Bandaríski leikmaður Vals neitaði að spila seinni hálfleikinn og Valur í leit að nýjum leikmanni Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar 31. október 2019 21:14 Ágúst Björgvinsson, þjálfari Vals þarf að leita að nýjum leikmanni
Furðulegt atvik átti sér stað í Blue-höll Keflvíkinga í kvöld á meðan leik stóð á milli heimamanna og Vals í Dominos-deild karla. Chris Jones, bandarískur leikmaður Vals lék ekki með liðinu í seinni hálfleik og horfði hann á leikinn í borgaralegum klæðum. Ágúst Björgvinsson, þjálfari Vals sagði svo í viðtali eftir leik að Jones hefði neitað að spila seinni hálfleikinn. „Það er best að spyrja hann að því sjálfur. Hann sagðist ekki ætla að spila seinni hálfleikinn. Hann stimplaði sig bara út,“ sagði Ágúst eftir leik er hann var spurður út í Jones. Það er fáheyrt að atvinnumenn neiti að spila leiki, og er því um afar furðurlegt atvik að ræða. Ágúst segir að leikmaðurinn sé ekki leikmaður Vals lengur. „Nei ég efast um það. Hann getur ekki talist leikmaður Vals ef hann yfirgefur liðið í hálfleik.“ Aðspurður hvort að Chris Jones hefði gefið einhverjar ástæður fyrir þessari ákvörðun sinni var svar Ágústar stutt og laggott. „Nei.“ Valsmenn léku miklu betur í seinni hálfleik þrátt fyrir fjarveru Jones en það kom ekki í veg fyrir tap Valsmanna. Jones skoraði fjögur stig á þrettán mínútum í leiknum í kvöld. „.Við verðum bara að finna nýjan mann en mér fannst strákarnir tækla þetta mjög vel.“
Dominos-deild karla Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Fótbolti Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Fleiri fréttir Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu Sjá meira