Innherjasvik hjá Icelandair
Þynging og sýkna í innherjasvikamáli í Icelandair
Landsréttur staðfesti í dag þriggja og hálfs árs fangelsisdóm yfir Kristjáni Georg Jósteinssyni í Icelandair-innhverjasvikamálinu. Þá var dómur yfir Kjartani Jónssyni þyngdur úr átján mánuðum í tvö ár. Kjartan Bergur Jónsson, sem fékk fjögurra mánaða skilorðsbundinn dóm í héraði, var sýknaður í Landsrétti.
Þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir innherjasvik hjá Icelandair
Mennirnir þrír sem ákærðir voru í Icelandair-innherjasvikamálinu voru allir sakfelldir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Innherjasvik í Icelandair: Segir sekt Kjarra Sambó alls ekki blasa við
Ákæran á hendur Kjartani Bergi Jónssyni er svo furðuleg að það hvarflaði að honum að fara fram á frávísun málsins, að sögn Gríms Sigurðarsonar verjanda hans. Kjartan Bergur hafi þó að endingu viljað fara fram á að vera sýknaður, í eitt skipti fyrir öll.
Innherjasvik í Icelandair: Minnti á að reynsluboltinn í kampavínsklúbbsrekstri væri fjölskyldumaður
Reimar Snæfell Pétursson fer fram á sýknudóm yfir Kristjáni Georgi Jósteinssyni.
„Áður en öndin talar eða gengur þá verður að finna öndina“
Jónas Friðrik Jónsson, verjandi Kjartans Jónssonar, segir að ákæruvaldinu hafi mistekist að renna stoðum undir nokkur lykilatriði, sem þyrftu að vera til staðar svo að hægt sé að sakfella skjólstæðing sinn.
Innherjasvik í Icelandair: „Ef það lítur út eins og önd...“
Að sögn saksóknara byggði sönnunarfærsla í svona málum því oftar en ekki á óbeinni sönnun, sem telst þó fullgild sönnun samkvæmt íslenskum lögum. Ef það lítur út eins og önd, labbar eins og önd og kvakar eins og önd – þá er það líklega önd, eins og Finnur komst að orði.
Fátítt að vísa ákærðum út
Aðalmeðferð í innherjasvikamáli tengdu Icelandair líkur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag með munnlegum málflutningi.
Innherjasvik í Icelandair: Fimm milljóna lán í reiðufé til að koma Matstöðinni á koppinn
Matthías Sveinbjörnsson, forstöðumaður tekjustýringar hjá Icelandair, segist hafa haft upplýsingar frá Kjartani Jónssyni til hliðsjónar þegar hann gerði tekjuspár fyrir Icelandair.
„Það hlyti allt að fara til helvítis sem tengdist þessum geira“
Kjartan Bergur Jónsson, þriðji maðurinn sem ákærður er i Icelandair-innherjasvikamálinu, gaf skýrslu þegar aðalmeðferð málsins hélt áfram eftir hádegis hlé.
Innherjasvik í Icelandair: Segist vakna á morgnana og bíða eftir að dagurinn klárist
Gunnar Nelson, milljónir í bókahillu, íslenskumenntun og afmælisdagur á nærbuxunum er meðal þess sem bar á góma við aðalmeðferðina í Icelandair-innherjasvikamálinu svokallaða.
Reynslubolti í rekstri kampavínsklúbba svarar nú fyrir innherjasvik
Kristján Georg Jósteinsson er einn þriggja sem ákærðir eru í Icelandair-innherjasvikamálinu.
Sá þriðji neitar sök í Icelandair-málinu
Kristján Georg Jósteinsson neitaði sök þegar þinghaldi var framhaldið í Icelandar-innherjasvikamálinu svokallaða.
Ákæra gefin út í Icelandair máli
Gefin hefur verið út ákæra á hendur yfirmanni hjá Icelandair sem sendur var í leyfi vegna meintra brota á lögum um verðbréfaviðskipti.