Feðgar með bíladellu 12. júlí 2004 00:01
Hjá bílaumboðinu B&L er að finna þrjá meðlimi sömu fjölskyldu - alla með rosalega bíladellu. Haukur Sveinsson er 46 ára og synir hans tveir eru Heiðar Hauksson, 24 ára, og Hafþór Hauksson 18. Haukur og Heiðar eru sölumenn notaðra bíla hjá B&L og sitja hlið við hlið en Hafþór vinnur í standsetningunni þar sem bílar eru standsettir fyrir sölu. Pabbinn, Haukur, er búinn að vera í bílum síðan hann man eftir sér og búinn að vinna hjá B&L í samtals 14 ár. Starfsaldur drengjanna er hins vegar ekki svo hár, Heiðar er búinn að vinna hjá B&L í um sjö mánuði og Hafþór í fjóra. "Samstarfið hefur nú sína kosti og galla vissulega. Karlinn er samt hress. Ég sit reyndar við hliðina á honum þannig að ég get ekki skotið hverju sem er á stelpurnar sem koma inn. En þetta eru nú engir alvarlegir örðugleikar og samstarfið gengur annars mjög vel," segir Heiðar en hann er alls ekki nýr í bílabransanum. "Ég hef verið á tveim öðrum bílasölum í Reykjavík og átti síðan bónstöð sem var með samning við B&L. Þegar ég seldi bónstöðina þá var mér boðin vinna hjá B&L þannig að ég tók hana. Ég býst við að vinna hér á bílasölunni eitthvað áfram og síðan er framhaldið óákveðið. Ætli ég reyni ekki að drífa mig í skóla." "Við erum frá Akureyri og ég var lengi með B&L umboðið þar og rak bílasölu. Síðan fluttum við til Reykjavíkur og þá hóf ég störf hér hjá B&L í Reykjavík. Bíladellan er í blóðinu í þessari fjölskyldu og áhuginn alveg út í gegn," segir Haukur en segist þó ekkert ráðskast með synina. "Hafþór er náttúrulega í öðru húsi í standsetningunni þannig að ég fylgist ekki eins vel með honum. Síðan segi ég Heiðari til þar sem ég er búinn að vera í þessum bransa ansi lengi og veit talsvert. En ég segi honum samt ekkert meira til en einhverjum öðrum sem byrjar nýr." Bæði pabbinn og strákarnir eru búnir að prófa ansi mikið sem tengist bílum og vélum. "Pabbi er búinn að vera í öllu eins og sandspyrnu, snjósleðum og kvartmílu og ég og Heiðar erum báðir í götuspyrnu og kvartmílu. Við viljum prófa allt sem til er, allavega allt sem er með vél. Pabbi er í stjórn kvartmíluklúbbsins og á föstudögum eru kvartmíluæfingar og á laugardögum eru keppnir," segir Hafþór sem hefur ekki minni áhuga á hvers konar vélum og bílum en hinir. "Pabbi kann allt og þegar við kaupum okkur bíl þá tökum við allt í honum frá A til Ö alveg sjálfir. Það er sko allt græjað og við töpum ekkert á því þegar við seljum bílinn aftur, frekar græðum," segir Heiðar. "Við eigum allir sportbíla. Hafþór á fjarstýrðan bensínbíl og Heiðar var að flytja inn Mustang 2000 árgerð sem er ægilegur kaggi. Þetta er bara eins og hvert annað sport, t.d. laxveiði eða golf. Golfarinn vill alltaf nýjasta golfsettið og veiðimaðurinn nýjustu veiðistöngina. Við viljum alltaf flottustu bílana. Allt kostar þetta peninga en það er aukaatriði," segir Haukur að lokum.
Bílar Mest lesið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Menning Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Lífið Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Lífið Fólk eigi ekki að vera hrætt við að skilja ekki Menning Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Lífið Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar Lífið Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Lífið Fleiri fréttir Fólk eigi ekki að vera hrætt við að skilja ekki „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Auður segir skilið við Gímaldið Ráðherra tekur sjálfur viðtöl Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið „Versta hljómsveit Íslandssögunnar“ segir rappara vera með sig á heilanum Kanónur í jólakósí „Djúp menning sem hefur átt sér stað og enginn telur sig ábyrgan“ Brjálað að gera á „Brjálað að gera“ Vilja minnka allt þetta neikvæða suð Munur er á manviti og mannviti Vatn og brauð íslenskra fanga: Hvað elda menn í íslenskum fangelsum? Gefur út bók um reynsluna af því að vera útilokuð Einn heitasti listamaður landsins heldur þræði Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Þetta er fólkið sem fær listamannalaun 2026 Björk og James Merry opna sýningar á Listahátíð í Reykjavík Bjó hjá Trumpara í búddistabæ í Kaliforníu Lyktarlítill dans, Lux og „metnaðarlaus stefna í íslensku“ Skilaði Kommúnistaávarpinu hálfri öld of seint en sleppur við sekt „Mér líður eins og plottið í bókinni sé að raungerast“ Helgi snýr heim: „Laus við leiðindin sem bjuggu þetta til“ Jón Ásgeirsson tónskáld er látinn Fimm fáránlegar biðraðir Íslendinga Þrír metnir hæfir til að stýra Óperunni Sjá meira