Menning
188 189 190 191 192 193 194 195 196 … 334 ›
Austrænn innblástur Ólafur Lárusson myndlistarmaður sýnir verk sín hjá Ófeigi gullsmið á Skólavörðustíg. Sýningin var opnuð í byrjun mánaðarins en þar er að finna verk sem listamaðurinn gerði eftir mikla ævintýraför sína til Kína á haustdögum 2006. Sýningunni lýkur næstkomandi miðvikudag, hinn 28. mars. Menning 23.3.2007 10:00
Iður Bjarna í Iðuhúsi Bjarni Sigurbjörnsson myndlistarmaður opnar sýninguna Iður í nýjum húsakynnum Anima galleríis í Iðu-húsinu í Lækjargötu. Bjarni hefur haldið fjölda sýninga bæði hér heima og erlendis og þrisvar verið tilnefndur til Carnegie-verðlaunanna. Hann er þekktur fyrir íburðarmikil málverk sem hann vinnur á plexígler. Menning 23.3.2007 08:30
Nýtt ævintýri á gönguför Það ríkir eftirvænting á Akureyri vegna frumsýningar kvöldsins í Rýminu. Þá birtist Akureyringum nýtt verk eftir heimamann, Þorvald Þorsteinsson, í sviðsetningu Kjartans Ragnarssonar og er þetta fyrsta sviðsetning hans eftir nokkurt hlé. Það er LA sem stendur að frumsýningunni í Rýminu í samstarfi við leiklistardeild Listaháskólans. Uppselt er á tólf fyrstu sýningarnar. Menning 23.3.2007 07:00
Krókar og kimar Í tilefni af 30 ára afmæli Félagsvísindadeildar Háskóla Íslands heldur Dr. Regina Bendix, prófessor fyrirlestu um vettvangsrannsóknir á háskólasamfélögum. Menning 22.3.2007 08:45
Könnun kerfanna Sýningarröð Listasafns Reykjavíkur sem kennd er við D-2 hefur vakið verðskuldaða athygli en markmið hennar er að vekja athygli á efnilegum listamönnum sem ekki hafa sýnt í hinum stærri sýningarsölum landsins og vera þeim hvatning. Síðdegis í dag verður opnuð sýning í D-salnum þar sem Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar veltir fyrir sér mannlegri tilvist og þeim kröftum sem knýr manninn áfram. Menning 22.3.2007 08:30
Klettasalat og afbyggður líkami Tvær sýningar verða opnaðar í gallerí Kling & Bang í dag. Spænski listamaðurinn Alejandro Vidal heldur sína fyrstu einkasýningu hér á landi og sýnir myndbandsverk og ljósmyndir í afgirtu rými en í galleríinu gefur einnig að líta vídeóverk þýska listamannsins Johns Bock. Menning 17.3.2007 11:15
Hví ekki Afríka? Tvær ljósmyndasýningar verða opnaðar í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu á morgun. Annars vegar er sýning á verkum Katrínar Elvarsdóttur sem hún kallar „Sporlaust“ og hins vegar sýning á ljósmyndum eftir frönsku listakonuna Dominique Darbois og á afrískum skúlptúrum. Sýningin ber yfirskriftina „Hví ekki Afríka?“ Menning 16.3.2007 07:15
Kúbíski Kjarvalinn í danska forvörslu fyrir heimkomu Kjarvalsverkið, sem slegið var fyrir metupphæð á uppboði í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði, er ekki komið til landsins. Að sögn Jóhanns Ágústs Hansen listaverkasala fara danskir forverðir um það höndum og verið er að velja ramma við hæfi. Nafn hins raunverulega kaupanda verður gefið upp í fyllingu tímans. Menning 16.3.2007 07:00
Britney búin að eignast ,,vin” Partíprinsessan Britney Spears dvelur nú sem kunnugt er á meðferðarheimili eftir að hún náði botninum þegar hún rakaði af sér hárið og fékk sér tattoo. Britney ku vera búin að eignast góðan vin í meðferðinni, hann Jason Filyaw, gítarleikara hljómsveitarinnar RIVA. Menning 15.3.2007 16:34
Á mörkunum Finnski ljósmyndarinn Sari Poijärvi opnar sýningu sína „Photo-graphic Work“ í Skotinu í anddyri Ljósmyndasafns Reykjavíkur kl. 17 í dag. Sari er með meistaragráðu í myndlist og hefur haldið fjölda einka- og samsýninga víða um lönd. Í september árið 2005 dvaldi hún í gestaíbúð SÍM í Reykjavík og á því tímabili tók hún mikið af myndum sem margar hverjar er að finna á sýningunni í Skotinu. Menning 15.3.2007 05:45
Að klæðast bók Unnur Guðrún Óttarsdóttir sýnir bókverk á myndlistarsýningunni „Bókalíf” í ReykjavíkurAkademíunni. Menning 14.3.2007 09:45
Eiríkur flytur til Finnlands Ljóðskáldið og Nýhil-liðinn Eiríkur Örn Norðdahl er á leið í víking til Finnlands. Eiríkur, sem hefur verið afar áberandi í bókmenntaheiminum á síðustu misserum og árum, flyst búferlum til Helsinki að páskafríi loknu, en þar býr sænsk unnusta hans. Menning 13.3.2007 09:15
Kanna möguleika miðilsins Á sýningunni „Augliti til auglitis“ eru ljósmyndir eftir franska myndlistarmenn en sýningu þeirri er ætlað að varpa ljósi á samtímaljósmyndun og möguleika hennar. Sýningin er liður í frönsku menningarkynningunni Pourquoi pas? og var opnuð í Listasafni Akureyrar um helgina. Menning 13.3.2007 08:15
Ljúka ekki við bók Beckhams Harry Potter og eldbikarinn, My life eftir Bill Clinton og My side eftir David Beckham eru á meðal þeirra bóka sem Bretar klára ekki. Gerð var könnun á 4000 Bretum og í ljós kom að um helmingur bóka sem þeir kaupa eru ólesnar. Menning 12.3.2007 14:44
Fullt af engu Í Nýlistasafninu stendur nú yfir sýningin „Presque rien“ sem útleggst á hinu ástkæra ylhýra sem „næstum því ekki neitt“. Þar sýna franskir myndlistarmenn í tilefni af menningarkynningunni Pourquoi pas? en sýningin byggir á sköpunarverkum listamannsins Roberts Filliou. Menning 10.3.2007 11:00
Fáðu þér bara sæti Myndlistarmaðurinn Hlynur Hallsson opnar sýninguna LJÓS - LICHT - LIGHT í galleriBOXi á Akureyri kl. 16 á morgun. Verkið sem Hlynur setur upp í galleriBOXi samanstendur af borði og sætum sem gerð eru á afar einfaldan hátt úr froðuplastplötum og gæruskinni. Menning 9.3.2007 09:30
Hugvísindaþing hefst í dag Hugvísindaþing hefst síðdegis í dag í Aðalbyggingu Háskólans og stendur í tvo daga. Að því standa, eins og undanfarin ár, Hugvísindastofnun, ReykjavíkurAkademían og guðfræðideild. Þinginu er ætlað að bregða ljósi á ýmis viðfangsefni sem unnið er að á skika hugvísinda í landinu, bæði lítil álitaefni og stór. Menning 9.3.2007 09:00
Rætt um Lindgren Ráðstefna um barnabókmenntir og barnamenningu verður haldin í menningarmiðstöðinni Gerðubergi á morgun. Ráðstefnan er að þessu sinni tileinkuð Astrid Lindgren og framlagi hennar til barnamenningar fyrr og nú. Menning 9.3.2007 08:15
Baudrillard látinn Franski heimspekingurinn og menningarfræðingurinn Jean Baudrillard lést í París síðastliðinn þriðjudag. Hann var 77 ára að aldri og hafði glímt við langvarandi veikindi. Menning 8.3.2007 09:00
Glíma við orð Rúnar Helgi Vignisson heldur erindi á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í fyrirlestraröðinni „Þýðing öndvegisverka“ í dag. Rúnar ræðir um glímuna við bókmenntaverk frá fjarlægum og framandi menningarheimi í tengslum við þýðingar sínar á verkum suður-afríska Nóbelsverðlaunahafans J.M. Coetzee. Menning 8.3.2007 08:45
Jóhann Briem Jóhann Briem (1907 - 1991) stundaði listnám hjá Jóni Jónssyni málara, bróður Ásgríms Jónssonar, Eyjólfi Eyfells og Ríkarði Jónssyni myndhöggvara í Reykjavík. Menning 8.3.2007 08:15
Æviferill Sigurjóns opinn Listasafn Sigurjóns Ólafssonar hefur opnað heildar-skrá yfir verk listamannsins í vefrænu formi á heimasíðu safnsins, www.lso.is. Heildarskrá listaverka Sigurjóns Ólafssonar hefur verið í vinnslu í yfir tvo áratugi og nær yfir öll þrívíð listaverk sem vitað er með vissu að Sigurjón gerði. Nú eru skráð 624 verk og fylgja ljósmyndir 537 þeirra. Er þetta fyrsta heildarskrá myndlistarmanns á Íslandi sem birt hefur verið á netinu. Menning 7.3.2007 08:30
Heinesen í heimsókn Á morgun verður opnuð sýning á málverkum og vatnslitamyndum færeyska myndlistarmannsins Zachariasar Heinesen í Hafnarborg. Verða þar uppi yfir þrjátíu verk og eru þau mörg til sölu. Menning 7.3.2007 06:45
Skuldadagar Söguhetja Skuldadaga er Matti, hálflánlaus náungi, sem ætlar þó svo sannarlega að kippa sínu í lag. Hann þarf bara smá tíma og smá pening. Þegar hann vaknar á föstudagsmorgni og uppgötvar að honum hefur, fyrir undarlega slysni, tekist að glata fíkniefnum sem honum var falið að selja, verður eigandinn ekki glaður. Menning 5.3.2007 14:00
Hringur Tankados Út er komin hjá Bjarti í kilju spennusagan Hringur Tankados eftir Dan Brown, höfund DaVinci lykilsins. Enginn höfundur á jafn auðvelt með að ná slíkum heljartökum á lesandum að hann sleppir ekki bókinni fyrr en að lestri loknum. Hringur Tankados er æsileg spennusaga sem sameinar forvitnilegt sögusvið og magnaða framvindu. Menning 5.3.2007 11:11
Listasýning Lynch Listasýning með verkum eftir leikstjórann David Lynch hefur verið opnuð í Cartier-stofnuninni í París. Sýningin nefnist The Air Is On Fire og þar gefur að líta erótískar ljósmyndir frá nítjándu öld, málverk af limlestum líkömum og ýmislegt fleira óvenjulegt. Menning 5.3.2007 08:00
Gjörningaklúbburinn hannar fyrir umslag Bjarkar Gjörningaklúbburinn hefur verið fengin til að hanna búninga fyrir umslagið á nýjustu plötu Bjarkar Guðmdunsdóttur. Þetta staðfesti Eirún Sigurðardóttir en hún skipar klúbbinn ásamt þeim Jóní Jónsdóttur og Sigrúnu Hróflsdóttur. Menning 4.3.2007 10:00
Æsispennandi uppboð "Ég er sáttur. Svavar er stórlega vanmetinn. Og undirverðlagður," sagði Guðmundur Jónsson galleríeigandi í samtali við blaðamann Fréttablaðsins á þriðjudag. Hann stóð á götutröppunum fyrir utan uppboðshús Bruun Rasmussen við Brödgade í Kaupmannahöfn. Og var að róa æstar taugar. Menning 4.3.2007 09:00
Litið til veðurs í ASÍ Myndlistarkonan Guðrún Kristjánsdóttir opnar sýningu í Ásmundarsal og Gryfju Listasafns ASÍ í dag. Sýningin ber yfirskriftina „Veðurfar“ en listamaðurinn hefur hefur um árabil fágað og dýpkað nálgun og sýn á landslagsmyndina, bæði í málverkum sínum og með úrvinnslu í aðra miðla. Menning 3.3.2007 14:00
Í minningu Hallgríms Sýning á verkum Einars Jónssonar myndhöggvara verður opnuð í forkirkju Hallgrímskirkju í dag. Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, opnar sýninguna kl. 17 en hún er unnin í samvinnu Listvinafélags Hallgrímskirkju og Hallgrímssafnaðar við Listasafn Einars Jónssonar sem lánar verkin. Menning 3.3.2007 11:00