Alþingi
292 293 294 295 296 297 … 297 ›
3 sóttu um starf skrifstofustjóra Þrír sóttu um starf skrifstofustjóra Alþingis en það var auglýst laust til umsóknar 8. desember sl. og rann umsóknarfrestur um embættið út 22. desember. Þeir sem sóttu um voru Einar Farestveit, lögfræðingur á skrifstofu Alþingis, Helgi Bernódusson, aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis og Þórhildur Líndal, umboðsmaður barna. Innlent 13.10.2005 15:15
Stjórnmálaflokkar spilltastir Íslenskir stjórnmálaflokkar eru spilltustu stofnanir íslenska samfélagsins. Þetta eru niðurstöður nýrrar alþjóðlegrar könnunar. Stjórnmálaflokkar eru taldir spilltasta aflið í sex af hverjum tíu löndum sem þátt tóku í könnuninni. Hér á landi er viðskiptalífið talið næstspilltasti geiri samfélagsins og fjölmiðlar eru í þriðja sæti. Innlent 13.10.2005 15:09
Vændi Össur um lygi Hart var tekist á um skattalækkanir ríkisstjórnarinnar á Alþingi í dag. Dagný Jónsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, vændi Össur Skarphéðinsson, formann Samfylkingarinnar, um lygi og var áminnt fyrir af forseta þingsins. Innlent 13.10.2005 15:09
Kennt verði alla virka daga Menntamálaráðherra segir mikilvægt að kennt verði alla virka daga í grunnskólum landsins til að bæta fyrir nær átta vikna hlé sem varð á kennslu meðan á verkfalli grunnskólakennara stóð. Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, á Alþingi í dag. Innlent 13.10.2005 15:08
Engin von um kísilduftsverksmiðju Allar vonir Mývetninga um kísilduftsverksmiðju í stað Kísiliðjunnar eru úr sögunni því norska undirbúningsfélagið að kísilduftsverksmiðjunni var lýst gjaldþrota í Noregi í gær. Þetta kom fram í máli Valgerðar Sverrisdóttur, viðskipta- og iðnaðarráðherra, á Alþingi í morgun. Innlent 13.10.2005 15:08
Alþingi og Íraksmálið Utanríkisráðherra og forsætisráðherra ákváðu að setja Ísland á lista yfir hinar staðföstu þjóðir og veita þar með innrásaröflunum í Írak móralskan stuðning. Málið virðist ekki hafa komið til kasta utanríkismálanefndar eins og lög kveða á um. Erlent 13.10.2005 15:08
Ráðherra sakaður um ósannindi Formaður Vinstri-grænna ræddi Íraksmálin enn og aftur í upphafi þingfundar í dag. Hann sakaði forsætisráðherra um ósannindi í sjónvarpsviðtali í gær þar sem Íraksmálin bar á góma. Innlent 13.10.2005 15:08
Sjálfstæði Alþingis verði tryggt Stjórnarandstöðuflokkarnir leggja mikla áherslu á að sjálfstæði Alþingis gagnvart framkvæmdavaldinu verði tryggt við endurskoðun stjórnarskrárinnar. Níu fulltrúar stjórnmálaflokkanna verða í stjórnarskrárnefndinni en nefndinni til fulltingis verður hópur sérfræðinga. Innlent 13.10.2005 15:08
Litlar vangaveltur um breytingar Stjórnarandstaðan virðist lítið hafa velt fyrir sér hugsanlegum breytingum á stjórnarskránni en forsætisráðherra óskaði tilnefninga í stjórnarskrárnefnd í gær. Þingmaður Samfylkingar segir að tryggja verði, hér eftir sem hingað til, að hægt sé að bera undir þjóðina ákvarðanir Alþingis. Innlent 13.10.2005 15:07
Áskorun frá Þjóðverjum Þýska mannréttindastofnunin hefur sent Alþingi áskorun þess efnis að ekki verði hætt fjárstuðningi við Mannréttindaskrifstofu Íslands. Segir meðal annars að þýska mannréttindastofnunin hafi af því þungar áhyggjur að fjárskortur myndi hamla starfi mannréttindaskrifstofunnar. Innlent 13.10.2005 15:07
Vildi hækka fjárveitinguna 1998 Halldór Ásgrímsson lagði til við ríkisstjórnina fyrir sex árum að Mannréttindaskrifstofu Íslands yrði tryggð fjárveiting beint frá Alþingi og að hún yrði hækkuð úr sex milljónum í fimmtán milljónir. Sami stjórnarmeirihluti og var þá við völd afnam í gær alla fjárveitingu til Mannréttindaskrifstofunnar. Innlent 13.10.2005 15:07
Fjárlögin samþykkt á Alþingi Fjárlög næsta árs voru samþykkt sem lög frá Alþingi í dag. Reiknað er með 10 milljarða rekstrarafgangi á fjárlögum. Halldór Ásgrímsson vildi fyrir sjö árum að Mannréttindaskrifstofan fengi fé beint frá Alþingi en flokksmenn hans felldu slíka tillögu í dag ásamt þingmönnum Sjálfstæðisflokksins. Innlent 13.10.2005 15:06
Lokaatkvæðagreiðsla um fjárlögin Þingfundur hefst á Alþingi nú klukkan ellefu. Eitt mál er á dagskrá, lokaatkvæðagreiðsla um fjárlög íslenska ríkisins fyrir árið 2005. Gera má ráð fyrir að hún standi í um tvær klukkustundir og að fjöldi þingmanna muni gera grein fyrir atkvæði sínu. Innlent 13.10.2005 15:06
Mannréttindaskrifstofan ein á báti Þriðja og síðasta umræða um fjárlög næsta árs stendur nú yfir á Alþingi. Meirihluti Alþingis samþykkti fyrir nokkrum mínútum að svipta Mannréttindaskrifstofu Íslands fjárframlögum frá Alþingi. Greidd verða atkvæði um fjárlögin í dag. Innlent 13.10.2005 15:06
Hörð mótmæli vegna bifreiðagjalda Stjórn Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, hefur sent frá sér hörð mótmæli vegna fyrirhugaðrar hækkunar bifreiðagjalda. Innlent 13.10.2005 15:06
Þingið leyndi hækkuninni Alþingi leyndi landsmenn fyrirætlun sinni um að taka fyrir hækkun áfengisgjalds á þinginu í gær. Þetta var gert svo almenningur hamstraði ekki sterka drykki og tóbak í stórum stíl. Innlent 13.10.2005 15:05
Skilar 340 milljónum í ríkissjóð Alþingi hefur hækkað áfengisgjald á sterkt vín og tóbaksgjald um sjö prósent. Í frumvarpi fjármálaráðherra segir að hækkunin sé í samræmi við forsendur tekjuáætlunar fjárlagafrumvarps. Þingmenn Samfylkingar segja ríkisstjórnina nú vera búna að fjármagna skattalækkanir næsta árs. Innlent 13.10.2005 15:05
Nauðbeygð til að hækka álögur Formaður Samfylkingarinnar segir stjórnvöld nauðbeygja sveitarfélögin til þess að hækka álögur eða skera niður félagslega þjónustu með því að bæta sífellt á þau verkefnum án þess að láta fé fylgja þeim. Innlent 13.10.2005 15:04
Ríkisvaldið neitar að borga Ríkisvaldið stendur í skuld við sveitarfélögin en lætur eins og það sé statt í miðjum grínfarsa og neitar að borga. Þetta sagði formaður Samfylkingarinnar á Alþingi í dag í umræðum um skiptingu tekna milli ríkis og sveitarfélaga. Innlent 13.10.2005 15:04
Afturhaldskommatittir á Alþingi Davíð Oddsson utanríkisráðherra kallaði þingmenn Samfylkingarinnar „afturhaldskommatitti“ í umræðum á Alþingi í dag. Deilt var um ummæli þingflokksformanns Framsóknarflokksins sem kvaðst í gær reiðubúinn til að endurskoða hvort Ísland ætti að vera á lista hinna viljugu þjóða. Innlent 13.10.2005 15:04
Davíð fór mikinn á þinginu Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði að yrðu Íslendingar teknir af lista stuðningsþjóða innrásarinnar í Írak nú jafngilti það því að hann færi upp á Landspítalann og segði að hann tæki til baka samþykki sitt fyrir krabbameinsaðgerðinni sem framkvæmd var í sumar. Um afstöðu Samfylkingarinnar í Íraksmálinu sagði Davíð að flokkurinn væri „afturhaldskommatittsflokkur“. Innlent 13.10.2005 15:04
Varaformaður veldur írafári Sjálfstæðismaðurinn Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður fjárlaganefndar, olli talsverðu írafári á Alþingi í gær þegar hann lýsti því yfir að nýundirritaðir samningar kennarasambandsins og sveitarfélaganna væru skelfilegir, eins og hann orðaði það. Innlent 13.10.2005 15:00
Olíustjórnendur enn að störfum Þrátt fyrir að olíufélögin Essó, Skeljungur og Olís hafi skipt um eigendur frá því að verðsamráði þeirra lauk í kjölfar húsleitar Samkeppnisstofnunar þá starfa margir stjórnenda enn hjá félögunum sem taldir eru eiga aðild að samráðinu. Innlent 13.10.2005 15:00
Varnarmálin ekki í höfn Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að viðræður Davíðs Oddssonar, utanríkisráðherra, við starfsbróðir sinn Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Washington í gær hafi verið mikilvægar. Innlent 13.10.2005 15:00
Nýtt fangelsi við Reykjavík Lagt er til að nýtt fangelsi verði reist við Reykjavík og fangelsin að Litla-Hrauni, Kvíabryggju og á Akureyri verði stækkuð. Innlent 13.10.2005 15:00
Boðar stóreflt samkeppniseftirlit Valgerður Sverrisdóttir, viðskiptaráðherra, boðaði stóreflt samkeppniseftirlit í svari við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, Samfylkingu, á Alþingi í gær. Innlent 13.10.2005 15:00
Ísland ber ábyrgð á stríðsglæpum Enginn ráðherra ríkisstjórnarinnar var viðstaddur umræðu á Alþingi í gær, þar sem ríkisstjórnin var sökuð um að bera ábyrgð á stríðsglæpum sem framdir væru þessa dagana borginni Fallujah í Írak. Innlent 13.10.2005 14:59
Trúnaðurinn er aðalmálið Af hverju hvílir öll þessi leynd yfir styrkjum til flokkanna? Umræðan um styrki til flokkanna er ekki ný af nálinni. Hún hefur viðgengist áratugum saman og komið reglulega upp í fjölmiðlum síðustu áratugi. Þessi umræða hefur orðið sterkari eftir því sem sjálfstæði fjölmiðlanna hefur vaxið og þeim tekist að slíta sig frá stjórnmálaflokkunum. Innlent 13.10.2005 14:58
Taki þátt í rekstri flugvallarins Davíð Oddsson utanríkisráðherra ætlar að semja um það við Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að Íslendingar taki meiri þátt í kostnaði við rekstur Keflavíkurflugvallar. Innlent 13.10.2005 14:57
Sérstök lög um heimilisofbeldi Ágúst Ólafur Ágústsson, alþingismaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram þingslályktunartillögu um að sett verði sérstök lög um heimilisofbeldi. Heimilisofbeldi er ekki skilgreint sérstaklega í íslenskri löggjöf, heldur helst dæmt eftir hegningarlögum um líkamsárásir. Innlent 13.10.2005 14:57