Embættismanni rænt í Írak 24. júlí 2004 00:01
Skæruliðar í Írak tóku í dag háttsettan egypskan embættismann í gíslingu. Þetta er í fyrsta skipti sem erlendum embættismanni er rænt í Írak. Egyptanum Momdoh Kotb, sem er einn af aðalerindrekum Egypta í Írak, var í dag rænt fyrir utan Mosku í Bagdad af írökskum skæruliðum. Hann er fyrsti erlendi embættismaðurinn sem rænt er í Írak. Skæruliðarnir segjast hafa rænt honum vegna tilboðs Egypta um að hjálpa til við öryggismál í Írak. Þeir krefjast þess að horfið verði frá þeim áformum; að öðrum kosti verði hann líflátinn. Utanríkisráðherra Egypta, Ahmed Aboul Gheit, hefur lýst því yfir að hvorki hermenn né embættismenn verði sendir til Íraks á meðan Kotb er í haldi mannræningjanna. Ljóst er að aðgerðir skæruliða setja strik í reikninginn fyrir Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks, sem fundaði með forsætisráðherra Egypta á fimmtudag og fór þess á leit við hann að Egyptar tækju þátt í aðgerðum Sameinuðu þjóðanna í Írak. Hann hefur nú kvatt Egypta til að láta ekki undan kröfum skæruliða. Eina leiðin til að fást við þá sé að framfylgja réttlætinu, en ekki láta að kröfum þeirra. Flestir þeirra sem rænt hefur verið undanfarið í Írak hafa starfað sem vörubílstjórar en nú bendir ýmislegt til þess að mannræningjar leiti að áhrifameiri einstaklingum til að taka í gíslingu. Auk ránsins á Kotb var yfirmanni byggingarfyrirtækis í Bagdad rænt í morgun þegar hann var á leið til vinnu. Myndin er af Ahmed Aboul Gheit, utanríkisráðherra Egypta, á blaðamannafundi í dag.
Erlent Fréttir Írak Stj.mál Mest lesið „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira