Innlent „
49 50 51 52 53 54 55 56 57 … 334 ›
„Kveður við nýjan tón í samstarfinu sem er efnislega lokið“ Prófessor í stjórnmálafræði segir fyrstu ræðu Svandísar Svavarsdóttur sem formaður Vinstri grænna geta bent til þess að kosningar séu nær en marga gruni. VG hafi tekið efnislega ákvörðun um að halda stjórnarsamstarfinu ekki áfram, þrátt fyrir að óvíst sé hvenær kosið yrði. Innlent 6.10.2024 12:05
Stjónmálafræðingur segir kosningar nær en marga gruni Prófessor í stjórnmálafræði segir fyrstu ræðu Svandísar Svavarsdóttur sem formaður Vinstri grænna geta bent til þess að kosningar séu nær en marga gruni. VG hafi tekið efnislega ákvörðun um að halda stjórnarsamstarfinu ekki áfram. Innlent 6.10.2024 11:41
Nýr formaður VG, seðlabankastjóri og ástandið á Gaza Sprengisandur er á sínum stað klukkan 10 þar sem Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi ræðir samfélagsmálin við góða gesti. Innlent 6.10.2024 09:43
Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Flugáhöfn Air Atlanta á hringferð um Afríku upplifði það að sjá ljón tvívegis ráðast á og drepa dýr í þjóðgarði skammt frá hóteli sínu. Áhöfnin var í hvíldarstoppi í borginni Nairobi í Kenýa. Innlent 6.10.2024 07:47
Handtekinn eftir hliðarkeyrslu á talsverðum hraða Lögreglan var kölluð til vegna umferðarslyss á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Einum bíl hafði verið ekið í hlið annars bíls á talsverðum hraða, en einn var talinn slasaður á vettvangi. Innlent 6.10.2024 07:28
Vilhjálmur Hjálmarsson kjörinn varaformaður ÖBÍ Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD-samtakanna, var kjörinn varaformaður Öryrkjabandalags Íslands á aðalfundi samtakanna í Reykjavík í dag. Innlent 5.10.2024 22:21
„Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Tveggja ára drengur datt ofan í vatnsbrunn í Garðabænum þegar hann gekk yfir brunnlok sem var ekki almennilega fest. Til allrar lukku var drengurinn ekki einn þegar hann datt og slapp sömuleiðis óskaddaður. Innlent 5.10.2024 21:55
Bátarnir frá eldgosinu í Vestmannaeyjum málaðir á vita Allir bátarnir, sem fluttu Eyjamenn til landsins í eldgosinu 1973 hafa verið málaðir á vita í Vestmannaeyjum en vitinn vekur alltaf mikla athygil ferðamanna. Innlent 5.10.2024 21:04
Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? Ný mállýska hefur náð fótfestu meðal ungs fólks á Íslandi. Stofnanir og fyrirtæki keppast við að gera grín að orðunum, við misgóðar undirtektir. Innlent 5.10.2024 20:40
„Þegar hægrið fær að ráða ferðinni óheft og án alls taumhalds fer illa“ Svandís Svavarsdóttir, nýkjörinn formaður Vinstri grænna, sagði flokkinn aldrei hafa verið jafnmikilvægan. Ef hægrið fengi að ráða ferðinni færi illa fyrir kerfum þjóðarinnar. VG muni aldrei samþykkja grimman niðurskurð auðvaldsins á samneyslunni og muni berjast gegn einkavæðingu heilbrigðiskerfisins. Innlent 5.10.2024 19:28
Fagna löngu tímabærri breytingu Formaður Samtakanna '78 fagnar mjög reglugerðarbreytingu sem mun gera samkynhneigðum körlum kleift að gefa blóð. Hún segir breytinguna löngu tímabæra en nú þegar hún sé gengin í gegn sé farsælla að horfa fram á veginn fremur en að dvelja við fortíðina. Innlent 5.10.2024 19:06
Átök í miðausturlöndum, ný forysta VG og mállýska unga fólksins Beirút, höfuðborg Líbanon, er líkt við stríðssvæði. Ísraelsmenn og Hezbollah samtökin hafa gert árásir á báða bóga á landamærunum í dag á sama tíma og fólk á Gasasvæðinu er hvatt til að flýja. Lögregla þurfti að hafa afskipti af mótmælendum í Reykjavík á samstöðufundi fyrir Palestínu. Innlent 5.10.2024 18:06
Mótmælendur hindruðu för lögreglubíls í forgangsakstri Fólk í mótmælagöngu gekk í veg fyrir lögreglubíl sem var í forgangsakstri á leið á vettvang harðs áreksturs í Hlíðunum. Fólkið gerði í því að stöðva för lögreglu að sögn varðstjóra. Innlent 5.10.2024 17:56
Svandís og Guðmundur Ingi nýir leiðtogar Vinstri grænna Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur verið kjörin formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra var kjörinn varaformaður. Innlent 5.10.2024 16:23
Málningu kastað og ryskingar við sendiráðið Mótmælendur sem kröfðust aðgerða í málefnum Palestínu fyrir utan bandaríska sendiráðið við Engjateig skvettu málningu á vegg sendiráðsins fyrr í dag. Þá virðist hafa komið til smávægilegra átaka milli lögreglu og mótmælenda. Innlent 5.10.2024 16:13
Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum Matvælaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Matvælastofnunar um að hafna innflutningi á hundi til landsins. Eigandi hundsins flutti hann til landsins, en vildi meina að ekki væri um eiginlegan innflutning að ræða þar sem hann væri að koma aftur heim til Íslands. Innlent 5.10.2024 14:41
Biskup Íslands predikar í Vík á 90 ára afmæli kirkjunnar Það iðar allt af lífi og fjöri í Vík í Mýrdal um helgina en þar fer fram Regnboginn 2024, sem er menningarhátíð fyrir íbúa og gesti þeirra. Einn af hápunktum helgarinnar er heimsókn biskups Íslands til Víkur á morgun til að predika á 90 ára vígslu- og afmælishátíð Víkurkirkju. Innlent 5.10.2024 13:16
Erfitt að setja tölu á hve margir vilji stjórnarslit Fjölmargir tóku til máls þegar rætt var um ríkisstjórnarsamstarfið á Landsfundi VG sem nú fer fram. Á morgun verður tillaga um stjórnarslit afgreidd en þingflokksformaðurinn segir erfitt að segja til um hversu margir séu fylgjandi tillögunni. Innlent 5.10.2024 12:20
Harður þriggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Þriggja bíla árekstur varð til þess að einn bílanna valt nærri Hólmi við Suðurlandsveg á tólfta tímanum í dag. Þrír voru fluttir á slysadeild. Innlent 5.10.2024 11:49
Landsfundur ræðir stjórnarslit og nýjum reglum um blóðgjöf fagnað Fjölmargir tóku til máls þegar rætt var um ríkisstjórnarsamstarfið á Landsfundi VG sem nú fer fram. Á morgun verður tillaga um stjórnarslit afgreidd en þingflokksformaðurinn segir erfitt að segja til um hversu margir séu fylgjandi tillögunni. Innlent 5.10.2024 11:42
Tveir stórir skjálftar í Bárðarbunguöskjunni Tveir stórir skjálftar urðu í Bárðarbunguöskjunni í dag. Skjálftarnir urðu um hálfellefuleytið. Sá fyrri var 3.7 að stærð og sá sem fylgdi á eftir var 3.9. Innlent 5.10.2024 11:33
Ríkisstjórnarflokkarnir mælast með tuttugu prósenta fylgi Ríkisstjórnarflokkarnir mælast sameiginlega með tuttugu prósenta fylgi í nýjustu könnun Prósents. Innlent 5.10.2024 08:54
Þorgerður Katrín: Enginn ráðskonurass undir fólki í Viðreisn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar er keppniskona með mikla reynslu af stjórnmálum og er kominn í hlaupaskóna fyrir næstu alþingiskosningar. Hún segir engann „ráðskonurass undir fólki í Viðreisn," sem taki almannahagsmuni fram yfir sérhagsmuni. Þegar Benedikt Jóhannesson, aðalhvatamaður að stofnun Viðreisnar og fyrsti formaður flokksins, sagði af sér formennskunni aðeins sautján dögum fyrir kosningarnar 2017, stökk Þorgerður Katrín upp í brú á þessu nýsjósetta skipi í ólgusjó íslenskra stjórnmála og kom því í höfn. Innlent 5.10.2024 08:00
Tveir reyndust í skotti bíls Lögreglan stöðvaði ökumann í miðbæ Reykjavíkur í nótt en bíll hans reyndist vera með of marga farþega. Tveir voru í farangursrými bílsins. Innlent 5.10.2024 07:32
Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli Embætti héraðssaksóknara hefur ekki mannafla til þess að halda úti rannsókn á ólöglegu samráði Eimskipa og Samskipa á sama tíma og möguleg brot nálgast það að fyrnast. Sex starfsmönnum embættisins var sagt upp í fyrra vegna niðurskurðarkröfu stjórnvalda. Innlent 5.10.2024 07:03
Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Félagasamtökin Öfgar og Hagsmunasamtök brotaþola boða til kertavöku 9. október næstkomandi til minningar um konur sem hafa látið lífið vegna afleiðinga kynbundins ofbeldis. Innlent 4.10.2024 23:47
Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Varaformannsefnin tvö í Vinstri grænum eru sammála um að verði tillaga um stjórnarslit samþykkt á landsfundi flokksins geti nýkjörin forysta ekki annað en slitið stjórnarsamstarfinu. Innlent 4.10.2024 23:13
Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Starfsfólk veitingastaðarins Ítalíu gekk í dag inn á skrifstofur Eflingar, til að krefjast þess að stéttarfélagið léti af aðgerðum sínum í garð staðarins. Formaður Eflingar segir af og frá að látið verði af aðgerðum vegna launaþjófnaðar, sem eigandi Ítalíu segir ekki eiga stoð í raunveruleikanum. Innlent 4.10.2024 21:16
Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Meðlimur í orlofsnefnd húsmæðra mótmælir áformum þingmanna Sjálfstæðisflokksins um að afnema lög um orlof húsmæðra og segir að það yrði skerðing á lífsgæðum fjölmargra kvenna. Innlent 4.10.2024 21:02
Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, felldi Þórarin Eyfjörð, formann Sameykis, í kjöri um 1. varaformann BSRB á þingi bandalagsins í dag. Þórarinn heldur að ákveðnir þingfulltrúar hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu. Innlent 4.10.2024 19:20