Viðskipti innlent
187 188 189 190 191 192 193 194 195 … 334 ›
Tesla Model 3 mest seldi bílinn á Íslandi Tesla Model 3 var mest seldi bíllinn á Íslandi á síðasta ári en 858 slíkir rafbílar voru nýskráðir árið 2020. Næst á eftir kom tengiltvinnbíllinn Mitsubishi Outlander en 773 slík eintök voru nýskráð hér á landi, samkvæmt tölum frá Samgöngustofu. Viðskipti innlent 8.1.2021 13:36
Strengur orðinn meirihlutaeigandi í Skeljungi Fjárfestingafélagið Strengur á nú 50,06% hlut í Skeljungi að teknu tilliti til eigin bréfa Skeljungs. Er Strengur nú orðið meirihlutaeigandi eftir kaup á bréfum í alls 16 viðskiptum í gær samkvæmt tilkynningum til Kauphallar Íslands. Viðskipti innlent 8.1.2021 11:20
400 milljóna sekt vegna brota Byko Norvik, móðurfélag Byko, var í dag dæmt til þess að greiða 400 milljón króna stjórnvaldssekt vegna brota á samkeppnislögum. Málið má rekja aftur til ársins 2010 þegar fyrirsvarsmenn Múrbúðarinnar sneru sér að Samkeppniseftirlitinu og tilkynntu því að Byko og Húsasmiðjan höfðu reynt að fá fyrirtækið til þess að taka þátt í ólögmætu samráði. Viðskipti innlent 7.1.2021 20:30
Vongóður að líkamsræktarstöðvar fái bráðlega að opna: „Þetta er bara tóm helvítis þvæla“ „Við erum að heyra nákvæmlega sama ruglið, aftur og aftur. Það eigi að fara varlega í tilslakanir og annað slíkt. Það er eins og stjórnvöld og sóttvarnayfirvöld beri enga virðingu fyrir fyrirtækjum eða fólkinu í landinu. Við erum algjörlega í þoku með það hvort við megum starfa eða ekki,“ segir Björn Leifsson, eigandi World Class. Viðskipti innlent 7.1.2021 18:01
Niðurstaðan styðji þá ályktun að lán með breytilegum vöxtum geti talist ólögleg Arion banki braut gegn lögum árið 2015 þegar hann hækkaði vexti á verðtryggðu fasteignaláni, að sögn Neytendastofu. Neytendasamtökin segja að um sé að ræða mikilvæga niðurstöðu sem hafi mikla þýðingu í málarekstri samtakanna gegn bönkunum. Viðskipti innlent 7.1.2021 17:01
Brottrekstur Lárusar úrskurðaður ólögmætur Landsréttur sneri í dag við úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um að víkja Lárusi Sigurði Lárussyni lögmanni úr starfi skiptastjóra þrotabús fasteignafélagsins Þórodds ehf. Viðskipti innlent 7.1.2021 16:01
Aldís ráðin verkefnastjóri sýninga Aldís Snorradóttir hefur verið ráðin í stöðu verkefnastjóra sýninga í deild sýninga og miðlunar í Listasafni Reykjavíkur. Viðskipti innlent 7.1.2021 14:32
Fjögur ráðin á skrifstofu skóla-, íþrótta- og æskulýðsmála Donata H. Bukowska, Ingvi Hrannar Ómarsson, Óskar H. Níelsson og Örvar Ólafsson hafa verið ráðin til starfa hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti á skrifstofu skóla-, íþrótta- og æskulýðsmála. Viðskipti innlent 7.1.2021 11:24
Ólafur tekur við af Sigurbirni Ólafur Samúelsson öldrunarlæknir hefur tekið við starfi framkvæmdarstjóra lækningasviðs á Eir, Skjóli og Hömrum. Viðskipti innlent 7.1.2021 11:18
Kaupfélag selur líftæknifyrirtæki til kakósúpufabrikku Matvælafyrirtækið Vilko og bætiefnaframleiðandinn Náttúrusmiðjan hafa keypt allt hlutafé í íslenska líftæknifyrirtækinu Protis sem hefur verið í eigu Kaupfélags Skagfirðinga frá upphafi. Viðskipti innlent 7.1.2021 10:51
Sá ekki til sólar í fjármálum en stefnir nú á skuldleysi fyrir fimmtugt Kolbeinn Marteinsson, framkvæmdastjóri og einn eigenda samskipta- og almannatengslafyrirtækisins Athygli, segist hafa tekið fjármálin í gegn eftir að hafa komist í hann krappan eftir bankahrunið árið 2008 en þá féllu á hann ábyrgðir vegna fyrirtækjareksturs og skulda sem margfölduðust vegna verðbólgu á eftirhrunsárunum. Viðskipti innlent 7.1.2021 08:00
Fríverslunarsamningar Íslands ná til 74 ríkja Núgildandi fríverslunarsamningar Íslands ná til 74 ríkja og landsvæða og um 3,2 milljarða manna. Þá bíða þrír samningar EFTA gildistöku, einn bíður undirritunar og þá á EFTA í viðræðum við fleiri ríki um viðskiptasamninga. Ef yfirstandandi samningaviðræður skila árangri mun Ísland eiga í fríverslunarsambandi við ríki þar sem í búa um tveir þriðju hlutar mannkyns. Viðskipti innlent 6.1.2021 18:47
Farþegafjöldi tvöfaldaðist milli mánaða en 95 prósent samdráttur milli ára Fjöldi farþega sem ferðuðust með Icelandair tvöfaldaðist milli mánaða í desember. Fjölgunin endurspeglast í flutningatölum Icelandair Group fyrir desembermánuð sem birtar voru í Kauphöll í dag að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Þrátt fyrir þetta nam heildarfjöldi farþega í millilandaflugi um 14.500 í desember sem jafngildir 95 prósenta samdrætti milli ára. Viðskipti innlent 6.1.2021 17:54
Sprenging átt sér stað í innlendri netverslun Í nóvember jókst innlend netverslun um 353% milli ára og nam alls 7,6 milljörðum króna. Hlutfallslega var netverslun mest í raf- og heimilistækjaverslunum þar sem 41% af kaupum fóru fram í gegnum netið. Viðskipti innlent 6.1.2021 17:01
Málverkið af loðnuleitinni teiknast upp á Íslandsmið Skipaflotinn sem hóf loðnuleitina á mánudag er kominn vel áleiðis með að skanna miðin undan Vestfjörðum og norðurströnd landsins. „Skipin eru öll búin að sjá eitthvað af loðnu. En það er svo sem lítið meira um það að segja,“ segir leiðangursstjórinn Birkir Bárðarson. Viðskipti innlent 6.1.2021 15:28
Twitter kaupir íslenskt fyrirtæki Bandaríski samfélagsmiðillinn Twitter hefur keypt íslenska tækni- og hönnunarfyrirtækið Ueno sem stofnað var árið 2014 og hefur vaxið hratt undanfarin ár. Viðskipti innlent 6.1.2021 15:20
Ekki útlit fyrir takmarkanir á raforkuafhendingu Þrátt fyrir litla úrkomu og kuldatíð á hálendinu stendur orkukerfi Landsvirkjunar vel. Ekki er útlit fyrir takmarkanir á raforkuafhendingu á yfirstandandi vetri. Orkusala hefur verið undir væntingum. Viðskipti innlent 6.1.2021 14:36
Atli ráðinn sem markaðsráðgjafi Háskólans á Bifröst Atli Björgvinsson hefur verið ráðinn í hlutastarf sem markaðsráðgjafi Háskólans á Bifröst. Viðskipti innlent 6.1.2021 12:17
„Núna get ég allavega verslað í Krónunni án samviskubits“ Særúnu Ósk Pálmadóttur hefur verið sagt upp störfum sem samskiptastjóri Haga en staða hennar hjá verslunarfyrirtækinu hefur verið lögð niður. Særún er um leið fyrsti og síðasti samskiptastjóri Haga en fyrir hennar tíð hafði enginn gegnt þeirri stöðu hjá smásölurisanum. Viðskipti innlent 6.1.2021 11:31
Segir fjörutíu prósenta hækkun álverðs gríðarlega mikilvæga fyrir efnahagslífið Heimsmarkaðsverð á áli hefur rokið upp á undanförnum mánuðum og hækkað um ríflega fjörutíu prósent frá því verðið var lægst síðastliðið vor. Stjórnarformaður Samáls segir þetta gríðarlega mikilvægt fyrir efnahag landsins. Viðskipti innlent 5.1.2021 21:50
Baldvin mun leiða Evrópuútgerð Samherja Baldvin Þorsteinsson mun taka við stjórnartaumunum hjá Deutsche Fischfang Union, dótturfélagi Samherja í Þýskalandi og verða í forsvari fyrir útgerðarstarfsemi samstæðunnar í Evrópu. Hann tekur við af Haraldi Grétarssyni sem lætur af störfum í apríl. Viðskipti innlent 5.1.2021 16:44
Lífeyrissjóðir höfnuðu yfirtökutilboði í Skeljung Lífeyrissjóðirnir Frjálsi, Birta, Festa, Stapi og Lífsverk og Gildi hafa hafnað yfirtökutilboði fjárfestahópsins Strengs ehf. á Skeljungi. Lífeyrissjóðirnir eru stærstu eigendur félagsins og fara alls með um 37% hlut. Viðskipti innlent 5.1.2021 14:20
137 misstu vinnuna í þremur hópuppsögnum í desember Þrjár tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í desember þar sem 137 starfsmönnum var sagt upp störfum. Þar af voru 94 starfsmenn í menningar, íþrótta og tómstundastarfsemi, 32 í iðnaði og 11 í flutningastarfsemi. Uppsagnirnar koma allar til framkvæmda í apríl 2021. Viðskipti innlent 5.1.2021 13:12
Davíð Þorláksson nýr framkvæmdastjóri Betri samgangna Davíð Þorláksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri opinbera hlutafélagsins Betri samgangna. Þetta kemur fram í tilkynningu. Stofnað var til Betri samgangna til að hrinda í framkvæmd uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu. Viðskipti innlent 5.1.2021 13:04
Öllum verslunum nú óheimilt að selja plastpoka Um áramótin tóku í gildi reglur sem banna afhendingu plastburðarpoka í verslunum. Bannið tekur jafnt til þunnu, glæru grænmetispokanna og innkaupaburðarpokanna, en nær ekki yfir plastpoka sem eru seldir í rúllum í hillum verslana. Viðskipti innlent 5.1.2021 11:46
Umdeilt ferðamannaþorp háð umhverfismati þvert á fyrri niðurstöðu Umdeilt ferðamannaþorp sem malasíski fjárfestirinn Loo Eng Wah hyggst reisa á jörðunum Leyni 2 og 3 í Rangárþingi ytra er háð umhverfismati. Viðskipti innlent 5.1.2021 11:41
Fimm skip kappkosta að finna loðnu á næstu tveimur vikum Floti fimm skipa, þar af tveggja hafrannsóknaskipa, er að leggja úr höfn til víðtækrar loðnuleitar. Vonir eru bundnar við að niðurstöðurnar verði ávísun á tuttugu til þrjátíu milljarða króna loðnuvertíð á næstu vikum. Viðskipti innlent 4.1.2021 20:50
Ferðaþjónustan allt að fjögur ár að ná sér á strik Ferðaþjónustan mun líklega ekki ná að vinna sig upp úr áfalli síðasta árs fyrr en að þremur til fjórum liðnum, að mati Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Landsmenn vilja ekki að mikið fleiri ferðamenn komi til landsins en þeir voru fyrir kórónuveirufaraldurinn samkvæmt könnun sem fréttastofa lét gera fyrir áramót. Viðskipti innlent 4.1.2021 18:46
Ráðningin til marks um aukna áherslu á stafræna þróun Eiður Eiðsson hefur verið ráðinn framkvæmdarstjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá verslunarfyrirtækinu Högum. Viðskipti innlent 4.1.2021 15:36
„Það er búið að afhenda gripinn“ Kona, sem stefndi Pennanum ehf. til að fá afhentan milljón króna hægindastól sem hún greiddi nær alfarið með inneignarnótum og gjafabréfi, fékk stólinn fyrir jól. Viðskipti innlent 4.1.2021 11:00