Innlent
214 215 216 217 218 219 220 221 222 … 334 ›
Funda stíft og reyna að semja áður en Katrín biðst lausnar Leiðtogar ríkisstjórnarflokkanna halda áfram að funda um framtíð stjórnarsamstarfsins í dag. Leiðtogarnir funduðu fram á kvöld í gær eftir stíf fundahöld bróðurpart dagsins. Innlent 7.4.2024 10:34
Halla Hrund býður sig fram Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri ákvað um páskana að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. Innlent 7.4.2024 10:01
Vaktin: Katrín situr áfram í bili Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundaði með forseta Íslands og baðst lausnar. Hún mun sitja áfram í starfsstjórn. Innlent 7.4.2024 09:37
Deildarmyrkvi á sólu á morgun Á morgun, mánudaginn 8. apríl, mun sjást deildarmyrkvi á sólu frá öllu landinu, ef veður leyfir. Frá Reykjavík sést allur myrkvinn. Tunglið kemur til með að hylja um og yfir fjörutíu prósent sólarinnar frá Íslandi séð en í Mexíkó, Bandaríkjunum og Kanada verður almyrkvi. Innlent 7.4.2024 09:34
Efnahagsmálin, Katrín mætir og staðan á Gasa Ákvörðun forsætisráðherra um að gefa kost á sér í komandi forsetakosningum verður rædd á Sprengisandi í dag. Sérfræðingar kryfja pólitískar afleiðingar og Katrín stendur fyrir máli sínu. Innlent 7.4.2024 09:31
Stærðarinnar listaverk komið á sinn stað Stærðarinnar listaverk er risið við aðalinngang Smiðju, nýrrar skrifstofubyggingar Alþingis. Innlent 7.4.2024 08:51
Forgangsakstur æfður á Suðurlandi Þjálfun í forgangsakstri lögreglubíla er mjög mikilvægur í starfi lögreglunnar segir lögreglumaður á Suðurlandi en þar var verið að halda forgangsaksturs æfingu í þeim tilgangi að sjá hvað gekk vel og hvað þarf að laga og bæta úr. Innlent 7.4.2024 08:06
Færri en fimm dauðsföll á ári vegna mistaka Landlæknir segir að þó að yfir níutíu dauðsföll hafi verið tilkynnt sem alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu síðustu ár hafi greining embættisins leitt í ljós að þau séu miklu færri. Kvörtunum og athugasemdum til embættisins hefur fjölgað mikið síðustu ár og getur tekið allt að fjögur ár að vinna úr þeim. Innlent 7.4.2024 08:00
Fór út með hundinn og var rændur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eftir að tveir menn réðust á mann sem var út að ganga með hundinn sinn og rændu hann verðmætum. Innlent 7.4.2024 07:18
Skiptar skoðanir á útspili Katrínar Skiptar skoðanir eru á útspili Katrínar Jakobsdóttur fráfarandi forsætisráðherra í tengslum við forsetaframboð hennar. Einhverjir hlakka til að kjósa hana meðan aðrir saka hana um ábyrgðarleysi Innlent 6.4.2024 22:36
Fólk á Austfjörðum sleppi því að vera á ferðinni Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi fundaði fyrir skemmstu með Veðurstofu og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum. Gert er ráð fyrir talsverðri úrkomu í nótt. Búið er að rýma svæði á Seyðisfirði og Neskaupstað. Innlent 6.4.2024 21:13
Katrín pakkar saman Katrín Jakobsdóttir fráfarandi forsætisráðherra og forsetaframbjóðandi pakkaði eigum sínum á skrifstofu forsætisráðherra fyrr í dag. Innlent 6.4.2024 20:36
„Þau eru að rífast um forsætisráðherrastólinn“ Forystumenn ríkisstjórnarflokkanna hafa fundað stíft í dag um framtíð stjórnarinnar vegna forsetaframboðs Katrínar Jakobsdóttur. Formaður flokks fólksins segir að um slag um forsætisráðherrastólinn sé að ræða. Formaður Miðflokksins furðar sig á hve óundirbúnir stjórnarflokkarnir voru undir ákvörðun Katrínar. Innlent 6.4.2024 19:41
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Leiðtogar stjórnarflokkanna hafa fundað stíft í dag og halda þétt að sér spilunum. Við förum yfir það sem við vitum um stöðuna á viðræðunum í fréttum Stöðvar 2 klukkan hálf sjö á eftir, spyrjum fólk á förnum vegi út í stjórnmálaástandið og ræðum við Ingu Sæland og Sigmund Davíð Gunnlaugsson í beinni útsendingu. Innlent 6.4.2024 18:26
Rýma svæði á Seyðisfirði og Neskaupstað vegna snjóflóðahættu Veðurstofa Íslands hefur eflt til rýminga á tveimur svæðum á Seyðisfirði og einu á Neskaupstað frá klukkan tíu í kvöld vegna snjóflóðahættu. Innlent 6.4.2024 18:24
Lifði af sjóslys og tekur nú forsetaslaginn Eiríkur Ingi Jóhannsson sjómaður hefur gefið kost á sér til embættis forseta Íslands. Eiríkur öðlaðist landsfrægð árið 2012 þegar hann lifði af sjóslys undan ströndum Noregs og var valinn maður ársins á Bylgjunni og Rás 2. Hann segist tilbúinn að taka slaginn. Innlent 6.4.2024 17:59
Ákvörðun stjórnarflokkanna „alls ekki flókin“ Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði segir aðstæður sem upp eru komnar varðandi forsætisráðuneytið vera mjög óvanalegar. Þó séu fordæmi fyrir því að forsætisráðherra biðji lausnar fyrir sig án þess að biðja lausnar fyrir ráðuneyti sitt. Hann býst við að niðurstaða muni liggja fyrir áður en Katrín fer á Bessastaði. Innlent 6.4.2024 17:18
Hóteli lokað vegna starfsleyfisleysis Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði hóteli í austurborg Reykjavíkur í dag vegna þess að hótelið hafði ekki starfsleyfi. Innlent 6.4.2024 17:15
Halla Hrund boðar til fundar á Kirkjubæjarklaustri Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri mun tilkynna ákvörðun sína um mögulegt forsetaframboð á fundi á Kirkjubæjarklaustri klukkan 14 á morgun. Innlent 6.4.2024 15:15
Ríkisstjórnin hafi ekki nema sólarhring til að ráða ráðum sínum Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, er hugsi yfir því að fulltrúar stjórnarflokkanna virðist telja að þeir hafi góðan tíma til að ráða ráðum sínum um áframhald stjórnarsamstarfsins. Stjórnskipaninni samkvæmt hafi þeir ekki nema sólarhringinn til að leysa úr sínum málum. Innlent 6.4.2024 14:40
„Aldrei teflt í tvísýnu með öryggi gesta eða starfsfólks“ Fyrstu gestirnir í þrjár vikur dýfðu tánum í Bláa lónið klukkan tólf á hádegi. Framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu fagnar opnuninni og segir fyllsta öryggis gætt. Innlent 6.4.2024 13:23
Kenndi félagið við keppinautinn korter í gjaldþrot og borgaði ekki skatta Gunnar Örn Gunnarsson, eigandi og framkvæmdarstjóri Hópferða Ellerts ehf. hefur verið dæmdur til sex mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar og 46 milljóna króna fjársektar fyrir meiri háttar skattalagabrot. Eigandi helsta keppinautarins, Hópferða, heitir Ellert. Innlent 6.4.2024 13:20
Hefur litla trú á að ríkisstjórnin haldi út kjörtímabilið Leiðtogar stjórnarflokkanna hafa síðan í morgun fundað um framtíð ríkisstjórnarinnar. Formaður Flokks fólksins hefur litla trú á að ríkisstjórnin haldi út kjörtímabilið. Hún og fleiri í minnihlutanum geti hugsað sér að styðja ríkisstjórnina til að klára ákveðin mál í gegnum þingið í vor en hún vænti þess að þingkosningar verði í haust. Innlent 6.4.2024 11:58
Hádegisfréttir Bylgjunnar Framtíð ríkisstjórnarinnar er enn í óvissu en leiðtogar funda í dag. Formaður Flokks fólksins væntir þess að kosið verði í haust. Farið verður yfir stöðu mála í hádegisfréttum. Innlent 6.4.2024 11:56
Kæran felld niður Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fellt niður mál forystukvenna söfnunar fyrir brottflutning Palestínumanna af Gasa. Hæstaréttarlögmaður hafði kært þær fyrir að brjóta lög um opinberar fjársafnanir, mútugreiðslur til erlendra opinerra starfsmanna og fjármögnun hryðjuverka. Innlent 6.4.2024 10:54
Tímaspursmál hvenær hraun fari að renna til norðurs Aðeins gýs í einum gíg við Sundhnúka. Fjarað hefur út í syðri og smærri gígnum. Sá sem enn gýs í hækkar jafnt og þétt og gnæfir um 25 metra yfir hraunbreiðunni. Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands segir það vera tímaspursmál hvenær hraun fer að renna til norðurs. Innlent 6.4.2024 10:46
„Það er eins og þú þurfir að skera barnið þitt úr reipinu til að fá aðstoð“ „Fyrir okkur er þetta einfaldlega spurning um líf eða dauða. Við erum vanmáttug, við erum týnd og við erum alltaf í lausu lofti,” segja Adam Snær Atlason og Thelma Rut Hafliðadóttir, foreldrar þrettán ára stúlku sem glímir við flókinn og fjölþættan vanda. Þau hafa staðið í stappi undanfarin tíu ár við að fá viðeigandi úrræði fyrir dóttur sína hjá Akureyrarbæ en segjast koma allstaðar að lokuðum dyrum. Innlent 6.4.2024 08:37
Jakob Frímann tekur ekki forsetaslaginn Jakob Frímann Magnússon, Stuðmaður og þingmaður Flokks fólksins, mun ekki gefa kost á sér í komandi forsetakosningum. Hann kveðst styðja Katrínu Jakobsdóttur heilshugar í hennar framboði. Innlent 6.4.2024 08:18
Þórdís verði forsætisráðherra og Bjarni komi nýr inn Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, tekur eins og margir þátt í samkvæmisleiknum um það hver verði stólaskipan ríkisstjórnarinnar eftir helgi. Hún veðjar á að Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir verði forsætisráðherra og Bjarni Jónsson matvælaráðherra. Innlent 6.4.2024 07:51
Ógnaði fólki með hnífi og lét sig hverfa Talsverður erill var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Tilkynnt var um mann sem hafði hótað fólki með hnífi í hverfi 108. Sá var á bak og burt þegar lögreglu bar að garði. Innlent 6.4.2024 07:19