Fréttir
95 96 97 98 99 100 101 102 103 … 334 ›
Óvenjulegt ef forseti féllist ekki á ósk um þingrof Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, gerir ráð fyrir að Halla Tómasdóttir, forseti, verði við bón hans um þingrof og að það væri afar óvenjulegt ef hún gerði það ekki. Það hversu fljótt þing verði rofið hafi áhrif á kjördag. Innlent 14.10.2024 09:22
Segir Svandísi aðeins eiga einn kost eftir „svipugöng niðurlægingar“ „Eftir það sem á undan er gengið, og eftir þau svipugöng niðurlægingar sem Bjarni og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins leiddu Svandísi í gegnum í atburðarrás gærdagsins, þá á Svandís því varla annan kost en þann að draga VG formlega út úr ríkisstjórninni.“ Innlent 14.10.2024 09:07
Ekki grunaður um að hafa ætlað að drepa Trump Manninum sem var handtekinn á kosningafundi Donalds Trump í Kalíforníu um helgina hefur nú verið sleppt úr haldi gegn tryggingu. Erlent 14.10.2024 08:55
Svona voru fundahöld forseta með formönnum flokka Formenn stjórnarandstöðuflokkanna funda með forseta Íslands hver á fætur öðrum í kjölfar fundar forseta með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra í morgun þar sem hann óskaði eftir þingrofi Innlent 14.10.2024 08:23
Vilja endurreist æru þeirra sem neituðu að berjast Fjölskyldur 20 manna sem voru fangelsaðir fyrir að neita að berjast fyrir yfirráðum Hollands á Indónesíu eftir seinni heimstyrjöldina krefjast þess að mennirnir verði hreinsaðir af sök. Erlent 14.10.2024 08:09
Fjórir létust og sjö særðust alvarlega í árás á ísraelska herstöð Fjórir hermenn Ísraelshers létust og sjö særðust alvarlega í drónaárás Hezbollah á herstöð nærri Binyamina í gær. Um var að ræða hefndarárás vegna árása Ísraels á Beirút á fimmtudag, þar sem 22 létu lífið. Erlent 14.10.2024 06:48
Líkamsárás með hníf og ölvaðir unglingar Einn var handtekinn í gærkvöldi eða nótt í kjölfar líkamsárásar þar sem hníf var beitt. Áverkar árásarþola eru sagðir hafa verið minniháttar en engar frekari upplýsingar um málið er að finna í yfirliti lögreglu. Innlent 14.10.2024 06:26
„Þriðja banatilræðinu“ gegn Trump afstýrt Maður sem var með tvö skotvopn og fjölmörg vegabréf í fórum sínum var handtekinn á kosningafundi Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, við Coachella-dal í Kaliforníu-ríki í Bandaríkjunum í gær. Erlent 13.10.2024 23:04
Hætt að hugsa um það sem liðið er og horfa fram á við Þingflokksfundi Framsóknarflokksins lauk rétt fyrir klukkan tíu í kvöld. Þar komu þingmenn Framsóknar saman og ræddu óvæntar vendingar dagsins og næstu skref í ljósi þess að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tilkynnti í dag að stjórnarsamstarfinu yrði slitið. Innlent 13.10.2024 22:43
„Ennþá í töluverðu óvissuástandi um framvinduna“ Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor lítur svo á að mál Yazans Tamimi og fjölskyldu hans hafi verið „þúfan sem velti hlassinu“ í aðdraganda stjórnarslita. Óvissuástand ríkir þó enn um framhaldið að mati sérfræðinga, en ákvörðun um að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu kom ekki á óvart. Innlent 13.10.2024 21:17
Rollubingó og hrútasýning á Flúðum Allir glæsilegustu hrútar í Hrunamannahreppi komu fram á hrútasýningu á Flúðum þar sem þeir voru þuklaðir í bak og fyrir til að finna út hver væri með bestu lærin, bakið og bringuna. Þá vakti rollubingó sýningarinnar mikla kátínu gesta. Innlent 13.10.2024 21:04
Svandís safnar sjálfboðaliðum: „Ég bið ykkur um aðstoð” Svandís Svavarsdóttir formaður VG hefur sent ákall til flokksmanna um að nú sé kosningabaráttan hafin og hvetur öll sem hönd geti lagt á plóg til að skrá sig sem sjálfboðaliða. Þetta kemur fram í bréfi sem stílað er til félaga í flokknum nú rétt fyrir átta í kvöld. Innlent 13.10.2024 20:24
Má gera ráð fyrir að Halla ræði við formenn allra flokka Það má gera ráð fyrir því að Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, muni funda með formönnum allra flokka Alþingis og Birgi Ármannssyni, forseta Alþingis, á morgun í kjölfar þess að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tilkynnti í dag að stjórnarsamstarfinu væri slitið og að boðað yrði til kosninga í nóvember. Innlent 13.10.2024 19:59
Bjarni hafi ákveðið „að henda inn handklæðinu” Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármálaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segir ákvörðun forsætisráðherra um að óska eftir þingrofi og boða kosningar hafa komið nokkuð á óvart. Sjálfstæðisflokkurinn hafi „kastað inn handklæðinu“ þótt hann telji sjálfur að stjórnarflokkarnir hefðu getað náð saman um mikilvæg mál til að halda áfram samstarfi. Þetta sagði Sigurður Ingi í kvöldfréttum Rúv. Innlent 13.10.2024 19:48
Vænlegast fyrir alla að þjóðin fái að kjósa Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hittir forseta Íslands klukkan níu í fyrramálið að óska eftir þingrofi sem hann vonast til að geti formlega átt sér stað á fimmtudag. Hann segir ágreiningsmálin í samstarfinu hafa verið orðin of mörg og alvarleg og því rétt að slíta stjórnarsamstarfinu. Innlent 13.10.2024 19:46
Framsókn hringi nú í allar auglýsingastofurnar „Þú getur rétt ímyndað þér hvort Framsóknarflokkurinn sé ekki að hringja í allar auglýsingastofurnar núna. Hvaða slagorð komið þið með fyrir okkur til að bjarga þessu. Það eru fundir hjá VG og Sjálfstæðisflokkurinn er bara að vona að þetta leysist fram til 30. nóvember. Þetta verða áhugaverðir dagar framundan“ Innlent 13.10.2024 19:33
Framsóknarflokkurinn fundar í kvöld Þingflokkur Framsóknarflokksins fundar klukkan átta í kvöld til að bregðast við ákvörðun Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra en hann tilkynnti í dag að stjórnarsamstarfinu yrði slitið og boðað yrði til kosninga í nóvember. Þetta staðfesti Ingibjörg Ólöf Isaksen, þinflokksformaður Framsóknarflokksins, í samtali við Vísi. Innlent 13.10.2024 19:00
Brotthvarf Katrínar hafi verið dauðadómur samstarfsins „Upphafið að þessu öllu saman var þegar að Katrín labbaði frá þeim. Það var eiginlega dauðadómur þessarar ríkisstjórnar. Það eru allt aðrar áherslur sem koma með þessum nýja formanni Vinstri grænna. Hún með sín þrjú prósent heldur virkilega að hún sé með dagskrávaldið og ætlar að ákveða kosningar og ég veit ekki hvað og hvað.“ Innlent 13.10.2024 17:44
Viðbrögð VG við stjórnarslitum og stjórnarandstaða í kosningagír Ríkisstjórnin er sprungin. Þetta varð ljóst á blaðamannafundi sem Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins boðaði til með skömmum fyrirvara nú síðdegis. Hann gengur á fund forseta á Bessastöðum á morgun, og leggur til þingrof og kosningar í lok nóvember. Innlent 13.10.2024 17:43
Viðbrögð landsmanna: „Er hægt að kaupa flugelda?“ Ýmis konar viðbrögð berast frá landsmönnum vegna stórtíðinda dagsins um að ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar væri sprungin. Vísir tók saman það helsta af samfélagsmiðlum. Innlent 13.10.2024 17:41
„Mér er létt að við séum búin að taka ákvörðun um að slíta” Utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins segist vera létt yfir því að búið sé að taka ákvörðun um að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu. Þetta skrifar Þórdís í færslu á Facebook nú fyrir stundu. Innlent 13.10.2024 17:10
Blöskrar ákvörðun Bjarna og segja hana heigulshátt „Ungu Framsóknarfólki blöskrar ákvörðun formanns Sjálfstæðisflokksins um að slíta ríkisstjórnarsamstarfi á þessum tímapunkti og leitast við að ganga til kosninga í nóvember. Okkur þykir þetta heigulsháttur, þetta er gert með hagsmuni hans flokks í huga umfram hagsmuni þjóðarinnar.“ Innlent 13.10.2024 17:09
„Loksins tækifæri fyrir þjóðina“ „Þetta er fyrst og fremst loksins tækifæri fyrir þjóðina. Það er jákvætt að fólkið sé aftur að fá valdið í sínar hendur, þannig við erum bara einbeitt í því að bjóða upp á nýtt upphaf fyrir fólk með Samfylkingunni.“ Innlent 13.10.2024 17:02
Taldi þingrof og kosningar ekki vera næst á dagskrá Formaður Vinstri grænna er hugsi yfir þeirri stöðu sem upp er komin í stjórnmálunum eftir að forsætisráðherra tilkynnti um að hann vilji rjúfa þing og boða til kosninga. Þá sé það umhugsunarefni fyrir Sjálfstæðisflokkinn að þetta sé í annað sinn sem stjórn undir forystu Bjarna Benediktssonar heldur ekki út kjörtímabilið. Ákvörðun Bjarna hafi því komið sér á óvart. Innlent 13.10.2024 16:57
„Framkoma Bjarna kom svolítið flatt upp á mann“ Það kom flatt upp á Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingflokksformann Pírata, að Bjarni Benediktsson hafi boðað að þing verði rofið og boðað til kosninga með þeim hætti og hann gerði í dag. Hins vegar fagnar hún því að ríkisstjórnin sé sprungin. Innlent 13.10.2024 16:43
Leggur fram tillögu um þingrof og kosningar í nóvember Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins hefur upplýst formenn Framsóknar og Vinstri grænna um að hann muni leggja fyrir forseta Íslands tillögu um þingrof og alþingiskosningar í nóvember. Bjarni mun funda með forseta Íslands klukkan níu í fyrramálið. Innlent 13.10.2024 15:40
Ríkisstjórnin sprungin Bjarni Benediktsson forsætisráðherra Íslands tilkynnti á blaðamannafundi í dag að hann hefði ákveðið að rjúfa þing og boða til kosninga í lok nóvember. Hann ætlar sér sjálfur að vera áfram formaður og gerir ráð fyrir því að ríkisstjórnin starfi fram að kosningum. Bjarni fer á fund Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, klukkan níu í fyrramálið. Innlent 13.10.2024 14:51
Bændur eru skilvísir með greiðslu lána sinna Bændur geta nú fengið 90% lán hjá Byggðastofnun og hefur það gert ungu fólki kleyft að hefja búskap. Á þessu ári er búið að samþykkja ellefu slík lán vegna kynslóðaskipta í sveitum landsins. Forstjóri Byggðastofnunar segir bændur mjög skilvísa lánveitendur. Innlent 13.10.2024 14:05
Gripu eldflaugarþrep á stærð við Hallgrímskirkju með vélarmi Geimferðafyrirtækinu SpaceX tókst í fyrsta skipti að grípa risavaxið eldflaugarþrep með vélarmi á skotpallinum við tilraunaflug í dag. Eldflaugarþrepið er 71 metri á hæð, örlítið lægra en Hallgrímskirkjuturn. Erlent 13.10.2024 13:56
Kraumar í kennurum vegna ummæla Einars Kennarastéttin er æf út í borgarstjóra eftir ummæli hans á ráðstefnu um helgina. Grunnskólakennari spyr sig hvort sveitarfélögin ráði við rekstur grunnskólanna ef aðrir yfirmenn deila skoðunum borgarstjóra. Innlent 13.10.2024 13:20