Nýtt frumvarp, nýtt ráðuneyti 5. október 2004 00:01
Nýtt fjölmiðlafrumvarp kemur ekki frá forsætisráðuneytinu eins og það síðasta. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra boðaði í stefnuræðu sinni í gær að lagasetning um eignarhald á fjölmiðlum verði á ábyrgð menntamálaráðuneytisins. Það er því ljóst að fjölmiðlafrumvarp verður áfram á verkefnaskrá og ábyrgð Sjálfstæðisflokksins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir einfalda skýringu á þessari tilfærslu. Síðasta frumvarp var svokallaður „bandormur“, það er frumvarp sem náði til bæði menntamálaráðuneytisins og viðskiptaráðuneytisins. Þorgerður Katrín segir að forsætisráðherra flytji yfirleitt slíkt frumvarp en það endaði eins og allir vita. Fjölmiðlaskýrslan var gerð á vegum menntamálaráðuneytsins á sínum tíma og því eðlilegt að það ráðuneyti fari yfir málin núna segir Þorgerður Katrín. Menntamálaráðherra segir of snemmt að segja til um það hvort nýtt frumvarp verði lagt fram í vetur. „Ég held að meginmálið núna sé að vinna að þessu máli í sátt og ég vona að ég geti lagt fram tillögu þess efnis,“ segir ráðherra. Aðspurð hvort það verði í sátt við stjórnarandstöðu, fagaðila og hagsmunasamtök sem koma að fjölmiðlum segist Þorgerður Katrín fyrst ætla að sýna kollegum sínum tillöguna áður en hún fer að tala um hana í fjölmiðlum. AFK.: sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra í samtali við Jóhann Hlíðar Harðarson
Fjölmiðlalög Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Sjá meira