Ashton og Demi ákveða daginn 13. september 2004 00:01
Demi Moore og Ashton Kutcher ætla að ganga í það heilaga í Kabbalah stíl í nóvember. "Þau eru afar hamingjusöm og nú lítur út fyrir að brúðkaup verði haldið í kringum Þakkargjörðarhátíðina." Parið hefur fetað í fótspor Madonnu og Britney Spears og eru virkir félagar í Kabbalah trúarsamtökunum og halda því til Ísrael eftir brúðkaupsferðina til að fá blessun trúarleiðtogans. Demi er 15 árum eldri en Ashton og hefur tvisvar áður verið gift. Þegar hún var 18 ára giftist hún tónlistarmanninum Freddy Moore en leikkonan hefur haldið eftirnafni hans síðan. Hún var gift leikaranum Bruce Willis í mörg ár og á með honum þrjár dætur. Samkvæmt vinum parins ætla þau að halda daginn hátíðlegan á sveitabýli Demi í Idaho. Þau kynntust í partý hjá rapparanum Puff Daddy í New York á síðasta ári og fóru fljótt að vera saman en Ashton fór niður á skeljarnar á Sundance kvikmyndahátíðinni fyrr á þessu ári og gaf henni risa stóran demantshring. Honum kemur vel saman við dætur hennar og fyrrum eiginmanninn líka. Á tíma voru sögur í gangi um að Bruce ætlaði að vera svaramaður. "Þó mér lítist vel á ráðahaginn ætla ég ekki að ganga svo langt og bjóða mig fram sem svaramaður," sagði leikarinn hneykslaður á slúðrinu. Bruce er hins vegar á lausu þessa dagana. Hann hætti nýlega með Baywatch gellunni Brooke Burns og sagði að þau hefðu þroskast í sundur en aldursmunurinn á milli þeirra var enn meiri en hjá Ashton og Demi. Bruce varð fimmtugur á dögunum og áður en hann hætti með Burns fóru þau á djammið saman. Vitni sögðu að hann hefði hagað sér eins og smákrakki og að hún hefði þurft að halda honum uppi. "var alveg á eyrunum og var alltaf að klípa kærustuna í rassinn. Á endanum datt hann bara niður dauður við barinn og greyjið stelpan varð að biðja fólk að hjálpa sér að drösla honum upp á hótelherbergi."
Mest lesið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni Lífið samstarf Fleiri fréttir Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira