Formúla 1

Höfðu hendur í hári fjárkúgara Michael Schumacher
Lögreglan hefur handtekið tvo aðila fyrir að reyna að hafa pening af fjölskyldu Formúlu 1 goðsagnarinnar Michael Schumacher.

Verstappen sigraði í Kanada
Heimsmeistarinn Max Verstappen tryggði sér sigur í kanadíska kappakstrinum í Formúlu 1 er hann kom fyrstur í mark í kvöld.

Russell á ráspól á sama tíma og Verstappen
George Russell mun ræsa fremstur þegar kanadíski kappaksturinn í Formúlu 1 hefst á morgun.

Miklar breytingar framundan á bílum í Formúlu 1
Alþjóðakstursíþróttasambandið, FIA, hefur kynnt reglubreytingar á bílasmíðum í Formúlu 1 sem munu taka gildi árið 2026. Bílar verða smærri, léttari, liprari og munu ganga fyrir allt að helmings raforkuafli.

Perez framlengir og framtíð Sainz enn í lausu lofti
Sergio Perez, ökumaður Red Bull í Formúlu 1, skrifaði í gær undir nýjan tveggja ára samning við liðið.

Alpine framlengir ekki við Ocon eftir áreksturinn í Mónakó
Kappaksturslið Alpine í Formúlu 1 hefur ákveðið að framlengja ekki samning ökuþórsins Esteban Ocon sem varð valdur að harkalegum árekstri í Mónakó síðustu helgi.

Leclerc vann loksins í Mónakó
Charles Leclerc í liði Ferrari vann Formúlu 1 kappaksturinn í Mónakó í fyrsta sinn í dag.

Bíllinn fjarlægður með krana eftir harkalegan árekstur í Mónakó
Hlé var gert á Formúlu 1 kappakstrinum í Mónakó eftir tvo harkalega árekstra.

Fjölskylda Schumacher vann gervigreindarmálið
Þýska blaðið Die Aktuelle þarf að greiða fjölskyldu Michael Schumacher tugi milljóna króna í bætur eftir að fjölskyldan hafði betur gegn blaðinu í þýskum réttarsal.

Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met
Heimsmeistarinn Max Verstappen ræsir fremstur þegar ítalski kappaksturinn í Formúlu 1 fer af stað á morgun.

Hefur hjálpað Haas með glæfralegum akstri
Kevin Magnussen hefur byrjað tímabilið í Formúlu 1 af gríðarlegum krafti. Ef til vill fullmiklum krafti ef marka má fréttir þess efnis að hann gæti verið á leið í keppnisbann vegna fjöldi refsistiga.

Fimm ára bið á enda hjá Norris
Fimm ára bið breska ökuþórsins Lando Norris eftir sigri í Formúlu 1 mótaröðinni lauk í gær er hann bar sigur úr býtum í Miami kappakstrinum. Sterkt svar frá Norris sem hafði fengið á baukinn frá gagnrýnendum.

Loksins landaði Lando sigri í Formúlu 1
Lando Norris vann í kvöld sinn fyrsta Formúlu 1 kappakstur. Hann kom fyrstur í mark á meðan ríkjandi heimsmeistarinn Max Verstappen var í öðru sæti og Charles Leclert var þriðji.

Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1
Í gær bárust stórar fréttir úr heimi Formúlu 1. Adrian Newey, aðal hönnuðurinn að baki keppnisbílum Red Bull frá árinu 2006. Maðurinn sem er jafnan talinn vera heilinn að baki þeim þrettán heimsmeistaratitlum sem liðið hefur unnið síðan að hann gekk til liðs við það, er á förum í upphafi næsta árs.

Skilur af hverju fólk hættir að horfa á leiðinlega Formúlu 1
Lando Norris segist skilja ef fólk hættir að horfa á Formúlu 1 vegna yfirburða Max Verstappen.

Verstappen vann í Kína
Hollendingurinn Max Verstappen vann kínverska kappaksturinn í formúlu 1 í morgun og jók þar með forskot sitt í heimsmeistarakeppni ökumanna.

Verstappen átján sætum á undan Hamilton á ráspólnum á morgun
Heimsmeistarinn Max Verstappen verður enn á ný á ráspólnum í kínverska formúlu 1 kappakstrinum sem fer fram í fyrramálið.

Hamilton segir enn langt í það að hann hætti
Lewis Hamilton ætlar sér að keppa í formúlu 1 langt inn á fimmtugsaldurinn. Hann tekur Spánverjann Fernando Alonso sér til fyrirmyndar.

Verstappen aftur á sigurbraut eftir árekstur á fyrsta hring
Max Verstappen og Sergio Perez náðu sinni þriðju tvennu í fjórða kappakstri tímabilsins þegar þeir komu fyrstir í mark í Japanskappakstrinum í Formúlu 1.

Liðsfélagarnir fremstir eftir tímatökur í Japan
Max Verstappen verður á ráspól þegar Formúlu 1 keppnin í Japan fer fram í nótt. Kappaksturinn í nótt verður sýndur beint á Vodafone Sport.

Fjórfaldi heimsmeistarinn íhugar að hætta við að hætta
Sebastian Vettel, fjórfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, segist hafa íhugað það að snúa aftur í íþróttina eftir að hafa lagt kappaksturinn á hilluna árið 2022.

Eigandi Formúlu 1 festir kaup á MotoGP
Liberty Media, bandaríska fjölmiðlasamsteypan sem á Formúlu 1, hefur gengið frá kaupum á mótorhjólakappakstrinum MotoGP.

Verstappen efstur á óskalista Mercedes: Ummæli Toto kynda undir sögusagnir
Þrefaldi heimsmeistari ökumanna, Hollendingurinn Max Verstappen, er fyrsti maður á lista hjá Mercedes yfir þá ökumenn sem liðið vill fá til liðs við sig til að fylla upp í skarð Lewis Hamilton á næsta tímabili. Ummæli Toto Wolff, framkvæmdastjóra Formúlu 1 liðs Mercedes um Verstappen hafa vakið mikla athygli og virkað sem olía á eld orðróma.

Verstappen óvænt úr leik eftir örfáar mínútur og Ferrari fagnaði
Hlé varð á einokun heimsmeistarans Max Verstappen í Formúlu 1 kappakstrinum í nótt því hann varð að hætta keppni snemma í Ástralíkukappakstrinum. Carlos Sainz vann keppnina.

Getur ekki keppt í formúlu 1 af því að liðið gaf öðrum bílinn hans
Logan Sargeant mun ekki taka þátt í ástralska formúlu 1 kappakstrinum um helgina eftir mjög sérstaka ákvörðun hjá liðinu hans.

Forseti FIA hreinsaður af ásökunum um hagræðingu úrslita
Forseti alþjóðaakstursíþróttasambandsins (FIA), Mohammed Ben Sulayem, hefur verið hreinsaður af ásökunum um hagræðingu úrslita í kappökstrum í Sádi-Arabíu og Las Vegas á síðasta ári.

Stal senunni en vill meira
Þrátt fyrir að hafa ekki borið sigur úr býtum í Sádi-Arabíu kappaksturinum um síðastliðna helgi er óhætt að ungstirnið Oliver Bearman hafi komið, séð og sigrað á sinni fyrstu keppnishelgi í Formúlu 1.

Krefst ellefu milljarða króna í skaðabætur
Felipe Massa, fyrrverandi ökuþór í Formúlu 1 mótaröðinni, hefur stefnt Alþjóða akstursíþróttasambandinu (FIA), Formúlu 1 og Bernie Ecclestone fyrrverandi framkvæmdastjóra mótaraðarinnar og krefst því sem nemur rúmum ellefu milljörðum íslenskra króna í skaðabætur vegna skaða sem hann, sem ökuþór Ferrari árið 2008, kveðst hafa hlotið vegna Crashgate hneykslismálsins svokallaða.

Munu ekki standa í vegi fyrir Verstappen vilji hann fara
Forráðamenn Formúlu 1 liðs Red Bull Racing segjast ekki munu neyða þrefalda heimsmeistara sinn, ökumanninn Max Verstappen, til þess að vera áfram hjá liðinu út gildandi samning milli ökumannsins og liðsins sé það hans ósk að hverfa á braut.

Heimsmeistarinn á verðlaunapalli í hundraðasta sinn
Þrefaldi heimsmeistarinn Max Verstappen vann öruggan sigur í Formúlu 1 í dag er keppt var í Sádi-Arabíu. Með sigrinum kom hann sér á verðlaunapall í hundraðasta sinn á ferlinum.