staða í kennaradeilunni 26. október 2004 00:01 "
Það gerðist ekkert á fundinum. Staðan er ekki önnur en var kvöldinu áður," sagði Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambands Íslands eftir að fundi þeirra og launanefndar sveitarfélaganna lauk rétt um átta leytið í gærkvöldi. Hvort nú sé tími kominn á miðlunartillögu svaraði Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari að hugsa þurfi málið allt í heild. Hann sé ekki nær svarinu nú en áður. Eiríkur Jónsson segir það í hendi samninganefndarinnar að ákveða hvort verkfalli yrði frestað komi tillaga sáttasemjara fram. Hann geti ekki metið að svo stöddu hvort hún fengist samþykkt. Í óformlegri tillögu ríkissáttasemjara sem lögð var fyrir deilendur á fimmtudag var gert ráð fyrir um 15 til 20 þúsund lægri mánaðarlaunum en kennara vænta. Eiríkur opnar fyrir þann möguleika að kennarar skoði hugsanlega að lækka launakröfuna komi einhvað í staðinn. Tryggingar um verðlagsþróun á samningstímanum hafi til dæmis ekki verið í samningunum. Ýmis atriði hefðu einnig mátt vera á annan veg en Eiríkur hefur áður sagt að strandað hafi á launaliðnum. Ásmundur hefur boðað tvo frá samninganefndunum á sinn fund á fimmtudag
Fréttir Innlent Kennaraverkfall Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna Erlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Fleiri fréttir Leita áfram í fyrramálið Skólaliðum sagt upp hjá borginni Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Sjá meira