Dómsmál
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 166 ›
Kourani dæmdur í átta ára fangelsi Mohamad Kourani hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í OK Market í mars og fjölda annarra brota. Innlent 15.7.2024 11:03
Lögregla látin skila milljónum sem dómurinn telur líklega illa fengið fé Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þarf að láta af hendi 7,13 milljónir króna í reiðufé sem hún lagði hald á árið 2021 í tengslum við rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi. Maður, sem er eigandi peninganna, er ásamt öðrum grunaður í máli sem varðar innflutning, framleiðslu og dreifingu fíkniefna, sem og ýmis auðgunarbrot, stórfelldan þjófnað og peningaþvætti. Innlent 13.7.2024 14:10
Klessti bíl og eigandinn kom í jakka einum fata á vettvang Maður sem ók bíl undir áhrifum áfengis, klessti honum á kyrrstæðan aftanívagn, og kom sér af vettvangi hlaut dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur á dögunum. Honum er gert að greiða 240 þúsund króna sekt til ríkissjóðs eða sæta átján daga fangelsi. Jafnframt var hann sviptur ökuréttindum. Innlent 12.7.2024 14:03
Skipstjórinn dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi Skipstjóri og stýrimaður fraktskipsins Longdawn voru sakfelldir í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að skilja skipstjóra strandveiðibátsins Höddu HF eftir í sjávarháska, eftir að hafa siglt skipinu á bátinn. Innlent 12.7.2024 11:08
Skipstjórinn var drukkinn og skipaði stýrimanni að sigla á brott Skipstjóri og stýrimaður fraktskipsins Longdawn játuðu sök þegar mál ákæruvaldsins á hendur þeim var þingfest í dag. Þeim var gefið að sök að hafa skilið skipstjóra strandveiðibátsins Höddu HF eftir í sjávarháska, eftir að hafa siglt skipinu á bátinn. Þá játaði skipstjórinn að hafa verið drukkinn. Innlent 11.7.2024 14:17
Jón Einar sakfelldur fyrir umfangsmikla sjónræningjastarfsemi Jón Einar Eysteinsson, athafnamaður á Spáni, hefur verið dæmdur til að sæta fangelsi í 60 daga – skilorðsbundið. Og fallist er á bótakröfu á hendur honum af hálfu Stöðvar 2. Þetta er fyrir að hafa gegn betri vitund selt ótilgreindum fjölda fólks aðgang að læstri dagskrá sjónvarpsstöðva í gegnum streymisveitu sína. Innlent 11.7.2024 13:43
Ætlar að leggja til málshöfðun á hendur íslenska ríkinu Íslenska ríkið hefur hafnað miska- og skaðabótagreiðslu til handa ekkju Andemariams Beyene sem lést 30. janúar 2014 í kjölfar plastbarkaígræðslu á Karólínska háskólasjúkrahúsinu í júní árið 2011. Lögmaður ekkjunnar er Sigurður G. Guðjónsson mun að öllum líkindum leggja til við skjólstæðing sinn að hún höfði mál á hendur íslenska ríkinu. Innlent 11.7.2024 11:24
Sýslumaður hótar því að taka aðventista af skrá Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra hefur ritað stjórn Kirkju sjöunda dags aðventista bréf þar sem hann krefst þess að ef stjórnin ljúki ekki aðalfundi sem staðið hefur í tvö ár fyrir 10. ágúst næstkomandi þá muni hann grípa til þess að fella félagið af skrá sem trúfélag. Innlent 11.7.2024 10:09
Fleygði lögreglumanni í jörðina eftir hlaup um miðbæ Akureyrar Karlmaður á fertugsaldri hlaut þriggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til þriggja ára, í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að veitast að lögreglumanni í miðbæ Akureyrar í júlí í fyrra. Innlent 11.7.2024 07:19
Páll Winkel segir slæma hegðun fanga hafa færst í aukana Páll Winkel fangelsismálastjóri segir slæma hegðun fanga hafa aukist uppá síðkastið. Hann kýs að tjá sig ekki sérstaklega um mál Mohamed Kourani en almennt megi segja þetta um stöðu mála. Páll segir nauðsynlegt að fjölga fangavörðum. Innlent 10.7.2024 15:35
Skipverjarnir ákærðir Skipstjóri og stýrimaður fraktskipsins Longdawn hafa verið ákærðir vegna árekstur skipsins og strandveiðibátsins Höddu HF við Garðskaga um miðjan maí. Innlent 10.7.2024 13:40
Gæti reynst erfitt að senda Kourani úr landi Það gæti reynst erfitt að brottvísa Mohamad Kourani úr landi fái hann ekki framlengingu um alþjóðlega vernd hér á landi. Kourani hefur hlotið dóm hér á landi fyrir fjölda hegningarlagabrota, og bíður dóms í máli sem varðar meðal annars stunguárás í OK Market í Valshverfinu í Reykjavík í mars á þessu ári. Innlent 10.7.2024 13:02
Skvetti þvagi á fangaverði og maki saur á veggi Mohamed Kourani hefur gert fangavörðum á Litla-Hrauni lífið leitt síðan hann var færður þangað úr fangelsinu á Hólmsheiði. Heimildir Vísis herma að hann hafi beitt hinum ýmsu bellibrögðum gegn fangavörðum, meðal annars að skvetta á þá þvagi, hrækja á þá og skvetta á þá sjóðandi vatni. Þá hafi hann makað saur á veggi klefa síns. Innlent 10.7.2024 11:13
„Þessi viðbúnaður er meira varúðarráðstöfun fyrir hann sjálfan“ Mikill viðbúnaður er nú á Litla-Hrauni vegna Mohamads Kourani, fanga með langa afbrotasögu sem bíður nú dómsuppkvaðningar fyrir stunguárás, að sögn formanns Afstöðu. Hann segir um að ræða veikan mann sem ekki eigi heima í fangelsi heldur á sjúkrastofnun. Afstaða hyggst vitja fangans í fangelsinu síðar í vikunni. Innlent 9.7.2024 12:02
Nýr verjandi Quang Le segir búið að dæma skjólstæðing sinn Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður hefur tekið við máli Quang Lé og er nú verjandi hans. Sveinn segir skjólstæðing sinn grátt leikinn, og enginn Íslendingur hefði mátt þola annað eins. Innlent 9.7.2024 11:53
Blóðugur hnífur fannst á heimili hins grunaða Blóðugur hnífur fannst á heimili karlmanns á fimmtugsaldri sem hefur verið ákærður fyrir tilefnislausa stunguárás í janúar á þessu ári. Maðurinn neitar sök, en samkvæmt niðurstöðum sérfræðinga er hann talinn sakhæfur. Innlent 9.7.2024 08:35
Læknirinn sem varð fyrir árásinni ætlar lengra með málið Heimilislæknir sem varð fyrir árás sjúklings á heilsugæslu í Reykjavík en fær ekki bætur frá ríkinu vegna málsins hyggst áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis. Innlent 8.7.2024 15:56
„Ég þekki líka kolruglaða menn og ég læt drepa þig“ Karlmaður á fertugsaldri hlaut þriggja mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness á dögunum fyrir að hafa haft í ítrekuðum hótunum við lögreglumenn á ellefu mánaða tímabili. Innlent 8.7.2024 13:33
Myndband með jólalagi lykilsönnunargagn í fíkniefnamáli Adam Benito Pedie hlaut þriggja ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot. Hann var ákærður fyrir að standa í innflutningi á fíkniefnum til Íslands í lok síðasta árs og upphafi þessa árs. Innlent 8.7.2024 08:41
Henti barnungum „óþekkum“ sonum sínum í gólfið Karlmaður hefur hlotið átján mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness, en þar af verða fimmtán mánuðir skilorðsbundnir til tveggja ára, vegna fjölda brota gegn konu og börnum. Innlent 5.7.2024 16:00
Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir skaðabótamál fyrrverandi eigenda Brúneggja á hendur Ríkisútvarpinu og Matvælastofnun. Málið varðar umfjöllun Kastljóss 28. nóvember 2016 um dýrahald og eggjaframleiðslu Brúneggja ehf. Viðskipti innlent 5.7.2024 14:56
Taka fyrir nauðgun á táningsstúlku vegna vinnubragða Landsréttar Hæstiréttur mun taka fyrir mál Inga Vals Davíðssonar, Ólafsfirðings á fertugsaldri, sem hlaut þriggja ára fangelsisdóm í Landsrétti í apríl síðastliðnum fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar síns. Innlent 5.7.2024 13:19
Dæmdar tæplega fimmtíu milljónir fjórtán árum eftir handtökuna Guðmundur Gunnlaugsson lagði íslenska ríkið í gær sem þarf að greiða honum 47,8 milljónir króna í bætur vegna handtöku og gæsluvarðhalds sem hann sætti árið 2010. Það er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur, en 26,3 milljónir sem Guðmundur hefur þegar fengið í bætur verða dregnar frá bótaupphæðinni. Innlent 5.7.2024 11:45
Sagði hvorki unnustu sína né börn hennar verðskulda líf Karlmaður hefur verið ákærður fyrir stórfellda líkamsárás og stórfelld brot í nánu sambandi, en meint brot mannsins beindust að unnustu hans. Honum er gefið að sök að hafa endurtekið og á sérstaklega sársaukafullan hátt ógnað lífi og heilsu konunnar með andlegu og líkamlegu ofbeldi og hótunum. Innlent 5.7.2024 09:40
Fimmtán mánaða skilorð fyrir vörslu barnaníðsefnis Karlmaður um fimmtugt var á dögunum dæmdur í fimmtán mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa haft í vörslu sinni ljósmyndir og myndskeið sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfengin hátt, og fyrir að hafa dreift slíku myndefni til ótilgreindra aðila í gegn um spjallhópa á netinu. Innlent 4.7.2024 18:04
Kirkjan skaðabótaskyld gagnvart Kristni Þjóðkirkjan er skaðabótaskyld gagnvart Kristni Jens Sigurþórssyni, fyrrverandi presti í Saurbæjarprestakalli á Hvalfjarðarströnd, en prestakallið var lagt niður árið 2019. Í kjölfarið bauð biskup Kristni að taka við nýju embætti sem hann þáði nokkru síðar, en svo tilkynnti Þjóðkrikjan að það boð hefði fallið niður. Innlent 4.7.2024 17:25
Slæleg vinnubrögð álagi og tímapressu að kenna Páll E. Winkel fangelsismálastjóri harmar úrskurð dómsmálaráðuneytisins þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að verulegir ágallar séu á inntökuferli í fangavarðanám. Stjórnendur fangelsanna, yfirmenn umsækjenda, hafi metið andlegt og líkamlegt heilbrigði umsækjenda sem fengu ekki boð í viðtal. Innlent 4.7.2024 15:22
Kolbeinn fer ekki fyrir Landsrétt Sýknudómi Kolbeins Sigþórssonar, fyrrverandi landsliðsmanns í fótbolta, verður ekki áfrýjað til Landsréttar. Innlent 4.7.2024 13:21
Kourani sjái ekki eftir neinu og eigi skilið sex til átta ár í fangelsi Saksóknari krefst þess að Mohamad Kourani frá Sýrlandi verði dæmdur í sex til átta ára fangelsi fyrir hnífsstunguárás í OK Market í mars og fjölda annarra brota. Kourani neitar alfarið sök þótt stunguárásin sé til á upptöku. Innlent 4.7.2024 12:22
Sjúklingur réðst á lækni sem fær ekki bætur frá ríkinu Íslenska ríkið hefur verið sýknað af kröfum heimilislæknis sem varð fyrir árás sjúklings á meðan hann var í vinnunni. Innlent 4.7.2024 12:21