Tónlist
221 222 223 224 225 226 … 226 ›
Touch spilar á Akureyri Hljómsveitin Touch, sem gefur á næstunni út glænýja plötu, spilar í Oddvitahúsinu á Akureyri föstudags- og laugardagskvöld. Sveitin hitaði upp fyrir Bloodhound Gang í Höllinni í september og ætlar sér að vera dugleg við spilamennsku á næstunni. Nýjasta lag Touch, Fucking hypocrites, er nýkomið út og hefur fengið góðar viðtökur. Þeir sem vilja nálgast fleiri upplýsingar um sveitina geta kíkt á myspace.com/touchtheband. Tónlist 2.11.2006 10:00
Þriðja plata My Chemical Romance Bandaríska hljómsveitin My Chemical Romance hefur gefið út sína þriðju plötu, sem nefnist The Black Parade. My Chemical Romance var stofnuð í New Jersey árið 2001 af þeim Gerard Way, Mikey Way, Bob Bryar, Frank Iero, og Ray Toro. Síðasta plata sveitarinnar, Three Cheers for Sweet Revenge, seldist í tveimur milljónum eintaka og kom sveitinni rækilega á kortið. Tónlist 2.11.2006 08:00
Tók upp á Írlandi Will.i.am, meðlimur Black Eyed Peas, tók nýverið upp nokkur lög með popparanum Michael Jackson á Írlandi. Verður þau væntanlega að finna á næstu plötu Jacksons sem kemur út á næsta ári. Tónlist 1.11.2006 18:00
Sameinaðir Bítlar Platan Love með Bítlunum kemur út þann 20. nóvember. Á plötunni er að finna lög sem Sir George Martin, sem var upptökustjóri Bítlanna, og sonur hans Giles endurhljóðblönduðu fyrir sýninguna Cirque du Soleil í Las Vegas. Tónlist 1.11.2006 16:30
Mínus tekur upp nýja plötu í LA Strákarnir í rokksveitinni Mínus halda á vit ævintýranna síðar í mánuðinum. Þeir taka upp næstu plötu sína í Los Angeles undir stjórn mannsins sem tók upp síðustu plötur Tool og Queens of the Stone Age. "Við förum út 27. nóvember og verðum í tvær vikur í Borg englanna, Los Angeles,“ segir Kári Sturluson, umboðsmaður hljómsveitarinnar Mínuss um fyrirhugaðar upptökur á næstu plötu hljómsveitarinnar. Tónlist 1.11.2006 15:30
Leikur tónsmíðar Lars Jansson Stórsveit Reykjavíkur heldur aðra tónleika sína á þessu starfsári í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld kl. 20.30. Tónskáld kvöldsins, stjórnandi og einleikari á píanó er sænski tónlistarmaðurinn Lars Jansson. Tónlist 1.11.2006 14:45
Kvöld söngvaskálda Efnt verður til söngvaskáldakvölds á veitingastaðnum Domo í Þingholtsstræti í kvöld. Þar munu tónskáld, textahöfundar og flytjendur ólíkra kynslóða skiptast á að prufukeyra nýtt frumsamið efni og síðan verður efnt til spunatíðar þar sem Eyþór Gunnarsson, Einar Scheving, Óskar Guðjónsson og Róbert Þórhallsson annast undir- eða meðleik. Tónlist 1.11.2006 14:30
Hinn heilagi Megas Tónlistarkonan Magga Stína hefur gefið út plötuna Magga Stína syngur Megas. Magga Stína segir að platan hafi legið í loftinu síðan hún söng Megasarlagið Fílahirðirinn frá Súrín á afmælistónleikum Megasar í Austurbæ á síðasta ári. Eftir að lagið fór að hljóma í útvarpinu hlaut það fádæma viðtökur og varð það Möggu Stínu hvatning til að taka upp fleiri lög eftir meistarann. Tónlist 1.11.2006 13:30
Fyrsta sinn í níu ár Poppkóngurinn Michael Jackson mun koma í fyrsta skiptið fram í Bretlandi í níu ár á World Music Awards sem haldið verður í Lundúnum í næsta mánuði. Jackson mun taka þar á móti demantaverðlaunum en þau eru gefin tónlistarmönnum sem hafa selt meira en 100 milljónir platna á ferlinum. Tónlist 1.11.2006 12:30
Fulltrúar Íslands í ham Boðið var upp á rokktónlist frá núverandi og fyrrverandi nýlendum Dana á tónlistarhátíð á Norðuratlantshafsbryggju í Kaupmannahöfn á laugardagskvöld. Það kom í hlut hljómsveitarinnar Ham að kynna íslenskt rokk fyrir tónleikagestum og tókst það vel. Tónlist 1.11.2006 12:00
Brian Jonestown Massacre til Íslands Bandaríska rokksveitin Brian Jonestown Massacre heldur tónleika á Nasa þann 29. nóvember næstkomandi. Forsprakki sveitarinnar, Anton Newcombe, hefur tvívegis komið hingað til lands og hefur lengi staðið til að hljómsveit hans myndi spila hér. Hjálpar þar til vinskapur hans við liðsmenn Singapore Sling, sem hafa spilað með hljómsveitinni á tónleikum erlendis. Tónlist 1.11.2006 08:00
Einar Ágúst á sviði með Skítamóral Ekki hefur mikið spurst til söngvarans Einars Ágústs að undanförnu og því brutust út mikil fagnaðarlæti þegar hann steig á svið með fyrrum félögum sínum í Skítamóral á Nasa um helgina. Tónlist 31.10.2006 16:00
Frumlegur finnskur túlkandi Finnski píanóleikarinn Olli Mustonen hefur verið lengi í sviðsljósinu þrátt fyrir ungan aldur. Hann leikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands í dag en á efnisskrá kvöldsins eru tveir píanókonsertar Beethovens og sinfónía eftir Brahms. Tónlist 31.10.2006 14:45
Fær slæma dóma Gagnrýnendur í Bandaríkjunum hafa skotið í kaf nýjan söngleik á Broadway með lögum Bobs Dylan. Tónlist 31.10.2006 14:00
Gangandi kálhaus Söngvarinn Liam Gallagher hefur nú sagt álit sitt á rokkstjörnunni Pete Doherty og eiturlyfjaneyslu hans. Gallagher segir að rokkarinn frægi sé gangandi kálhaus og vælukjói. Tónlist 31.10.2006 13:00
Jackson heiðraður Fyrrverandi konungur poppsins, Michael Jackson, mun taka á móti heiðursverðlaunum fyrir framlag sitt til tónlistarinnar á heimstónlistarhátíðinni í London. Tónlist 31.10.2006 12:00
Ný plata frá Eminem Ný plata frá rapparanum Eminem, The Re-Up, er væntanleg í verslanir 4. desember næstkomandi. Um er að ræða mix-plötu sem Eminem gerði með Dj Whoo Kid. Tónlist 31.10.2006 11:00
Þægilegt og áreynslulaust Þægileg og áreynslulaus plata sem ætti að geta náð til fjöldans þó hér sé hvorki nýstárlegt né framúrskarandi efni á ferð. Tónlist 31.10.2006 08:00
Þræddi minni og stærri staði David Fricke, einn ritstjóra Rolling Stone sem heimsótti Iceland Airwaves í annað sinn nú um helgina, er hæstánægður með hátíðina og þá listamenn sem þar koma fram í grein sinni "Rolling Stone Goes native at Airwaves Music Fest". Tónlist 25.10.2006 17:15
Þorvaldur ekki með í Eurovision Ríkissjónvarpið auglýsir nú eftir lögum í undankeppni Eurovision. Þekktir lagahöfundar og tónlistarmenn vega og meta hvort þeir eigi að vera með. Tónlist 25.10.2006 00:01
Heimsyfirráð eða dauði Í tilefni þess að tuttugu ár eru liðin frá því hljómsveitin Sykurmolarnir gaf út smáskífu með laginu AMMÆLI ætlar hljómsveitin að koma saman aftur og spila á einum tónleikum í Laugardalshöll föstudaginn 17. nóvember. Miðasala á tónleikana hefst á morgun - miðvikudaginn 25. október. Tónlist 24.10.2006 14:17
Stílisti U2 gefst ekki upp Eins og áður hefur komið fram heyja nú U2-menn og fyrrverandi stílisti þeirra, Lola Cashman, stríð fyrir dómstólum um yfirráð yfir flíkum sem U2-menn segja Lolu hafa stolið af þeim. Tónlist 23.10.2006 15:45
Nítján milljónir næstu fjögur árin Icelandair, Reykjavíkurborg og Hr. Örlygur ehf. hafa undirritað fjögurra ára samstarfssamning um tónlistarhátíðina Iceland Airwaves. Tónlist 22.10.2006 14:30
Boðið upp á pitsu með sviðum Æði sérstök hátíð verður haldin á Hótel Framtíð á Djúpavogi 28. október, svokölluð Sviðamessa. Messan hefur verið haldin frá árinu 1997 en þá koma saman bæjarbúar á öllum aldri auk aðkomufólks og gæðir sér á þessu séríslenska en ljúffenga mat. Tónlist 22.10.2006 14:00
Annar Kristall Aðrir kammertónleikar félaga í Sinfóníuhljómsveit Íslands, sem kenndir eru við Kristal, fara fram í Listasafni Íslands síðdegis í dag. Á efnisskránni eru verk sem öll eru samin í hefð Vínarklassíkurinnar en þar má finna tónsmíðar eftir Johann Matthias Sperger, Mozart, og Franz Danzi. Tónlist 21.10.2006 18:00
Party Zone fram á nótt Heljarinnar Party Zone-kvöld verður haldið á skemmtistaðnum Pravda á laugardagskvöld í tilefni af Iceland Airwaves. Tónlist 21.10.2006 15:00
Flýr hverfið sitt Svíinn Jens Lekman treður upp í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld en honum var bætt við dagskrá Airwaves á síðustu stundu. Tónlist 21.10.2006 10:45
Ég borga fyrir áheyrn Hljómsveitin Ég mun halda tónleika í kvöld á Barnum kl. 23:00 og ætla Ég að greiða fólki fyrir að koma og hlusta á skemmtileg lög. Hljómsveitin vakti mikla athygli þegar hún fékk þrjár tilnefningar til Íslensku tónlistaverðlaunanna í fyrra, meðal annars fyrir Plötu ársins sem kom út á síðasta ári. Tónlist 20.10.2006 18:00
Samið um samstarf í kringum Airwaves til fjögurra ára Icelandair, Reykjavíkurborg og viðburðafyrirtækið Herra Örlygur undirrituðu í dag fjögurra ára samstarfssamning um tónlistarhátíðina Iceland Airwaves. Hátíðin hefur verið haldin frá árinu 1999 og stendur einmitt yfir þessa dagana. Tónlist 20.10.2006 14:45
Hjörtur á metið Hljómsveitirnar Gavin Portland og Botnleðja eru ekki þær einu sem hafa tekið upp plötur á mettíma, því tónlistarmaðurinn Hjörtur Geirsson tók upp fyrstu plötu sína á aðeins tólf klukkutímum árið 2001. Nýverið greindum við frá líklegu Íslandsmeti Gavins Portland, sem kláraði nýjustu plötu sína III. Views of Distant Towns á fjórtán tímum. Tónlist 20.10.2006 14:00