Formúla 1
70 71 72 73 74 75 76 77 78 … 101 ›
Barrichello íhugar tilboð frá Indy kappakstursliði Rubens Barrichello hefur á undanförnum dögum tekið þátt í æfingaakstri hjá KV Racing Technology sem staðsett er í Bandaríkjunum. Svo gæti farið að hinn 39 ára gamli Brasilíumaður keppi í Indy kappakstrinum en Barrichello hefur keppt í 19 ár sem Formúlu 1 ökumaður. Formúla 1 6.2.2012 16:54
Hamilton yfirgefur Sviss og flytur til Mónakó Breski formúluökumaðurinn Lewis Hamilton ætlar að flytjast búferlum frá Sviss til Mónakó en Lewis hefur búið í Sviss frá árinu 2007. Hamilton bjó fyrstu þrjú árin í Genf en hann hefur búið í Zürich undanfarin misseri. Samkvæmt breskum fjölmiðlum er Hamilton frekar leiður á rólegheitunum í Sviss. Formúla 1 6.2.2012 16:34
Hamilton: Ég missti alla einbeitingu á síðasta tímabili Formúli 1 ökuþórinn Lewis Hamilton hefur nú stigið fram í sviðsljósið og viðurkennt að hann hafi misst einbeitinguna bæði innan sem og utan brautarinnar árið 2011. Formúla 1 5.2.2012 17:39
Hamilton á sér leynda tónlistardrauma Ökuþórinn og Formúlu 1-kappinn Lewis Hamilton er í enskum fjölmiðlum í dag sagður hafa varið frítíma sínum í að taka upp frumsamin lög í hljóðveri í Englandi. Formúla 1 1.1.2012 16:14
Button: Finnst að okkar tími sé að koma Jenson Button varð í öðru sæti í heimsmeistaramótinu í Formúlu 1 á þessu keppnistímabili á eftir Sebastian Vettel. Hann telur að ef McLaren liðið bætir sig aðeins fyrir næsta ár þá geti liðið barist um fleiri sigra en í ár. Fyrstu æfingar Formúlu 1 liða fyrir næsta keppnistímabil verða í febrúar á Spáni. Formúla 1 23.12.2011 03:48
Raikkönen: Býst við að fólk hafi saknað mín! Kimi Raikkönen mætir aftur til keppni í Formúlu 1 á næsta ári, eftir tveggja ára hlé frá íþróttinni. Hann var látinn hætta hjá Ferrari í lok ársins 2009 og Fernando Alonso tók sæti hans fyrir keppnistímabilið 2010. Raikkönen mun keppa með Lotus Renault liðinu á næsta ári og gerði tveggja ára samning við Renault eins og liðið heitir í dag, en nafni liðsins verður breytt á næsta tímabili með samþykki FIA. Formúla 1 22.12.2011 00:53
Alonso fagnar endurkomu Raikkönen Fernando Alonso, ökumaður Ferrari fagnar því að Kimi Raikkönen er að fara keppa aftur í Formúlu 1 með liði sem kallast mun Lotus Renault á næsta ári. Raikkönen var áður hjá Ferrari, en Alonso tók sæti hans hjá liðinu, þó Raikkönen ætti enn ár eftir af samningi sínum við Ferrari liðið. Formúla 1 21.12.2011 09:39
Hülkenberg og Di Resta keppa með Force India 2012 Force India Formúlu 1 liðið staðfesti í dag að Nico Hülkenberg og Paul Di Resta keppa með liðinu á næsta keppnistímabili. Þar með er ljóst að Adrian Sutil sem var keppnisökumaður á þessu ári með liðinu verður það ekki á næsta ári. Hulkenberg var varaökumaður liðsins í ár, en fær nú sæti keppnisökumanns í stað Sutil. Formúla 1 16.12.2011 17:14
Stanslaust hringt í nýliðann Vergne eftir ráðningu Jean Eric Vergne verður nýliði sem keppnisökumaður í Formúlu 1 á næsta ári með Torro Rosso liðinu. Hann varð meistari í Formúlu 3 í Bretlandi 2010 og náði markverðum árangri á æfingum ungra ökumanna í Abú Dabí eftir síðustu Formúlu 1 keppni ársins á dögunum.. Formúla 1 16.12.2011 09:59
Staða átta Formúlu 1 ökumanna óljós fyrir 2012 Vegna tilkynningar Torro Rosso um nýja ökumenn liðsins í gær, þá er ljóst að aðeins fjögur ökumannssæti eru laus í Formúlu 1 á næsta ári og átta ökumenn sem kepptu á þessu tímabili hafa ekki verið staðfestir hjá neinu keppnisliði enn sem komið er. Formúla 1 15.12.2011 10:42
Torro Rosso skiptir um keppnisökumenn fyrir næsta ár Torro Rosso liðið ítalska hefur ákveðið að skipta um keppnisökumenn fyrir næsta keppnistímabil. Jean Eric Vergne og Daniel Ricciardo verða ökumenn liðsins í stað Sebastian Buemi og Jamie Alguersuari. Vergne verður nýliði sem keppnisökumaður í Formúlu 1, en Ricciardo ók með HRT liðinu á þessu keppnistímabili, eftir að hafa tekið sæti Narain Karthikeyan. Formúla 1 14.12.2011 18:16
Vettel: Við áttum stórkostlegt tímabil Sebastian Vettel tók á móti heimsmeistarabikar ökumanna í Formúlu 1 í Indlandi á föstudagskvöld. Hann mætti síðan með Red Bull liðinu á sérstaka uppákomu í Milton Keynes í Bretlandi á laugardag til að fagna árangri sínum og liðsins, sem vann meistaratitil bílasmiða annað árið í röð á keppnistímabilinu. Vettel vann ellefu mót á árinu og vann meistaratitil ökumanna annað árið í röð og segir keppnistímabilið hafa verið stórkostlegt. Formúla 1 12.12.2011 15:04
Formúlu 1 meistaraliðinu fagnað á heimaslóðum Um 60.000 manns fögnuðu Formúlu 1 meistaraliði Red Bull í Milton Keynes í Bretlandi í gær þegar meistari ökumanna, Sebastian Vettel og Mark Webber óku bílum liðsins á götum bæjarins. Red Bull liðið er með aðsetur í bænum. Ökumennirnir tveir og Christian Horner, yfirmaður liðsins tóku á móti verðlaunum á verðlaunahátið FIA, alþjóðabílasambandsins í Nýju Delí í Indlandi á föstudagskvöld. Formúla 1 11.12.2011 11:39
Vettel tók á móti heimsmeistarabikarnum Sebastian Vettel tók á móti heimsmeistarabikar ökumanna í Fornúlu 1 á sérstakri verðlaunahátíð FIA, alþjóðabílasambandsins sem fór fram í Nýju Delí í Indlandi í gærkvöldi. Jean Todt forseti FIA afhenti Vettel bikarinn, en Vettel tryggði sér meistaratitilinn í Formúlu 1 annað árið í röð á þessu keppnistímabili með Red Bull liðinu. Formúla 1 9.12.2011 22:18
Grosjean keppir með Lotus Renault á næsta ári Romain Grosjean sem hefur verið varaökumaður Renault liðsins hefur verið ráðinn sem keppnisökumaður liðsins á næsta ár. Þá mun liðið heita Lotus Renault. Grosjean mun keppa við hlið Kimi Raikkönen, sem var tilkynntur sem ökumaður liðsins á dögunum. Formúla 1 9.12.2011 13:04
FIA staðfesti að 20 Formúlu 1 mót verða á dagskrá 2012 FIA, alþjóðabílasambandið staðfesti í dag að 20 Formúlu 1 mót verða á dagskrá á næsta ári og verður væntanlega nýtt mótssvæði tekið í notkun í Austin í Texas í Bandaríkjunum. Formúla 1 7.12.2011 16:02
Pastor Maldonado áfram hjá Williams Pastor Maldonado verður áfram ökumaður Williams Formúlu 1 liðsins á næsta ári og Valteri Bottas verður varaökumaður liðsins. Maldonado byrjaði að keppa með Williams á þessu ári við hlið Rubens Barrichello. Formúla 1 2.12.2011 12:24
Raikkönen: Ég tapaði aldrei ástríðunni fyrir Formúlu 1 Kimi Raikkönen mætir til keppni í Formúlu 1 á næsta ári með Lotus Renault liðinu, eftir að hafa keppt tvö ár í rallakstri. Hann ók síðast með Ferrari árið 2009 í Formúlu 1 og var bæði í viðræðum við forráðamenn Williams og Renault um næsta tímabil, en valdi að ganga til liðs við síðarnefnda liðið, sem mun heita Lotus Renault á næsta keppnistímabili. Formúla 1 30.11.2011 14:00
Sex meistarar keppa saman í fyrsta skipti í sögu Formúlu 1 Sex ökumenn sem hafa orðið heimsmeistarar í Formúlu 1 keppa í íþróttinni á næsta ári. Það hefur ekki komið fyrir áður að jafn margir Formúlu 1 meistarar aki í mótaröðinni á sama keppnistímabili, en keppt hefur verið í Formúlu 1 síðan 1950. Formúla 1 29.11.2011 16:58
Kimi Raikkönen keppir aftur í Formúlu 1 2012 Finninn Kimi Raikkönen, fyrrum heimsmeistari í Formúlu 1, hefur samið við Renault liðið um keppa með því næstu tvö árin. Raikkönen varð heimsmeistari með Ferrari árið 2007, en hætti í Formúlu 1 í lok ársins 2009 og hefur keppt í rallakstri síðan. Formúla 1 29.11.2011 09:42
Horner segir að sigurinn muni auka sjálfstraust Webber Christian Horner, yfirmaður Red Bull Formúu 1 liðsins telur að sigur Mark Webber í Formúlu 1 mótinu í Brasilíu í gær sé gott veganesti fyrir hann inn í veturinn, en næsta keppnistímabil hefst í mars 2012. Webber vann eitt mót á keppnistímabilinu á meðan liðsfélagi hans, Sebastian Vettel vann ellefu mót og tryggði sér heimsmeistaratiti ökumanna. Formúla 1 28.11.2011 16:08
Charles Pic ekur með Marussia liðinu 2012 Marussia Virgin Formúlu 1 liðið hefur samið við Charles Pic frá Frakklandi um að aka með liðunu 2012 ári, en Timo Glock hefur þegar gert samning um að keppa áfram með liðinu á næsta ári. Marussia Virgin hefur fengið leyfi FIA til að breyta nafni liðsins fyrir næsta tímabil og bílar liðsins munu heita Marussia á næsta ári, í stað Virgin. Liðið er að hluta til í eigu rússneska sportbílaframleiðandans Marussia. Formúla 1 28.11.2011 15:07
Vettel segir tímabilið hafa verið undarvert Sebastian Vettel var ánægður að að Red Bull liðið lauk Formúlu 1 keppnistímabilinu með sigri í Brasilíu í dag, þó hann hefði fallið Mark Webber í skaut. Vettel sagði að Webber hefði átt sigurinn skilið. Vettel vann elleftu mót ár keppnistímabilinu með Red Bull liðinu og varð meistari ökumanna annað árið í röð og lið hans meistari bílasmiða. Formúla 1 27.11.2011 22:54
Webber: Alltaf gaman að vinna Mark Webber hjá Red Bull liðinu vann sinn fyrsta sigur á keppnistímabilinu þegar hann kom fyrstur í endamark í brasilíska Formúlu 1 kappakstrinum í dag. Webber sagði sigurinn mikilvægan fyrir sig, en mótið í Brasilíu var það síðasta á keppnistímabilinu í Formúlu 1. Formúla 1 27.11.2011 22:02
Webber vann í Brasilíu Mark Webber hjá Red Bull varð hlutskarpastur í Brasilíukappakstrinum í Formúlunni í dag. Þetta var lokamót tímabilsins og fyrsti sigur Webber. Formúla 1 27.11.2011 18:06
Vettel ánægður eftir hafa slegið met Sebastian Vettel hjá Red Bull Formúlu 1 liðinu var ánægður með árangurinn í tímatökunni í Brasilíu í dag. Hann náði besta tíma og sló met sem hann átti með Nigel Mansell hvað besta árangur í tímatöku á sama ári varðar. Formúla 1 26.11.2011 21:48
Vettel náði besta tíma í tímatökunni og setti nýtt met Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í Formúlu 1 tímatökunni á Jose Carlos Pace brautinni í Brasilíu í dag. Hann varð 0.181 úr sekúndu á undan Mark Webber liðsfélaga sínum hjá Red Bull. Jenson Button náði þriðja besta tíma á McLaren. Formúla 1 26.11.2011 19:29
Vettel fljótastur á lokaæfingunni og getur slegið met í tímatökunni Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma á lokaæfingu Formúlu 1 liða á Jose Carlos Pace brautinni í Brasilíu í dag. Jenson Button á McLaren varð annar og var 0.087 úr sekúndu á eftir Vettel, en Mark Webber á Red Bull náði þriðja besta tíma. Hann var 0.137 úr sekúndu á eftir Vettel. Formúla 1 26.11.2011 14:21
Kubica ekki tilbúiinn að keppa í Formúlu 1 í upphafi næsta tímabils Robert Kubica tilkynnti Formúlu 1 liði Renault í dag, að þrátt fyrir að hann sé í öflugri endurhæfingu, þá sé oft snemmt fyrir að hann skuldbinda sig til að keppa í Formúlu 1 í upphafi næsta keppnistímabils. Kubica meiddist í rallkeppni s.l. vetur og gat ekki keppt með Renault á þessu keppnistímabili og liðið hefur beðið eftir fréttum af Kubica vegna næsta árs. Kubica telur sig þurfa lengri tíma til að ná fullri heilsu. Formúla 1 23.11.2011 14:44
Barrichello vill ekki hætta í Formúlu 1 Rubens Barrichello verður á heimavelli í Formúlu 1 mótinu í Brasilíu um næstu helgi með Williams liðinu, en liðið hefur ekki framlengt samning hans til næsta árs enn sem komið er svo vitað sé. Hefur liðið m.a. rætt við Kimi Raikkönen um möguleikann á því að aka með liðinu á næsta ári. Formúla 1 22.11.2011 15:09