Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 16 ›
McConnell lætur gott heita Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, ætlar ekki að gefa kost á sér aftur í leiðtogasætið eftir kosningarnar í nóvember. Enginn hefur setið lengur í embættinu en hann og hefur hann haft gífurleg áhrif á líf Bandaríkjamanna á undanförnum áratugum. Erlent 28.2.2024 18:08
Krefst einnig friðhelgi í skjalamálinu Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur farið fram á að dómsmál vegna opinberra gagna og leynilegra skjala sem hann tók með sér þegar hann flutti úr Hvíta húsinu og til Flórída, verði fellt niður. Lögmenn hans segja hann hafa svipt skjölin leynd sem forseti og þau hafi verið hans einkaeign, því hafi í raun aldrei átt að ákæra hann á grundvelli friðhelgi forseta. Erlent 23.2.2024 12:06
Katrín Jakobsdóttir <3 Trump Á dögunum sagði Donald Trump að hann myndi ekki koma NATO ríkjum til varnar sem verja minna en 2% af landsframleiðslu til varnarmála. Sagði hann jafnframt að hann myndi hreinlega hvetja Rússa til þess að ráðast á þau ríki sem ekki uppfylli þessi viðmið. Skoðun 23.2.2024 06:00
Biden kallar Pútín „tíkarson“ og furðar sig á ummælum Trump Joe Biden Bandaríkjaforseti kallaði Vladimir Pútín Rússlandsforseta „brjálaðan tíkarson“ á fjáröflunarviðburði í San Francisco í gær, auk þess sem hann skaut á forvera sinn Donald Trump fyrir að bera sig saman við rússneska andófsmanninn Alexei Navalní. Erlent 22.2.2024 07:37
Biden situr á digrum sjóðum en Trump ver fúlgum í lögmenn Donald Trump og Nikki Haley eyddu bæði miklum fjármunum í kosningabaráttu þeirra í janúar. Trump varði einnig milljónum dala í lögfræðikostnað en hann stendur meðal annars frammi fyrir 91 ákærulið í fjórum mismunandi málum auk annarra lögsókna. Joe Biden á töluvert meira í sjóðum sínum en Trump. Erlent 21.2.2024 14:51
Lyginn uppljóstrari í samskiptum við rússneska embættismenn Fyrrverandi uppljóstrari Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) sem sakaður er um að hafa logið um það að Joe Biden, forseti, og sonur hans Hunter hafi tekið við mútum segist hafa átt í samskiptum við útsendara frá rússneskri leyniþjónustu. Saksóknarar lýsa honum sem raðlygara sem geti ekki sagt satt um grunnatriði um eigið líf. Erlent 21.2.2024 10:45
Lincoln bestur, Biden í fjórtánda sæti en Trump alverstur Samkvæmt sagnfræðingum í Bandaríkjunum er Joe Biden fjórtándi besti Bandaríkjaforseti sögunnar, á meðan Donald Trump er sá alversti. Mesta afrek Biden var að koma Trump frá völdum, segja prófessorarnir sem stóðu fyrir könnuninni. Erlent 19.2.2024 11:09
Trump sektaður um 355 milljónir dala í New York Dómari í New York hefur dæmt Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og forsetaframbjóðanda, til að greiða 355 milljónir dala í sekt vegna fjársvika. Erlent 16.2.2024 20:41
Uppljóstrari FBI ákærður fyrir lygar um Hunter og Joe Biden Fyrrverandi uppljóstrari fyrir Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) hefur verið ákærður fyrir að ljúga um margra milljóna dala mútumál tengt úkraínsku orkufyrirtæki og Biden-feðgunum Joe og Hunter. Ásakanir Alexander Smirnov, áðurnefnds uppljóstrara, hafa verið burðarstólpi í rannsókn Repúblikana á Joe Biden, forseta. Erlent 16.2.2024 11:03
„Ef þið borgið ekki, ætla ég ekki að verja ykkur“ Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og væntanlegur forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, ítrekaði í gær að ef hann sneri aftur í Hvíta húsið, myndi hann ekki koma ríki í Atlantshafsbandalaginu til varnar í tilfelli árásar, nema þetta tiltekna ríki „borgaði“. Erlent 15.2.2024 15:46
Smith biður hæstarétt um að tefja ekki réttarhöldin Jack Smith, sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, hefur farið fram á það við dómara hæstaréttar að þeir heimili það að réttarhöldin gegn Donald Trump vegna viðleitni hans til að halda völdum eftir að hann tapaði forsetakosningunum 2020 geti hafist sem fyrst. Það er eftir að Trump bað dómarana um að tefja réttarhöldin þar til fram yfir næstu forsetakosningar, sem fara fram í nóvember. Erlent 15.2.2024 10:36
Tókst að ákæra Mayorkas í annarri tilraun Repúblikönum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings tókst í gær að ákæra Alejandro N. Mayorkas, yfirmann heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna, fyrir meint embættisbrot. Þetta var í annað sinn sem þeir greiddu atkvæði um ákæru og var hún samþykkt með einu atkvæði. Erlent 14.2.2024 14:13
Demókrati nældi í þingsæti Santos Demókratinn Tom Suozzi bar sigur úr býtum í baráttu um þingsæti í New York og minnkaði þar með meirihluti Repúblikana í fulltrúadeildinni enn meira. Áður hafði George Santos setið í þingsætinu en honum var vikið af þingi í byrjun desember. Erlent 14.2.2024 11:08
Trump vill frest fram yfir kosningar Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og væntanlegur forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, hefur beðið Hæstarétt Bandaríkjanna um að fresta úrskurði um hvort hann njóti friðhelgi gegn lögsókn þar til fram yfir forsetakosningarnar í nóvember. Verði dómarar við þeirri kröfu verður líklega ekki hægt að rétta yfir honum vegna árásarinnar á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar 2021 og tilrauna hans til snúa úrslitum forsetakosninganna 2020. Erlent 13.2.2024 15:42
Gera aðra tilraun með hernaðaraðstoð Bandarískir öldungadeildarþingmenn samþykktu í dag frumvarp um 95,3 milljarða dala hernaðaraðstoð til Úkraínu, Ísraels og Taívan auk mannúðaraðstoðar til Palestínumanna. Frumvarpið var samþykkt eftir næturlangt málþóf nokkurra þingmanna Repúblikanaflokksins. Erlent 13.2.2024 13:34
Jon Stewart snýr aftur: „Hvað erum við að gera?“ Sjónvarpsmaðurinn Jon Stewart sneri aftur í sett The Daily Show í gærkvöldi, í fyrsta sinn frá því hann hætti árið 2015. Fyrir það hafði hann og rithöfundar hans á sextán árum gert þáttinn að ákveðnu stórveldi á sviði pólitískrar satíru. Lífið 13.2.2024 11:25
Kennedy biðst afsökunar á Super Bowl-auglýsingu Robert F. Kennedy yngri hefur beðið fjölskyldu sína afsökunar á auglýsingu tengdri framboði hans til forseta Bandaríkjanna. Hluti af auglýsingu hans fór í að sýna andlit frænda hans heitins, John F. Kennedy, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Erlent 12.2.2024 16:10
Trump harðlega gagnrýndur fyrir boð til Rússa um að ráðast gegn Nató Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir bandalagið reiðubúið og viljugt til að vernda alla bandamenn sína, eftir að greint var frá því að Donald Trump hefði eggjað Rússa til að ráðast á þau ríki sem ekki legðu nægt fjármagn til varnarmála. Erlent 12.2.2024 07:24
Biden brást reiður við skýrslu um leyniskjöl Sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna sem rannsakað hefur opinber og leynileg skjöl sem fundust í vörslu Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, frá þeim tíma er hann var óbreyttur borgari, birti í gær skýrslu um rannsókn sína. Þar sagði hann ekki tilefni til að ákæra Biden en sagði hann hafa vísvitandi haldið eftir leynilegum gögnum og jafnvel sýnt öðrum þau. Erlent 9.2.2024 13:45
Kjörgengi Trumps rætt í Hæstarétti Málflutningur um það hvort ríki Bandaríkjanna hafi rétt til að meina Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, að vera á kjörseðlum þar í forsetakosningunum sem haldnar verða í nóvember, stendur nú yfir fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna. Erlent 8.2.2024 16:12
Laut í lægra haldi fyrir valkostinum „Enginn af þessum frambjóðendum“ Nikki Haley, fyrrverandi ríkisstjóri Suður-Karólínu og sendiherra Bandaríkjanna við Sameinuðu þjóðirnar, mátti þola mikla niðurlægingu í gær þegar forval fyrir forsetakosningarnar fór fram í Nevada í gær. Erlent 7.2.2024 07:23
Trump nýtur ekki friðhelgi, í bili Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, er ekki með friðhelgi gegn ákærum. Þetta er úrskurður áfrýjunardómstóls í Washington DC en málið fer líklega fyrir hæstarétt Bandaríkjanna. Erlent 6.2.2024 15:25
Snerist hugur nokkrum tímum eftir að hann sagði aðgerðir nauðsynlegar Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, ráðlagði meðlimum þingflokks síns í gærkvöldi að greiða atkvæði gegn nýju frumvarpi um aukna gæslu og hertar aðgerðir á landamærunum við Mexíkó og hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum og Ísraelum, auk annars. Erlent 6.2.2024 11:38
Hlær að samsæriskenningum um Swift og Super Bowl Yfirmaður NFL-deildarinnar, Roger Goodell, blæs á samsæriskenningar tengdar Taylor Swift og Super Bowl sem fer fram á sunnudaginn. Sport 6.2.2024 10:32
Haley biður um aukna vernd Nikki Haley, sem berst enn við Trump um tilnefningu Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar í nóvember, hefur óskað eftir vernd frá lífvarðasveit forseta Bandaríkjanna (e. Secret service). Ástæðan ku vera sú að henni hefur borist alvarlegar hótanir að undanförnu. Erlent 6.2.2024 10:07
Langar viðræður um landamærin og hernaðaraðstoð skila „dauðu“ frumvarpi Öldungadeildarþingmenn úr báðum flokkum Bandaríkjaþings birtu í gær nýtt frumvarp um öryggi á landamærunum við Mexíkó og hernaðaraðstoð til Úkraínu og Ísrael. Frumvarpið var samið eftir langar viðræður en ef þingmönnum tekst að fá það samþykkt í öldungadeildinni þykir líklegt að það verði ekki svo gott sem tekið til umfjöllunar í fulltrúadeildinni. Erlent 5.2.2024 15:02
Fimm ára fangelsi fyrir að stela og leka skattskýrslum auðmanna Charles Littlejohn, fyrrverandi verktaki hjá bandaríska Skattinum, hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að stela og leka skattskýrslum margra af auðugustu mönnum Bandaríkjanna og Donald Trump, fyrrverandi forseta. Brot hans er sagt einstakt í sögu Skattsins í Bandaríkjunum. Erlent 29.1.2024 23:46
Áfram samið á þingi þó Trump mótmæli Samningaviðræðum um mögulegar aðgerðir á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó annars vegar og hernaðaraðstoð handa Úkraínu og öðrum ríkjum hefur ekki verið hætt á bandaríska þinginu. Talið er að koma muni í ljós á næstu dögum hvort samkomulag sé mögulegt. Erlent 26.1.2024 14:01
Semja ekki um landamærin til að grafa ekki undan Trump Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, tilkynnti þingflokki sínum í gær að leiðtogar flokksins væru hættir að reyna að ná samkomulagi við Demókrata um aðgerðir á landamærum ríkisins og Mexíkó. Hann sagði Donald Trump, væntanlegan forsetaframbjóðanda flokksins, vilja keyra á vandanum á landamærunum í baráttunni fyrir forsetakosningarnar í nóvember. Erlent 25.1.2024 10:50
Endurtekning á síðustu kosningum í kortunum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, vann nokkuð öruggan sigur gegn Nikki Haley í forvali Repúblikanaflokksins í New Hampshire í gær. Kjósendur í ríkinu eru þekktir fyrir að vera óútreiknanlegir en þeir komu ekki á óvart og eru líkurnar á því að Trump mæti Joe Biden, forseta, í kosningunum í nóvember orðnar töluvert meiri. Erlent 24.1.2024 16:54