Humar í sérstöku uppáhaldi 12. ágúst 2004 00:01
Elvu Ósk Ólafsdóttur leikkonu, finnst gaman að elda góðan mat og eru sjávarréttir í sérstöku uppáhaldi hjá henni. "Uppáhaldsmaturinn minn er að sjálfsögðu humar. Ég matreiði hann þannig að ég sker hann endilangan, fletti út og set á hann mikið af hvítlauks- og paprikusalti. Síðan snöggsteiki ég hann upp úr smjöri og helli síðan hvítvíni yfir hann og pínu rjóma. Þetta ber ég fram með ristuðu brauði og finnst mér þetta mikið lostæti," segir Elva Ósk. Léttsteiktar nautalundir með sveppum eru einnig í uppáhaldi hjá henni. "Þær matreiði ég á mjög einfaldan máta, bara snöggsteiki á pönnu og ber fram með sveppum og madeirasósu," segir hún. Elva Ósk segist líka vera mjög gamaldags hvað matarsmekk varðar. "Mér finnst þjóðlegur matur eins og svið, slátur og allur innmatur mjög góður matur og er ég alveg sólgin í hann," segir hún. Hún segist ekki vera nógu dugleg að bjóða fólki í mat þó henni finnist það mjög gaman. "Mér þykir ekkert sérstaklega gaman að elda venjulegan heimilismat en finnst mjög gaman að gera veislumat og bjóða þá fólki heim til að borða hann með mér. Ég geri bara alltof lítið af því," segir Elva Ósk.
Matur Mest lesið Walking Dead-leikkona látin Lífið Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Húsgögn úr afgöngum og fiskar í gosbrunninum Lífið Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Lífið Kveður föður sinn með tilvitnun í Hunter S. Thompson Lífið Ástralskur hommasirkus skemmtir börnum og fullorðnum í Tjarnarbíói Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira