Viðskipti innlent
15 16 17 18 19 20 21 22 23 … 334 ›
Fleiri farþegar og betri nýting Flugfélagið Play flutti 146.692 farþega í maí 2024, sem er 14 prósent aukning frá maí á síðasta ári þegar Play flutti 128.847 farþega. Sætanýting hjá félaginu í nýliðnum maí var 86,4 prósent, samanborið við 84,8 prósent í maí í fyrra. Viðskipti innlent 7.6.2024 12:01
Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Alvotech hefur gert samning um endurfjármögnun skulda við GoldenTree Asset Management, bandarískt eignastýringarfyrirtæki, sem fer fyrir hópi alþjóðlegra stofnanafjárfesta. Samningurinn er um lánafyrirgreiðslu að fjárhæð allt að 965 milljónir Bandaríkjadal, eða um 135 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 7.6.2024 08:47
Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Reitir og Kjölur fasteignir hafa undirritað samkomulag um kaup Reita á fasteignum að Njarðarvöllum 4 í Reykjanesbæ og Lónsbraut 1 í Hafnarfirði. Í tilkynningu kemur fram að húsið að Njarðarvöllum 4 var byggt 2008 og er 2.338 fermetrar að stærð. Fasteignin hýsir Nesvelli dagvöl aldraðra í Reykjanesbæ. Leigusamningur er við Reykjanesbæ til 2038. Viðskipti innlent 6.6.2024 18:41
Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Það sem af er ári hefur Icelandair flutt um það bil 1,5 milljón farþega. Er það tíu prósentum fleiri en í fyrra. Eftirspurn eftir ferðum Íslendinga til útlanda heldur áfram að vera sterk en farþegum til Íslands hefur fækkað vegna samkeppni við aðra áfangastaði auk þess sem enn gætir neikvæðra áhrifa alþjóðlegrar fjölmiðlaumfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Viðskipti innlent 6.6.2024 16:01
Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Expectus ráðgjöf er nýtt félag í rekstrar- og stjórnunarráðgjöf í eigu Expectus og Ingibjargar Aspar Stefánsdóttur, sem hefur jafnframt verið ráðin framkvæmdastjóri félagsins. Viðskipti innlent 6.6.2024 14:28
Þrír nýir stjórnendur hjá Festi Festi hefur ráðið þrjá nýja forstöðumenn á fjármála- og rekstrarsvið félagsins. Andri Kristinsson tók við starfi forstöðumanns innheimtu- og fjárstýringar, Gísli Heiðar Bjarnason tók við starfi forstöðumanns viðskiptagreindar og greininga, og Sandra Björk Björnsdóttir tók við starfi forstöðumanns reikningshalds og launavinnslu. Viðskipti innlent 6.6.2024 13:06
„Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Umhverfisstofnun hefur lagt fram lista yfir vöruflokka sem stofnunin ráðleggur neytendum að forðast að versla á verslunarrisanum Temu. Í þeim geti leynst skaðleg efni sem ógni öryggi neytenda. Þar á meðal eru vörur fyrir börn, textílvörur og raftæki. Sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun segir stofnunina lítið geta gert. Viðskipti innlent 6.6.2024 13:02
Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Ingi Rúnar Kristinsson, Almar Daði Björnsson, Kristinn Skæringur Sigurjónsson og Henný Björk Birgirsdóttir hafa verið ráðin til starfa hjá íslenska heilbrigðistæknifyrirtækinu Helix. Viðskipti innlent 6.6.2024 11:03
Daði stýrir markaðssamskiptum Íslandsstofu Daði Guðjónsson hefur tekið við starfi forstöðumanns markaðssamskiptasviðs Íslandsstofu. Á sama tíma hverfur Sveinn Birkir Björnsson, sem stýrt hefur sviðinu undanfarin ár, til annarra starfa hjá Íslandsstofu en hann er að flytja búferlum erlendis. Viðskipti innlent 6.6.2024 10:42
Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Vilhjálmur Hilmarsson hefur verið ráðinn hagfræðingur Visku – stéttarfélags. Um er að ræða nýtt stöðugildi en verkefni Vilhjálms verða meðal annars að sinna greiningum á sviði efnahags- og vinnumarkaðsmála, skrifa umsagnir um lagafrumvörp og leiða kjaraviðræður ásamt lögmanni og formanni Visku. Viðskipti innlent 6.6.2024 08:07
Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Árni Oddur Þórðarson hefur gert sátt við Arion banka og endurheimt alla hluti í Eyri invest sem bankinn leysti til sín í nóvember síðastliðnum. Hann fer nú ásamt föður sínum og öflugum hópi fjárfesta með 39 prósenta hlut í félaginu. Hópurinn verður stærsti einkafjárfestirinn í sameinuðu félagi JBT og Marel. Viðskipti innlent 5.6.2024 15:43
Varar við þenslu á byggingamarkaði Þrátt fyrir að hægt hafi á efnahagslífinu er verðbólga ekki að láta undan að sögn Seðlabankastjóra. Og það þrátt fyrir að stýrivaxtahækkanir bankans hafi sérstaklega verið beint að henni. Hann segir byggingariðnað í miklum vexti sem geti reynst varasamt á meðan hagkerfið kólnar. Viðskipti innlent 5.6.2024 14:01
Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Markús Kötterheinrich hefur verið ráðinn tækni- og þróunarstjóri hjá Defend Iceland og verður hann hluti af stofnteymi fyrirtækisins. Hann stundaði nám í tölvunarfræði við Háskóla Íslands. Viðskipti innlent 5.6.2024 10:14
Bein útsending: Ásgeir og Arnór sitja fyrir svörum Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Arnór Sighvatsson, settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika munu sitja fyrir svörum og kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar á fréttamannafundi sem hefst núna klukkan 9:30. Viðskipti innlent 5.6.2024 08:59
Þrálát verðbólga mun skapa áskoranir fyrir fjármálakerfið Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum þar sem eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi þeirra að fjármögnun gott. Lítið ber enn á vanskilum þrátt fyrir hátt vaxtastig en vert er þó að hafa í huga að þrálát verðbólga samhliða hægari vexti efnahagsumsvifa mun skapa áskoranir fyrir fjármálakerfið á næstu misserum. Viðskipti innlent 5.6.2024 08:34
Ráðinn nýr framkvæmdastjóri hjá Landsneti Jóhannes Þorleiksson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra upplýsingagreindar og – tækni hjá Landsneti. Hann mun þar fara fyrir hópi sem ber ábyrgð á þróun gagnadrifinnar þjónustu, upplýsingaöryggi og rekstri upplýsingakerfa Landsnets. Viðskipti innlent 5.6.2024 08:22
Herða eftirlit með kínverskum verslunarrisa í leiftursókn Kínverski netverslunarrisinn Temu sem hefur vaxið hratt í Evrópu mun sæta strangara eftirliti Evrópusambandsins á næstunni. Íslensk eftirlitsstofnun bættist í hóp bandarískra og evrópskra stofnana sem vara neytendur við vörum sem Temur selur. Viðskipti innlent 5.6.2024 07:00
Félag í eigu Quang Lé gjaldþrota Vietnamese Cuisine ehf, félag í eigu Quang Lé, hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu í dag. Viðskipti innlent 4.6.2024 14:06
Öfugþróun að minni verðmæti komi af hverjum ferðamanni Ferðaþjónustan er að stefna í öfuga átt miðað við það markmið að hver ferðamaður skili meiri verðmætum í stað stöðugrar fjölgunar ferðamanna. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir aukna markaðssetningu einu leiðina til að snúa þessari öfugþróun við. Viðskipti innlent 4.6.2024 12:22
„Viðskiptakonan“ sem komst á Bessastaði í annarri tilraun Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti lýðveldisins. En hver er þessi kraftmikla kona sem tókst að heilla þjóðina í annað sinn og nú nægilega mikið til þess að koma sér á Bessastaði? Halla hefur flutt inn fótboltastráka, unnið hjá Pepsi og stýrt umtöluðu partýi í Mónakó. Hennar stærstu mistök voru að taka við starfi framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs. Viðskipti innlent 4.6.2024 10:46
Samruninn hefði haft umtalsverð skaðleg áhrif Samkeppniseftirlitið hefur birt ákvörðun um að ógilda kaup Skeljungs ehf. á Búvís ehf.. Eftirlitið telur að samruninn hefði að öllu óbreyttu haft umtalsverð skaðleg áhrif á markaði fyrir innflutning og sölu á áburði. Viðskipti innlent 4.6.2024 07:50
Svarta sviðsmyndin blasir við ferðaþjónustunni í ár Horfur í ferðaþjónustu hafa snarversnað. Gistinóttum frá áramótum fækkaði um sex prósent og bókanir á hótelum fyrir sumarið eru tíu til fimmtán prósentum færri en á sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 3.6.2024 22:22
Icelandair hefur flug til Halifax á nýjan leik Icelandair hóf flug til Halifax á ný 31. maí síðastliðinn. Fluginu var fagnað bæði á Keflavíkurflugvelli og við komuna til Halifax. Flogið verður til borgarinnar þrisvar í viku fram til fjórtánda október. Icelandair hefur áður flogið til borgarinnar en síðast var flogið þangað árið 2018. Viðskipti innlent 3.6.2024 16:26
Tæplega sextíu sagt upp hjá Landvinnslu Þorbjarnar í Grindavík Fimmtíu og sjö starfsmönnum hjá Landvinnslu Þorbjarnar í Grindavík var sagt upp síðastliðinn fimmtudag, þrítugasta maí. Þetta staðfestir Jóhann Gunnarsson, yfirmaður landvinnslu Þorbjarnar, í samtali við fréttastofu. Viðskipti innlent 3.6.2024 11:56
441 sagt upp í sex hópuppsögnum Sex tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í nýliðnum maímánuði. 441 starfsmanni var sagt upp í uppsögnunum sex. Viðskipti innlent 3.6.2024 10:24
Alls ekki auðveld ákvörðun að selja Bjórböðin Bjórböðin á Árskógssandi í Eyjafirði hafa verið auglýst til sölu. Eigandi Bjórbaðanna segir ákvörðunina ekki einfalda en reksturinn hafi verið afar erfiður í Covid auk þess sem vaxtastefna Seðlabankans hafi alls ekki hjálpað til. Viðskipti innlent 3.6.2024 10:09
Telja SKE hafa farið offari og hætta við kaupin Stjórn Síldarvinnslunnar hefur samþykkt beiðni Samherja um að kaup félagsins á helmingshlut í sölufyrirtækinu Ice Fresh Seafood ehf. gangi til baka. Viðskipti innlent 3.6.2024 08:27
Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Íslandsbanki hefur tekið sáttaboði fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna ófullnægjandi varna gegn peningaþvætti. Bankinn viðurkennir að brotin séu mörg og alvarleg. Viðskipti innlent 1.6.2024 15:11
Bein útsending: „Hvað verður í matinn?“ Málþing um matvælarannsóknir og framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi fer fram í Hörpu í dag. Þar verður það nýjasta á sviði matvælarannsókna í brennidepli ásamt áskorunum og tækifærum í matvælaframleiðslu í framtíðinni. Viðskipti innlent 31.5.2024 10:47
Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Landsbankinn gekk frá samningi við Kviku banka um kaup á tryggingafélaginu TM fyrir 28,6 milljarða króna í dag. Kaupsamningur þeirra var skuldbindandi fyrir Landsbankann samkvæmt lögfræðiáliti sem nýtt bankaráðs bankans lét vinna. Viðskipti innlent 30.5.2024 19:04