Fréttir
306 307 308 309 310 311 312 313 314 … 334 ›
Húsfélagið má ekki klippa á tengil rafvirkjameistara Húsfélag fjölbýlishúss nokkurs hefur verið gert afturreka með kröfu sína um að einum íbúa hússins, sem er rafvirkjameistari, yrði bannað að nota einkatengil til hleðslu á bifreið hans í bílakjallara hússins. Húsfélagið krafðist þess einnig að því yrði eftir atvikum heimilt að klippa á tengilinn héldi eigandinn notkun hans áfram. Innlent 23.4.2024 15:56
Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Einar Þorsteinsson borgarstjóri gefur ekki mikið fyrir mótmæli borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins í ráðhúsinu í dag. Þar lögðu borgarfulltrúar flokksins 1.600 vettlinga sem þau sögðu svipað marga og þau börn sem bíði eftir leikskólaplássi í borginni. Innlent 23.4.2024 15:55
Enn kröftugt gos úr einum gíg Enn gýs úr einum gíg skammt austan við Sundhnúk. Frá 5. apríl hefur aðeins gosið úr einum gíg í eldgosinu sem hófst þann 16. mars síðastliðinn. Myndatökumaðurinn Björn Steinbekk var á vettvangi í vikunni og myndaði gosið. Innlent 23.4.2024 15:46
Börn sofi ekki úti í gosmóðunni suðvestanlands Sýnileg gosmóða frá eldgosinu á Reykjanesi liggur yfir Suðvesturlandi. Mælt er gegn því að börn sofi úti og að viðkvæmir reynir á sig utandyra þegar móðan er sýnileg jafnvel þó að mengun mælist ekki yfir mörkum á loftgæðamælum. Innlent 23.4.2024 15:24
Velkomin í Verbúðina II Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir nýr matvælaráðherra mælti fyrir frumvarpi sínu um lagareldi nú rétt í þessu. Það nær til sjókvíaeldis, landeldis, hafeldis og þörungaræktar. Fyrir liggur að málið er gríðarlega eldfimt. Innlent 23.4.2024 15:11
Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Verkfræðingum bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA tókst að komast í kringum bilun í Voyager 1-geimfarinu, víðförlasta og langlífasta geimfari sögunnar. Geimfarið sendir nú stöðuuppfærslur í fyrsta skipta frá því bilunin kom upp fyrir fimm mánuðum. Erlent 23.4.2024 14:56
Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Halla Hrund Logadóttir mælist með sextán prósent fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Í fyrri Þjóðarpúlsi mældist hún aðeins með fjögur prósent fylgi. Katrín Jakobsdóttir mælist með mest fylgi og bætir lítillega við sig, fer úr 30 í 31 prósent. Innlent 23.4.2024 14:07
Ákærðir fyrir þaulskipulagða skotárás gegn feðginum á aðfangadag Þrír karlmenn hafa verið ákærðir vegna skotárásar sem átti sér stað á aðfangadag, 24 desember, í fyrra. Einn þeirra er grunaður um að hafa framið sjálfa árásina og er ákærður fyrir tilraun til manndráps, húsbrot, hættubrot og vopnalagabrot. Hinir tveir eru ákærðir fyrir hlutdeild í brotunum. Innlent 23.4.2024 13:45
Sextán hundruð vettlingar fyrir börnin sem bíða Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins kom í dag 1.600 barnavettlingum fyrir í Tjarnasal ráðhússins. Svipaður fjölda barna bíði nú eftir leikskólaplássi. Oddviti flokksins, Hildur Björnsdóttir, segir uppátækið ekki síst til þess að minna borgarstjóra á leikskólavandann. Innlent 23.4.2024 13:20
Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Fyrirætlanir Heidelberg sem tengjast stórfelldum efnisflutningum til Þýskalands í gegnum Þorlákshöfn er enn komið á dagskrá. Og ekki seinna vænna enda verður íbúakosning um málið samhliða forsetakosningum. Innlent 23.4.2024 13:00
Aðstoðarrektor í Bandaríkjunum verður rektor Háskólans á Akureyri Háskólaráðherra hefur skipað Áslaugu Ásgeirsdóttur rektor Háskólans á Akureyri. Áslaug, sem var ein fimm umsækjenda um stöðuna, hefur verið aðstoðarrektor háskóla í Maine í Bandaríkjunum undanfarin fimm ár. Innlent 23.4.2024 12:51
Bjarni vill taka daginn snemma Ákveðið hefur verið að reglulegir þriðjudagsfundir ríkisstjórnar skulu hefjast fyrr um morguninn en verið hefur síðustu ár. Fundirnir hefjast nú 8:15, en í forsætisráðherratíð Katrínar Jakobsdóttur var þumalputtareglan sú að þriðjudagsfundirnir hæfust klukkan 9:30. Innlent 23.4.2024 12:41
Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, Halla Tómasdóttir athafnakona og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona verða gestir Pallborðsins í dag, sem hefst klukkan 15. Innlent 23.4.2024 12:34
Freista þess að halda veitingamanninum bak við lás og slá Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að fara fram á það í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag að Davíð Viðarsson, áður Quang Le, sæti áfram gæsluvarðhaldi. Hann hefur verið í varðhaldi í sjö vikur ásamt barnsmóður sinni og bróður. Innlent 23.4.2024 12:24
Furðar sig á ávirðingum vegna kaupa á vínarbrauði Fyrrverandi formaður og framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands fer hörðum orðum um úttekt endurskoðunarfyrirtækis á reikningum félagsins í stjórnartíð hans. Hann furðar sig meðal annars á ávirðingum fyrir að hafa ekki fengið leyfi fyrir vínarbrauðskaupum fyrir eldri félagsmenn. Innlent 23.4.2024 12:04
Tvö manndráp á skömmum tíma Í hádegisfréttum fjöllum við um rannsókn lögreglu á meintu manndrápi í fjölbýlishúsi á Akureyri í gær. Lögregla hefur að mestu lokið vettnvangsrannsókn. Innlent 23.4.2024 11:35
„Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Tæknideild lögreglu hefur að mestu lokið vettvangsrannsókn vegna manndráps í fjölbýlishúsi á Akureyri í gær. Karlmaður var síðdegis úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um að hafa banað konu. Tæknideild er enn að störfum vegna manndráps í Kiðjabergi um helgina. Innlent 23.4.2024 11:30
Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Frumvarp sem leyfir breskum stjórnvöldum að senda suma hælisleitendur til Rúanda var samþykkt endanlega á þinginu þar í nótt. Alþjóðleg mannréttindasamtök og stofnanir fordæma lögin og hvetja bresk stjórnvöld til þess að sjá að sér. Erlent 23.4.2024 10:55
Vill geta vísað flóttafólki úr landi innan tveggja sólarhringa Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingar, segir enga óeiningu í Samfylkingunni. Það sé eðlilegt að það séu skoðanaskipti í stórum flokki. Hann segir Samfylkinguna tilbúna í ríkisstjórnarsamstarf og Sjálfstæðisflokkinn þurfa hvíld. Það yrði þeirra alsíðasti kostur í samstarf. Innlent 23.4.2024 10:40
Réðst á barn sem gerði dyraat Karlmaður hefur hlotið þrjátíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að ráðast að ungum dreng. Innlent 23.4.2024 10:30
Grunaður um að hafa ráðið konu sinni bana Karlmaður sem grunaður er um að hafa banað konu sinni í leiguíbúð þeirra í fjölbýlishúsi við Kjarnagötu í Naustahverfinu á Akureyri er á sjötugsaldri. Hann var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna í Héraðsdómi Norðurlands eystra í miðbæ Akureyrar seinni partinn í gær. Innlent 23.4.2024 10:20
Myndaði annan mann í sturtuklefanum Karlmaður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að taka ljósmyndir af öðrum manni í sturtuklefa. Innlent 23.4.2024 09:30
Tíðni manndrápa í takt við fjölgun mannfjölda Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur við Háskóla Íslands, segir það eðlilegt að manndrápsmálum fjölgi samhliða fjölgun mannfjöldans á Íslandi. Karlmenn séu stór hluti þeirra sem hafa flutt til landsins, ungir karlmenn, og tölfræðilega sé það líklegra að manndráp og önnur afbrot eigi sér stað meðal þeirra. Innlent 23.4.2024 08:53
Segja valdarán framið og kirkju aðventista klofna Tveir félagar í Kirkju sjöunda dags aðventista (KSDA) bera stjórn safnaðarins þungum sökum og segja að þar hafi verið framið valdarán. Þeir segja söfnuðinn klofinn en undir lúra milljarða samningar þar sem heilt fjall er mulið og selt úr landi. Innlent 23.4.2024 08:50
Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Þýska lögreglan handtók aðstoðarmann Evrópuþingmanns hægrijaðarflokksins Valkosts fyrir Þýskaland (AfD) sem er grunaður um að njósna fyrir kínversk stjórnvöld. Málið er sagt sérstaklega alvarlegt. Erlent 23.4.2024 08:46
Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hótað því að banna nýja þjónustu Tik Tok nema fyrirtækinu takist að fullvissa framkvæmdstjórnina um að hún muni ekki verða skaðleg börnum. Erlent 23.4.2024 07:55
Pétur Guðfinnsson er látinn Pétur Guðfinnsson, fyrrverandi útvarpsstjóri og framkvæmdastjóri Sjónvarpssins, er látinn. Hann lést á dvalarheimilinu Grund, 94 ára að aldri. Innlent 23.4.2024 07:55
Hægur vindur og sólríkt veður Hæðarhryggur er nú yfir landinu með hægum vindi og sólríku veðri, en skýjabakkar ná inn á vestanvert landið í dag og má þar búast við dálítilli súld við ströndina. Veður 23.4.2024 07:35
Biðst afsökunar á að hafa kallað skemmdarvarginn „fífl“ Kristján Berg, eigandi Fiskikóngsins, hefur beðist afsökunar á að hafa kallað manninn sem braut allar rúður verslunar verslunar Fiskikóngsins á Sogavegi í Reykjavík á dögunum „fífl“. Hann birtir afsökunarbeiðnina á samfélagsmiðlum og í heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu í dag. Hann segir nú ónefnda ráðherra í ríkisstjórn vera „fífl“. Innlent 23.4.2024 07:21
Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Tugir háskólanema voru handteknir á mótmælum gegn stríðsrekstri Ísraelsmanna á Gasa við Yale University í Connecticut og New York University á Manhattan í gær. Allir tímar við Columbia University fara nú fram um fjarfundabúnað vegna mótmæla. Erlent 23.4.2024 06:47