Menning
187 188 189 190 191 192 193 194 195 … 334 ›
Birta, bækur og búseta Í tilefni af tuttugu og fimm ára afmæli Bókasafns Garðabæjar efnir menningar- og safnanefnd bæjarins til upplestrardagskrárinnar „Bókin og birtan“ þar á bæ. Í kvöld heimsækja Jón Yngvi Jóhannsson, bókmenntafræðingur og gagnrýnandi, og Rúnar Helgi Vignisson, rithöfundur og þýðandi, safnið. Menning 8.5.2007 07:00
Steingarðar byggðir í Eyjafirði Landsfjórðungar takast á í fjölbreyttu framboði listaverka þessa dagana: í Stykkishólmi opnaði Roni Horn Vatnasafn sitt í gær og norður á Akureyri var ekki smærra verk erlends listamanns opinberað. Á morgun verður opnuð í Listasafninu á Akureyri yfirlitssýning á jarðlistaverkefni Andrews Rogers, Lífstakturinn. Menning 4.5.2007 06:45
Hlýtt á tal tveggja Rithöfundurinn Thor Vilhjálmsson ræðir við kollega sinn frá Frakklandi, Edouard Glissant, í sérstakri dagskrá í tilefni af frönsku menningarkynningunni Pourquoi pas? á morgun. Menning 4.5.2007 06:15
Uppsprengt verð á Kjarval „Þetta er bull og vitleysa,“ sagði Bragi Kristjónsson fornbókasali um verðlagningu á Hvalasögu Jóhannesar S. Kjarvals á uppboðssíðunni eBay. Seljandi, sem virðist búsettur í Kópavogi en lætur nafns síns ekki getið, býður upp áritað eintak af smásögunni „Hvalasagan – átján hundruð níutíu og sjö“ á eBay, fyrir lágmarksupphæðina 58.500 bandaríkjadali. Menning 3.5.2007 06:00
Tröllaslagurinn í Kvosinni Skessur leggja undir sig Reykjavík sólarhringana fyrir kosningarnar. Tilefnið er ekki fardagar heldur Listahátíðin sem skellir sér ofan í síðustumetrana í kosningabáráttu og andlegan undirbúning þjóðarinnar fyrir Eurovision. Menning 3.5.2007 05:30
Saga bústaðanna Nokkuð er liðið síðan menn tóku að hafa áhyggjur af því að heimildir væru fáar til um Verkamannabústaðina við Hringbraut. Það var fyrsta stóra átakið sem verkafólk í Reykjavík sýndi til að koma húsnæðismálum sínum í lag með samtakamættinum: forkólfur í byggingu þeirra var Héðinn Valdimarsson en hann lagði fram frumvarp á þingi 1924 um að þeir risu. Menning 30.4.2007 06:30
Úrslit hönnunarkeppni ráðast í dag Úrslit í hönnunarkeppni Hagkaupa verða kynnt fyrir framan verslun Hagkaupa í Smáralind klukkan 17 í dag. Þetta er í annað skipti sem verslunin stendur fyrir slíkri keppni, en í fyrra bar hönnuðurinn Sunna Dögg Ásgeirsdóttir sigur úr býtum. Menning 28.4.2007 08:00
Jón Ásgeir og Davíð í slag Rithöfundurinn Óttar Martin Norðfjörð hefur sent frá sér nýja bók. Í bókinni segir frá afmælisveislu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar athafnamanns. Menning 25.4.2007 10:15
Hvíldu þig, hvíld er góð? Iðjusemi hefur löngum verið álitin með mestu dyggðum hér á landi og letin að sama skapi með verstu löstum enda vofir hún ávallt yfir. Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður, ræðir um þann löst og rekur með því smiðshöggið á fyrirlestraröð um dauðasyndirnar sjö í Grófarhúsinu kl. 17.15 í dag. Fyrirlestraröð þessi var flutt í Amtmannsbókasafninu á Akureyri fyrr í vetur og hefur mælst afar vel fyrir bæði norðan heiða og sunnan. Menning 25.4.2007 09:15
Löng leið að langþráðu marki Eitt af stofnfélögum Bandalags íslenskra listamanna, Félag íslenskra listdansara, er statt á tímamótum því um þessar mundir eru sextíu ár liðin síðan frumherjar íslenskrar danslistar komu saman og stofnuðu félagið. Fyrsti formaður þess var Ásta Norðmann en hún leiddi um árabil hóp frumkvöðlanna. Var hún eina konan sem kom að stofnun Bandalags íslenskra listamanna en konur hafa alla tíð verið í forystu listdansins á Íslandi. Menning 25.4.2007 08:30
Tekur Partílandið fram yfir Harry Potter „Ég er núna að fara að spila með landsliðinu en auðvitað vilja allir spila með Draumaliðinu,“ segir Jón Páll Eyjólfsson, leikari og leikstjóri, sem stóð frammi fyrir erfiðri ákvörðun í vikunni. Fréttablaðið greindi frá því að hann væri einn þeirra sem þyki koma til greina í hlutverk í sjöttu kvikmyndinni um Harry Potter. Menning 21.4.2007 06:30
Rætt um listir í skólakerfinu Myndlistarskólinn í Reykjavík gengst fyrir námstefnu um möguleika listnámskennslu í almennu skólastarfi í dag og á morgun. Yfirskrift stefnunnar er „KnowHow” en að því verkefni standa listaskólar í fjórum Evrópulöndum. Menning 20.4.2007 06:45
Fransmenn og fjölskyldufjör Borgarbókasafnið fagnar Viku bókarinnar með fjölbreyttri dagskrá um alla borg. Í dag verður til dæmis efnt til fjölskylduhátíða á vegum safnsins í Árbæ og Grafarvogi auk þess sem heilmikið verður um að vera í Grófarhúsinu við Tryggvagötu. Menning 19.4.2007 12:00
Hver var Freyja? Ingunn Ásdísardóttir, þjóðfræðingur og þýðandi heldur fyrirlestrar á vegum Snorrastofu í Reykholti á morgun. Ingunn fjallar þar um ímynd og hlutverk Freyju í norrænni heiðni og kallar erindi sitt „Hver var Freyja?“ Menning 16.4.2007 08:45
Með Biblíur í kassavís Samkvæmt vef Mannlífs var Gunnar Þorsteinsson, oftast kenndur við Krossinn, sagður vera farinn að hamstra Biblíur en hann hefur ekki farið leynt með andúð sína á nýrri þýðingu bókarinnar sem væntanleg er á næstu misserum. Menning 16.4.2007 08:30
Minning Guðjóns Samúelssonar Pétur Ármannsson arkitekt og einn reyndasti rannsóknarmaður okkar um þessar mundir í sögu íslenskrar húsagerðar heldur í kvöld fyrirlestur í hátíðarsal Háskóla Íslands en í dag, 16. apríl, eru 120 ár liðin frá fæðingu Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkisins. Af því tilefni mun Pétur H. Ármannsson arkitekt FAÍ halda fyrirlestur um fjölþætt framlag hans til byggingarlistar og skipulagsmála. Menning 16.4.2007 08:00
Ull í ungum höndum Nemendum í Rimaskóla er margt til lista lagt en á morgun verður opnuð sýning á textílverkum nemenda í sjötta bekk skólans í menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Menning 16.4.2007 07:00
Framlag verðlaunað Rithöfundarnir Margaret Atwood, Ian McEwan og Philip Roth eru meðal þeirra sem hlutu náð fyrir valnefnd Alþjóðlegu Booker bókmenntaverðlaunanna og komust á lista yfir þá fimmtán höfunda sem tilnefndir eru í ár. Menning 14.4.2007 14:00
Sígilt sultubrauð fáanlegt að nýju Hjá Vöku-Helgafelli er komin út að nýju bókin Franskbrauð með sultu eftir Kristínu Steinsdóttur með myndum eftir Brian Pilkington. Tuttugu ár eru síðan bókin kom fyrst út en fyrir hana hlaut Kristín Íslensku barnabókaverðlaunin vorið 1987 Menning 11.4.2007 14:39
Engar guðfræðilegar hártoganir Séra Þórhallur Heimisson hefur samið við bókaútgáfuna Sölku um útgáfu á ævisögu Maríu Magdalenu. Þórhallur hefur gengið með hugmyndina í maganum síðan 2004 þegar hann byrjaði með námskeiðið um Da Vinci lykilinn en þar leikur María stórt hlutverk. Menning 10.4.2007 10:00
Vandinn við Kafka Ástráður Eysteinsson, prófessor í almennri bókmenntafræði og þýðandi, heldur erindi um nóvelluna Umskiptin eftir Franz Kafka í dag. Erindi sitt kallar Ástráður „„Þetta var ekki draumur“: Vandinn að skilja og þýða Umskiptin“ en verk það, ásamt skáldsögunni Réttarhöldunum, er með þekktustu verkum Kafka og jafnframt eitt frægasta sagnaverk evrópskra bókmennta á 20. öld. Menning 2.4.2007 07:30
Skírnir á vefnum Hið íslenska bókmenntafélag hefur sett á stofn vefsíður fyrir sitt forna tímarit, Skírni, sem Halldór Guðmundsson bókmenntafræðingur ritstýrir nú um stundir: www.skirnir.is. Þar má meðal annars fylgjast með fréttum og umræðum í tengslum við efni Skírnis. Menning 2.4.2007 07:15
David Bowie stjórnar listahátíð Grínistinn Ricky Gervais og kanadíska hljómsveitin The Arcade Fire eru á meðal þeirra sem munu koma fram á listahátíðinni High Line Festival sem verður haldin á Manhattan í New York dagana 9. til 19. maí. Menning 1.4.2007 10:00
Dansa við lifandi tónlist Fjórir nemendur Listdansskóla Íslands halda til Turku í Finnlandi í byrjun apríl. Þar munu þeir sýna verk eftir Elli Laukkanen, sem hefur verið gestakennari við skólann frá því í janúar. Menning 31.3.2007 09:30
Bóklistaverk og aðrar bækur Áfram halda veisluhöld vegna franska vorsins: nú eru menn minntir á framlag Frakka til bókmennta og fræðiritaútgáfu. Það er gert með sýningu í Þjóðarbókhlöðunni við Suðurgötu sem opnuð verður í dag. Af því tilefni kemur út bóklistaverk svokallað með ljóðum á báðum tungunum, íslensku og frönsku, eftir Sigurð Pálsson, myndlýst af Bernard Alligand. Menning 29.3.2007 10:00
Munið að sýna skilríkin Ef þú ert 23 ára eða yngri geturðu keypt heila bók á hálfvirði. Bjartur bókaforlag býður nú öllum þeim sem eru 23 ára og yngri að kaupa glænýja kiljuútgáfu SKULDADAGA eftir Jökul Valsson á aðeins hálfvirði. Eina sem þarf að gera er að tölta til næsta bóksala og sýna skilríkin. Menning 27.3.2007 15:51
Kogga og fartölva fyrir bestu glæpasöguna „Kristinn glæpaforingi hér,” svarar dularfull rödd þegar blaðamaður Fréttablaðsins slær inn tiltekið númer á símtækið sitt Menning 27.3.2007 08:45
Rætt um Bjólf og Jónas Bandaríska sendiráðið gengst fyrir heimsókn prófessorsins Dick Ringler hingað til lands en hann mun halda fyrirlestra í Háskóla Íslands á morgun og á þriðjudag. Ringler er prófessor emeritus við Wisconsin-háskóla í Madison, en þar kenndi hann forníslensku og norræn fræði í rúm þrjátíu ár. Hann er enn fremur heiðursdoktor við Háskóla Íslands. Menning 25.3.2007 13:00
Dóttir vísar veginn Í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg standa nú yfir yfirlitssýningar á verkum Jóns Engilberts og Jóhanns Briem. Í dag kl. 14 leiðir dóttir þess fyrrnefnda, Greta Engilberts, gesti safnsins um sýningu föður síns og ræðir um verk hans og lífshlaup. Menning 25.3.2007 08:00
Madonna í H&M og á eBay Í gær var byrjað að selja tískulínu hannaða af Madonnu í verslunum H&M. Nú þegar hefur mikið af fötunum ratað á uppboðsvefinn eBay. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Madonna og H&M eru í samstarfi því verslunin klæddi hana, hljómsveit hennar og dansara á Confessions Tour tónleikaferðalagi hennar í fyrra. Menning 23.3.2007 14:21