Má ekki dæma hjá ÍR vegna Instagram-færslu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. apríl 2019 14:07 Davíð Tómas að störfum. vísir/vilhelm
Davíð Tómas Tómasson, einn fremsti körfuboltadómari landsins, hefur ekkert dæmt í úrslitakeppni Domino's deildar karla síðan hann dæmdi oddaleik Tindastóls og Þór Þ. í 8-liða úrslitum 1. apríl síðastliðinn. Davíð Tómas dæmir fyrir KR og getur því eðli málsins samkvæmt ekki dæmt leiki í einvígi KR og Þórs Þ. Hann hefur ekki heldur dæmt leik í einvígi Stjörnunnar og ÍR. Raunar hefur Davíð Tómas ekki dæmt leik hjá ÍR á þessu ári. Í samtali við Vísi staðfesti Jón Bender, formaður dómaranefndar KKÍ, að Davíð Tómas dæmdi ekki leiki hjá ÍR eins og staðan væri núna. Samkvæmt heimildum íþróttadeildar Sýnar er ástæða þess færsla sem Davíð Tómas setti inn á Instagram 22. janúar síðastliðinn. Þar sést hann við hlið Matthíasar Orra Sigurðssonar, leikstjórnanda ÍR. Við myndina stendur „@ the office“. Það ku þó ekki vera upprunalegi textinn en þar vísaði hann í tengsl sín og Matthíasar Orra við Vesturbæ Reykjavíkur. Textinn þótti þess eðlis að ekki væri hægt að láta Davíð Tómas dæma fleiri leiki hjá ÍR.Færsla Davíð Tómasar á Instagram.skjáskot/instagramÞrátt fyrir að hafa ekki dæmt neitt í undanúrslitunum í úrslitakeppni Domino's deildar karla hefur Davíð Tómas ekki setið auðum höndum að undanförnu. Hann hefur dæmt tvo af fjórum leikjum í einvígi Keflavíkur og Stjörnunnar í undanúrslitum Domino's deildar kvenna, auk þess sem hann hefur dæmt í úrslitakeppni 1. deildar karla. ÍR getur tryggt sér sæti í úrslitum um Íslandsmeistaratitil karla með sigri á Stjörnunni í Seljaskóla í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20:15 og verður í beinni textalýsingu á Vísi og sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Dominos-deild karla Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Fleiri fréttir Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Sjá meira