Moskan á valdi skæruliðanna 23. ágúst 2004 00:01
Barist er í nánd við Imam Ali moskuna í Najaf í Írak sem er enn á valdi Mehdi-skæruliðasveita Muqtada al-Sadrs. Nokkur óvissa hefur ríkt um hvernig ástandið í Najaf væri í raun og veru og á hvers valdi Imam Ali moskan væri. Nú virðist hins vegar ljóst að Mehdi-sveitir al-Sadrs halda þar ennþá til, þó að óvíst sé hvar al-Sadr er sjálfur niður kominn. Harðir bardagar geisuðu í Najaf í nótt og gerði Bandaríkjaher ítrekaðar loftárásir á svæðið í kringum moskuna. Skriðdrekar eru sagðir í um átta hundruð metra fjarlægð frá henni og hafa fregnir borist af því, að skotið hafi verið á moskuna. Fram til þessa hefur verið lögð áhersla á að valda ekki skemmdum á moskunni af ótta við að það kynni að valda úlfúð meðal sjíta, en moskan er einhver sú helgasta í þeirra sið. Talsmenn al-Sadrs segja helsta trúarleiðtoga sjíta í Írak, al-Sistani, eiga að taka við umsjón moskunnar og tryggja öryggi þeirra sem halda þar til. En það er víðar en í Najaf þar sem barist er. Raunar er barist víðast hvar í landinu og tölur um mannfall undanfarinn sólarhring sýna það glögglega. Í Bagdad féllu ellefu og fimmtíu og átta eru sárir. Í Najaf er í það minnsta einn sagður hafa fallið. Í Hilla féllu tveir og sextán særðust og í Meisan eru sex særðir eftir átök. Á myndinni bera skæruliðar, hliðhollir Muqtada al-Sadr, lík eins félaga síns sem féll í bardögum við Bandaríkjamenn við Imam Ali moskuna í gær.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira