Innlent
176 177 178 179 180 181 182 183 184 … 334 ›
Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Arnar Magnússon strandveiðisjómaður sem kom skipverja bátsins sem hvolfdi í nótt til bjargar, segir liggja í augum uppi að flutningaskip hafi klesst á bátinn. Sjálfur var hann nýkominn í land úr veiðitúr þegar Margrét Björk Jónsdóttir hitti hann í Sandgerði. Hann segir yndislegt að félagi hans til fjörutíu ára hafi komist lífs af. „Þetta fer ekki alltaf svona vel.“ Innlent 16.5.2024 14:18
Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Kærunefnd útlendingamála hafði í upphafi maí á þessu ári 920 óafgreidd mál á sínu borði. Vegna þessa mikla fjölda hefur meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar lagt til tímabundna breytingu á fyrirhuguðum breytingum á útlendingalögunum. Innlent 16.5.2024 13:39
Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórann í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna skemmda á þeirri lögn sem flytur vatn til neyslu og húshitunar í Vestmannaeyjum. Innlent 16.5.2024 12:32
Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Formaður bæjarráðs Grindavíkur segir að leiguverð sem fasteignafélagið Þórkatla hafi sett á seldar eignir í bænum alltof hátt - og alls ekki til þess fallið að fá fólk til að snúa aftur í bæinn. Hann reiknar ekki með að margir nýti sér úrræðið en fyrri eigendum húsanna býðst að leigja þau á 625 krónur fermetrann. Innlent 16.5.2024 11:42
Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Lögreglan rannsakar hvort erlent flutningaskip tengist því að að strandveiðibát hvolfdi norðvestur af Garðskaga í nótt. Manni var bjargað úr sjónum en litlu mátti muna að illa færi. Skemmdir á stefni flutningaskipsins benda til áreksturs. Innlent 16.5.2024 11:42
Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Ómar Torfason, meðlimur í Kirkju sjöunda dags aðventista, hefur kært stjórn kirkjunnar, þau Gavin Anthony, Jedel Oriel Ditta og Þóru Sigríði Jónsdóttur fyrir auðgunarbrot. Innlent 16.5.2024 11:39
Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Í hádegisfréttum verður rætt við upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar en Gæslan hefur stefnt flutningaskipi til hafnar í Vestmannaeyjum vegna gruns um að það hafi átt þátt í að strandveiðibátur sökk í gærkvöldi. Innlent 16.5.2024 11:36
Kvikusöfnunin áfram stöðug Kvikusöfnun undir Svartsengi hefur áfram haldist stöðug og eru taldar auknar líkur á nýju kvikuhlaupi og öðru eldgosi á næstu dögum. Líklegast er að gjósi á Sundhnúksgígaröðinni og er fyrirvari á eldgosi gæti orðið mjög stuttur Innlent 16.5.2024 11:23
Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í alþjóðlegri lögregluaðgerð á dögunum þar sem tekin var niður vefsíða, breachforums.is, sem var meðal annars notuð til að selja stolin gögn úr innbrotum í tölvukerfi. Innlent 16.5.2024 11:10
Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Vegagerðin hefur hafnað öllum tilboðum sem þeim bárust þeim í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði í vetur. Opnað var fyrir tilboð þann 30. apríl, en þrjú tilboð bárust sem öll voru töluvert yfir kostnaðaráætlun. Til stendur að bjóða tilboðsaðilum til samningaviðræðna, en núgildandi samningur rennur út 30. ágúst 2024. Innlent 16.5.2024 10:46
Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun Einar Þorsteinsson borgarstjóri segir að það sé ekki rétt að það sé til skoðunar hjá borginni að taka upp gjaldskyldu á notkun nagladekkja í höfuðborginni. Innlent 16.5.2024 10:45
„Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Sigurði Ágúst Sigurðssyni, formanni Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB), var hafnað sem stjórnarmanni á ársfundi Landssambands eldri borgara (LEB) i vikunni. Þetta er líklegt að dragi dilk á eftir sér. Það hriktir í stoðum landsambandsins. Innlent 16.5.2024 10:32
Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Utanríkisráðuneytið hefur lagt til að opnað verði sendiráð Íslands í Madríd á Spáni. Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður Pírata, segir ákall frá Íslendingum sem þar búa og þangað ferðast um að þeim sé betur sinnt. 25 Íslendingar létust á Spáni 2022 og þúsundir búa þar. Innlent 16.5.2024 08:53
Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Dregið hefur úr skjálftahrinunni við Sýlingarfell sem hófst í gærkvöldi. Innlent 16.5.2024 07:18
Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Mikil mildi var að rúmlega fertug kona slasaðist ekki lífshættulega þegar ekið var á kyrrstæðan bíl hennar á Suðurlandsvegi síðdegis á mánudag. Konan var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar sem fyrir hendingu var í loftinu á æfingu þegar útkallið barst. Innlent 16.5.2024 07:00
Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Starfsmenn fasteignafélagsins Þórkötlu hafa yfirfarið og samþykkt kaup á 660 húseignum í Grindavík og undirritað 471 kaupsamning. Félaginu hefur borist samtals 781 umsókn um kaup á íbúðarhúsnæði í bænum. Innlent 16.5.2024 06:44
Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Manni var bjargað á þriðja tímanum í nótt þegar strandveiðibátur sökk norðvestur af Garðskaga. Viðbragðsaðilar voru kallaðir út vegna málsins en það var skipstjóri annars strandveiðibáts sem bjargaði manninum úr sjónum. Innlent 16.5.2024 06:23
Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Nú þegar fyrstu úthlutun leikskólaplássa er lokið í Reykjavík lítur út fyrir að um 800 börn verði á biðlista þann 1. september. Af þeim eru 548 þeirra 12 til 17 mánaða og 255 18 mánaða og eldri. Inn í þessum tölum eru 40 börn sem bíða en eru með pláss á sjálfstætt starfandi leikskóla. Innlent 15.5.2024 23:07
Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Vatnalíffræðingur segir ekkert óvenjulegt við mýflugna„faraldur“ sem herjað hefur á íbúa Vatnsendahverfis í Kópavogi undanfarna daga. Þróunin sé þvert á móti jákvæð, enda sýni hún fram á heilbrigt vistkerfi. Innlent 15.5.2024 21:30
Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Veðurstofa Íslands hefur mælt sjö smáskjálfta við austanvert Sýlingarfell, þar sem kvikuhlaup hafa orðið, í kvöld. Náttúruvársérfræðingur segir vel fylgst með stöðunni en viðbragð hafi ekki verið aukið, enn sem komið er. Innlent 15.5.2024 20:28
„Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði „Íslenska með hreim er tákn um hugrekki“, segir meðal annars í nýju appi, „Bara tala“, sem kennir íslensku á einfaldan og skemmtilegan hátt. Tvö hundruð manna fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu hefur nýtt sér úrræðið með mjög góðum árangri. Innlent 15.5.2024 20:16
Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Píratar gera verulegar athugasemdir við frumvörp dómsmálaráðherra um útlendinga og lögreglu sem stjórnarflokkarnir leggja áherslu á að verði afgreidd á yfirstandandi vorþingi. Formaður allsherjar- og menntamálanefndar segist ekki deila áhyggjum Pírata. Bæði frumvörp færi reglur hér nær því sem þekkist á Norðurlöndunum. Innlent 15.5.2024 19:47
Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Um 77 prósent þjóðarinnar eru hlynnt því að dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi, um fimmtán prósent eru hvorki hlynnt né andvíg og aðeins um sjö prósent eru andvíg. Innlent 15.5.2024 18:40
Umferðarslys vegna símanotkunar, banatilræði að forsætisráðherra og mýflugnafaraldur Rekja má fjórðung umferðarslysa til símanotkunar undir stýri. Allt að 200 slasast hérlendis vegna þessa á hverju ári. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 15.5.2024 18:01
Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn „Jú, eins og ég sagði fyrir atvinnuveganefnd þingsins í gær og maður þarf að segja þetta: Þetta er svívirðilegustu náttúruspjöll sem farið hefur verið með í gegnum sali Alþingis,“ segir Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur. Innlent 15.5.2024 17:09
Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins og talsmaður Heidelberg Cement, furðar sig mjög á yfirlýsingu Eggerts Þórs Kristóferssonar forstjóra First Water hf um að starfsemi á landeldi og mölunarverksmiðjunnar geti ekki farið saman. Innlent 15.5.2024 15:52
Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Hæstiréttur hefur viðurkennt að starfsmaður átti að fá greitt fyrir þann tíma sem hann varði í flugvélum í vinnuferð. Þar með staðfestir Hæstiréttur dóm Landsréttar. Innlent 15.5.2024 15:17
Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Jódís Skúladóttir, þingkona Vinstri grænna, hefur óskað eftir því að fulltrúar Útlendingastofnunar, kærunefndar útlendingamála og ríkislögreglustjóra komi á fund allsherjar- og menntamálanefndar til að ræða um brottvísun þriggja nígerískra kvenna í fyrradag. Konurnar hafa allar lýst því að vera þolendur mansals. Innlent 15.5.2024 15:00
Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Frá og með morgundeginum verða bókleg almenn ökupróf rafræn um allt land. Allir ökunemar munu því framvegis taka próf til B-réttinda í tölvu hjá prófamiðstöð Frumherja. Innlent 15.5.2024 14:57
Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Formaður Félags íslenskra heimilislækna fagnar því að heilbrigðisráðherra sýni í verki vilja til að koma til móts við lækna en vill fleiri og stærri skref. Á dögunum voru drög að reglugerðarbreytum um einföldun á fyrirkomulagi tilvísana fyrir börn birtar í samráðsgátt stjórnvalda. Innlent 15.5.2024 14:12