Innlent
191 192 193 194 195 196 197 198 199 … 334 ›
Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Sólarorka mun gegna lykilatriði í orkuskiptum segir formaður starfshóps umhverfisráðherra um bætta orkunýtni. Gera á kröfu um að nýbyggingar séu tilbúnar fyrir sólarsellur samkvæmt tillögum starfshópsins. Innlent 30.4.2024 13:21
Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Karlmaður á fimmtugsaldri var í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna síbrotagæslu, eða til 27. maí, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann var handtekinn á sunnudagskvöld eftir eftirför á ógnarhraða um Vogahverfi í Reykjavík. Innlent 30.4.2024 13:10
Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, og Eiríkur Ingi Jóhannson sjómaður eru gestir Pallborðsins í dag, sem sýnt verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14. Innlent 30.4.2024 13:00
Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur sett Birnu Ágústsdóttur, sýslumanninn á Norðurlandi vestra, tímabundið sem sýslumann á Vesturlandi, frá 1. júní næstkomandi til og með 31. maí 2025. Tilefni setningarinnar er beiðni Ólafs Kristófers Ólafssonar, sýslumanns, um lausn frá embætti. Innlent 30.4.2024 12:51
Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Prófessor í jarðeðlisfræði segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni við Grindavík. Innlent 30.4.2024 12:15
Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Í hádegisfréttum verður rætt við Bjarkeyju Olsen matvælaráðherra sem hefur nú fallist á að breyta umdeildu ákvæði í nýju frumvarpi um lagareldi sem hlotið hefur mikla gagnrýni síðustu daga. Innlent 30.4.2024 11:35
Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Matvælaráðherra vonar að sátt geti skapast um frumvarp hennar um lagareldi með því að gera rekstrarleyfi fyrirtækja í sjókvíaeldi tímabundin. Frumvarpið feli í sér stórfelldar úrbætur í umhverfisvernd; reglur verði skýrari og eftirlit meira. Innlent 30.4.2024 11:34
Quang Le hakkaður á Facebook Óþekktur aðili hefur komist yfir Facebook-aðgang veitingamannsins Quang Le, sem breytti nafni sínu í Davíð Viðarsson í fyrra. Viðkomandi hefur tekið sig til og birt skjáskot af ýmsum upplýsingum um veitingamanninn á Facebook-síðu hans. Innlent 30.4.2024 11:31
Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Kynning á skýrslu starfshóps Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, um aðra orkukosti sem fer fram á blaðamannafundi sem hefst klukkan 11 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi að neðan. Innlent 30.4.2024 10:30
Aukin virkni í gosinu Eldfjallafræðingur segir merki uppi um að virkni hafi aukist í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni í nótt. Landris í Svartsengi hafi stöðvast og kvika leiti nú beint upp á yfirborð úr dýpra kvikuhólfinu. Innlent 30.4.2024 09:40
Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Mannanafnanefnd hefur samþykkt eiginnöfnin Kaya, Flati, Láki, Jones og Arianna. Eiginnafnið Libya hlaut þó ekki náð fyrir augum nefndarinnar. Innlent 30.4.2024 08:30
Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Umboðsmaður Alþingis hefur sent ríkislögreglustjóra erindi þar sem hann óskar skýringa á nýju lögreglumerki sem hann segir hvergi að finna í reglugerðum. Innlent 30.4.2024 08:12
Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkrum útköllum í nótt vegna einstaklinga sem voru til vandræða og handtók meðal annars mann á Austurvelli sem var að áreita gesti á bar í nágrenninu með ógnandi hegðun. Innlent 30.4.2024 06:23
Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir að Ríkisútvarpið eigi ekki að láta það óátalið að yfirmaður tali til undirmanns síns af lítilsvirðingu gagnvart konum. Þarna vísar hún till máls Maríu Sigrúnar Hilmarsdóttur fréttakonu á RÚV sem hefur verið til mikillar umfjöllunar síðustu daga. Innlent 29.4.2024 23:27
Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Sólborg Guðbrandsdóttir rithöfundur og meðlimur í kosningateymi Baldurs Þórhallssonar segir hann þurfa að svara spurningum sem aðrir forsetaframbjóðendur þurfi ekki að svara vegna kynhneigðar sinnar. Innlent 29.4.2024 21:46
Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Lítið sem ekkert eftirlit er með ólöglegum veðmálasíðum sem auglýsa grimmt hér á landi í trássi við lög. Þetta segir formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn sem sakar stjórnvöld um sinnuleysi. Innlent 29.4.2024 20:28
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninganna getur hafist í síðasta lagi á fimmtudag. Landskjörstjórn úrskurðaði ellefu framboð til embættis forseta Íslands gildi í dag en framboð tveggja uppfylltu ekki skilyrði. Innlent 29.4.2024 20:04
Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Öll stéttarfélög sjómanna á Íslandi hafa samþykkt kjarasamning við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi. Innlent 29.4.2024 19:34
Vinstri græn aldrei með minna fylgi Vinstri græn mælast með 4,4 prósent fylgi í nýjum þjóðarpúlsi Gallup en fylgi flokksins hefur aldrei mælst minna í könnunum Gallup. Þá dregst stuðningur við ríkisstjórnina saman. Innlent 29.4.2024 18:53
Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Afbrotafræðingur segir margt í þáttunum Baby Reindeer ríma við það sem hún hefur lesið í afbrotafræðunum. Hún segir umsáturseinelti nokkuð algengt á Íslandi, að um tíu prósent íslenskra kvenna verði fyrir því á lífsleiðinni og og fimm prósent íslenskra karla. Innlent 29.4.2024 18:25
Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninganna hefst í síðasta lagi á fimmtudag. Tveir frambjóðendur heltust úr lestinni í dag og í kvöldfréttum Stöðvar 2 rýnir Heimir Már Pétursson í kannanir sem gefa misjafna mynd af stöðunni. Innlent 29.4.2024 17:49
„Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Viktor Traustason vill meina að meðmælalistar hans til þess að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands uppfylli öll skilyrði og furðar sig á því að Landskjörstjórn hafi komist að annari niðurstöðu. Innlent 29.4.2024 17:24
Hættur við að styðja Höllu Hrund Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður kom mörgum á óvart í morgun þegar hann lýsti yfir stuðningi við forsetaframboð Höllu Hrundar Logadóttur orkumálastjóra. Hann hefur nú dregið þann stuðning sinn til baka. Innlent 29.4.2024 16:45
Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar segir að lokunin sé vegna fjárskorts og hún megi heita skeytingarleysi gagnvart fólki með fíknisjúkdóm. Innlent 29.4.2024 16:16
Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Samninganefndir Sameykis og FFR, félags flugmálastarfsmanna ríkisins, hafa efnt til atkvæðagreiðslu um vinnustöðvun félagsfólks sem starfar hjá ISAVIA ohf. Verkfallsaðgerðirnar hefjast 9. maí verði þær samþykktar, en atkvæðagreiðslunni um þær lýkur 2. maí. Innlent 29.4.2024 15:24
Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Sigurður Reynir Gíslason, jarðefnafræðingur og rannsóknaprófessor við jarðvísindastofnun háskólans, hefur verið kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíunni (American Academy of Arts and Sciences) fyrir störf sín á sviði jarðvísinda. Innlent 29.4.2024 14:42
Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi á Glitstöðum í Borgarfirði tók sig til og skrifaði grein þar sem hún furðar sig á stjórnsýslu landsins. Hún fari sínu fram hverju sem tautar og raular. Innlent 29.4.2024 13:13
Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Grindvíkingar hafa neyðst til að henda gríðarlegum verðmætum undanfarið vegna búferlaflutninga. Að minnsta kosti hálf búslóðin fór í ruslið hjá einum þeirra. Annar segir að enginn vilji hirða dótið og Góði hirðirinn sé sprunginn. Innlent 29.4.2024 13:01
Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Í júní á þessu ári verða í fyrsta sinn veitt Vigdísarverðlaun til valdeflingar konum á vegum Evrópuráðsþingsins. Sérstök valnefnd mun tilkynna hverjir þrír eru tilnefndir til þeirra í ár á Alþingi þann 2. maí, eða á fimmtudag. Í verðlaun eru 60 þúsund evrur sem samsvara um níu milljónum íslenskra króna og nýr íslenskur verðlaunagripur. Innlent 29.4.2024 12:59
Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Sunna Valgerðardóttir, frétta- og dagskrárgerðarkona á RÚV, hefur verið ráðin til þingflokks Vinstri grænna. Hún hefur þegar látið af störfum hjá RÚV. Innlent 29.4.2024 12:06