Lífið
Ásdís Rán og Herbert Guðmunds glæsileg á frumsýningu
Mætingin var þrusugóð í Háskólabíói í gærkvöldi þegar tveir fyrstu þættirnir af spennu þáttaröðinni Reykjavík Fusion voru frumsýndir. Stemningin í salnum var frábær og óhætt að segja að þættirnir lofi góðu.
Sveppi kominn í Púðursykur: „Vettvangur sem ég hef ekki farið inn á áður“
Leikarinnn og grínistinn Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, hefur bæst við uppistandshópinn Púðursykur og mun þreyta frumraun sína í uppistandi með hópnum í kvöld.
Stofnandi Omnom selur hönnunarhús í Akrahverfinu
Óskar Þórðarson, einn stofnenda súkkulaðiverskmiðjunnar Omnom, og eiginkona hans Marta Nowosad, hafa sett fallegt raðhús við Byggakur í Akralandi í Garðabæ á sölu. Húsið er 229 fermetrar að stærð á tveimur hæðum. Ásett verð er 209 milljónir.
Sló sér upp með báðum á mótinu og endaði með sigurvegaranum
Sundfatamódelið Brooks Nader er sögð hafa deitað bæði Carlos Alcaraz og Jannik Sinner meðan á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis stóð. Þeir spiluðu til úrslita á mótinu en Alcaraz virðist hafa unnið tvöfalt, bikarinn og hjarta módelsins.
Hollendingar bætast í sniðgönguhópinn
Hollendingar hafa nú bæst í hóp þeirra sem segjast munu sniðganga Eurovision sem fram fer í Vín í Austurríki á næsta ári, verði Ísraelum heimilt að taka þátt.
Læknirinn með risa heimasmíðaðan pizzakofa í garðinum
Læknirinn Ragnar Freyr Ingvarsson er með stóran heimasmíðaðan pizza kofa í garðinum.
2222 dagar sem betri útgáfa af sjálfum sér
Tónlistarmaðurinn Gauti Þeyr Másson, jafnan þekktur sem Emmsjé Gauti, fagnaði í gær 2222 dögum án áfengis, sem samsvarar rúmlega sex árum.
„Við erum eiginlega gangandi kraftaverk“
„Minn stærsti ótti í lífinu var að fæða barn en hef nú yfirstigið það. Mér finnst konur alveg magnaðar. Við berum börnin okkar í níu mánuði, fæðum þau, og síðan tekur við brjóstagjöf. Við erum eiginlega gangandi kraftaverk,“ segir hin 33 ára Svanhildur Heiða Snorradóttir.
Síðasta vígið fallið: „Við erum búnir að ræða þetta í 22 ár“
Ölstofa Kormáks og Skjaldar hefur komið fyrir sjónvarpi þar sem áður var krítartafla með bjórverði. Eigendur létu verða af því eftir að hafa rætt málið í 22 ár. Einhvern veginn verði að halda kúnnum í húsi þegar áfengisgjald hækkar stöðugt. Ölstofan sé þó ekki að breytast í sportbar.
Óttar selur glæsiíbúð í Garðabæ
Óttar Pálsson, hæstaréttarlögmaður og einn af eigendum lögfræðistofunnar Logos, hefur sett glæsilega íbúð við Löngulínu í Garðabæ á sölu. Íbúðin er á efstu hæð með fallegu sjávarútsýni. Ásett verð er 124,9 milljónir.
Guðlaugur Þór í klandri með klukkuna
Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins pirraðist í pontu Alþingis í dag undir umræðu um fjárlagafrumvarpið þegar klukkan þingsalnum, sem gefur ræðutíma þingmanna til kynna, klikkaði á meðan hann var að tala.
Brynja og Lil Curly ástfangin í draumkenndu fríi
Áhrifavaldarnir Brynja Bjarnadóttir Anderiman og Arnar Gauti Arnarsson, betur þekktur sem Lil Curly, eru nýkomin heim úr fríi í Frakkland þar sem þau nutu sólarinnar í ævintýralegu umhverfi. Lífið virðist leika við þau!
Ragnhildur Steinunn snýr aftur á hvíta tjaldið
Það var margt um manninn á forsýningu grínþáttaraðarinnar Brjáns í Sambíóunum Egilshöll í gærkvöldi. Áhorfendur virtust afar hrifnir og ómuðu hlátrarsköll um salinn.
Birti bónorðið í Bændablaðinu
„Óska eftir hönd Guðrúnar Vöku Steingrímsdóttur: Elsku Guðrún mín, viltu giftast mér? Þinn Freyr Snorrason.“
Svona verður Moulin Rouge í Borgarleikhúsinu
Moulin Rouge er á leið á svið í Borgarleikhúsinu. Sindri Sindrason fór og fékk að vita allt um málið í Íslandi í dag í vikunni.
Tugmilljóna trúlofunarhringur ofurfyrirsætu vekur athygli
Sænska ofurfyrirsætan Elsa Hosk og breski athafnamaðurinn Tom Daly eru trúlofuð, tíu árum eftir að þau byrjuðu saman. Hosk greindi frá tímamótunum með fallegri myndafærslu á Instagram í gær, þar sem meðal annars mátti sjá trúlofunarhring hennar sem er stærðarinnar demantshringur frá skartgripafyrirtækinu Tiffany & Co.
Uppfyllti loksins loforð um ísbjörn í Reykjavík
Nú fimmtán árum eftir að Besti flokkurinn lofaði Reykvíkingum ísbirni í Húsdýragarðinn hefur Jón Gnarr staðið við stóru orðin á vissan hátt og flutt heim með sér stóra og mikla hauskúpu af hvítabirni úr heimsókn á Grænlandi. Ekki er ákveðið hvar hauskúpan verður geymd.
Áslaug Arna situr tíma hjá Hillary Clinton
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, situr tíma hjá Hillary Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í MPA-námi sínu við Columbia-háskóla þessa önn.
„Eiginlega vandræðalega mikil áhrif“
Einn áhrifamesti listamaður samtímans segir verk Halldórs Laxness hafa haft ómæld áhrif á sín verk. Hún er 89 ára gömul en eldhress og hvergi nærri hætt að vinna. Hún útilokar ekki að skapa fleiri verk út frá sögum Laxness.
Er í lagi að fróa sér yfir nektarmyndum af fyrrverandi?
Kannast þú við það að hafa sent maka eða bólfélaga mynd af þér? Stundum eru þetta hversdagslegar sjálfur sem við sendum til að deila augnablikinu. Stundum eru þetta kynferðislegar myndir sem eiga að kveikja á löngun eða kynferðislegum áhuga. Í báðum tilfellum erum við að treysta einhverjum fyrir líkama okkar.
„Pabbi minn gaf okkur saman“
„Frá fyrsta kvöldinu sem við hittumst náðum við strax ótrúlega vel saman. Mér finnst dýrmætt að hafa fundið bæði framtíðar eiginmann minn og besta vin þetta kvöld,“ segir hin nýgifta Ásgerður Diljá Karlsdóttir, markaðsstjóri og listrænn stjórnandi Aurum, sem gekk að eiga sinn heittelskaða Sólon Breka Leifsson, fyrrverandi knattspyrnumanni og eiganda Sólbón, í byrjun ágústmánaðar.
Litrík og ljúffeng búddaskál
Það jafnast fátt á við næringaríkar og bragðgóðar máltíðir sem gleðja bæði augað og bragðlaukana. Hér er á ferðinni uppskrift að Tempeh búddaskál sem samanstandur af fjölbreyttu grænmeti, próteini, korni og ljúffengri sósu.
Unnsteinn Manuel og Ágústa selja hvíta miðbæjarperlu
Tónlistar- og sjónvarpsmaðurinn Unnsteinn Manuel Stefánsson og vöruhönnuðurinn Ágústa Sveinsdóttir, hafa sett fallega hæð við Grettisgötu í miðborg Reykjavíkur á sölu. Ásett verð er 112,9 milljónir.
Ekki allt sem sýnist í Coldplay-skandalnum
Fyrrverandi eiginmaður Kristinar Cabot, mannauðsstjóra tæknifyrirtækisins Astronomer, sem var gripin glóðvolg í faðmlögum með Andy Byron, forstjóra Astronomer, á Coldplay-tónleikum í júlí, segir þau þegar hafa ætlað að skilja fyrir fjölmiðlafárið.
Umdeild mormónadrottning nýja piparjónkan
Raunveruleikastjarnan Taylor Frankie Paul skaust upp á stjörnuhimininn fyrir nokkrum árum í þáttum um mormónaskvísur í Utah fylki í Bandaríkjunum. Nú mun frægðarsól hennar skína enn skærar því hún var nýverið kynnt inn sem nýjasta piparjónkan eða The Bachelorette í samnefndum raunveruleikaþáttum.
Leifur Andri og Hugrún selja íbúðina í Garðabæ
Knattspyrnukappinn Leifur Andri Leifsson, og Hugrún Elvarsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins og stjórnarmeðlimur FKA, hafa sett íbúð sína við Maríugötu í Urriðaholti í Garðabæ á sölu.
Á leið á heimsmeistaramót í drifti: „Íslendingarnir eru til, við getum þetta líka“
Íslenskur akstursíþróttamaður sem er á leið á heimsmeistaramótið í drifti í Lettlandi segir íþróttina stækka á hverju ári hér á landi. Markmið hans á mótinu sé að sýna að Íslendingar í sportinu séu til.
Endurheimti lífsgleðina við gerð ostabakkanna
„Í hvert skipti sem ég er að vinna að þessu þá fæ ég hlýtt í hjartað, því í gegnum þetta náði ég að finna ljósið mitt aftur,“ segir lífskúnstnerinn Edda Mjöll Karlsdóttir sem rekur veitingaþjónustuna Eddu-veislu. Eftir erfiða tíma fór þetta ástríðuverkefni Eddu óvænt á flug en blaðamaður ræddi við hana um ævintýrið.
Ástrós Trausta, John Legend og Bæjarins Beztu í Kjós
Ástrós Traustadóttir, dansari og raunveruleikastjarna, og kærasti hennar, Adam Helgason, matgæðingur, voru viðstödd brúðkaup nígerísku hjónanna Temi Otedola og Oluwatosin Oluwole Ajibade hér á landi í byrjun ágúst.
Afar ólíklegt að Ísland taki þátt í Eurovision verði Ísrael með
Verkefnastjóri hjá RÚV telur afar ólíklegt að Ísland taki þátt í Eurovision á næsta ári verði Ísrael með. Ótti hafi gripið um sig á keppninni í ár þegar það leit út fyrir að Ísrael gæti unnið keppnina.