Ástin á götunni
331 332 333 334 ›
KR áfram eftir bráðabana KR komst naumlega áfram í 8 liða úrslit VISA bikarkeppni karla eftir sigur á 1. deildarliði Víkings í vítaspyrnukeppni og bráðabana. Gunnar Kristjánsson skoraði úr síðustu vítaspyrnunni fyrir KR eftir að Kristján Finnbogason hafði varið vítaspyrnu frá markverði Víkinga í bráðabana. Staðan að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu var 3-3. Sport 13.10.2005 19:27
Hálfleikur í Visa-bikarleikjunum 16 liða úrslit Visa bikars karla í knattspyrnu hófust með þremur leikjum kl. 19:15 í kvöld og má segja að óvæntar tölur séu í tveimur þeirra þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Breiðablik er 0-1 yfir gegn ÍA á Akranesi og það er jafnt, 2-2 hjá 1. deildarliði Víkinga gegn KR. Valsmenn eru 2-0 yfir gegn Haukum á Hlíðarenda. Sport 13.10.2005 19:27
Helgi Sig mætir Ronaldinho Helgi Sigurðsson og félagar í danska úrvalsdeildarliðinu AGF Aarhus mæta Spánarmeisturum Barcelona í æfingaleik í knattspyrnu þann 25. júlí næstkomandi. Óhætt er að segja að Atletions Stadion, heimavöllur AGF verði þétt setinn þegar Helgi mætir Ronaldinho, Samuel Etoo og hinum snillingunum. Sport 13.10.2005 19:27
Gerrard áfram hjá Liverpool? Óstaðfestar fréttir frá Liverpool herma að Steven Gerrard fyrirliði enska úrvalsdeildarliðsins verði eftir allt saman um kyrrt hjá félaginu. Gerrard fundaði með Rafael Benitez knattspyrnustjóra og Rick Parry stjórnarformanni Liverpool fyrr í kvöld og sást yfirgefa Anfield um klukkustund síðar. Sport 13.10.2005 19:28
Valur og ÍA í 8 liða úrslitin Landsbankadeildarlið ÍA hefur tryggt sér sæti í 8 liða úrslitum VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Breiðabliki í framlengdum leik uppi á Skaga. Fyrr í kvöld vann Landsbankadeildarlið Vals 1. deildarlið Hauka, 5-1 á Hlíðarenda. Garðar Gunnlaugsson skoraði þrennu fyrir Val. Nú er að hefjast vítaspyrnukeppni hjá Víkingi og KR. Sport 13.10.2005 19:27
Norska úrvalsdeildin Haraldur Freyr Guðmundsson skoraði fyrir lið sitt Álasund í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Álasund tapaði 1-2 á heimavelli fyrir Hannesi Sigurðssyni og félögum hans í Víkingi. Sport 13.10.2005 19:27
Keflavík yfir gegn FH 8. umferð Landsbankadeildar kvenna í fótbolta hófst í kvöld kl. 20 með einum leik. Keflavík er yfir á útivelli, 0-1 gegn FH. Vesna Smiljkovic skoraði markið á 21. mínútu. Í Visa bikar karla var Garðar Gunnlaugsson að koma Val í 4-1 gegn Haukum og hefur hann því skorað tvö marka Valsmanna. Sport 13.10.2005 19:27
Jörundur spáir Blikasigri Í öllum þremur leikjunum í VISA-bikarnum í kvöld leika lið úr Landsbankadeildinni gegn liðum úr 1.deild. Toppliðin tvö í 1.deildinni kljást bæði við lið sem eru um miðja Landsbankadeildina og því gæti fólk séð í þeim leikjum hver munurinn milli deildanna tveggja er. Sport 13.10.2005 19:27
Viðræður Gerrards strandaðar? Ensku slúðurblöðin eru uppfull af því að Chelsea muni gera Liverpool tilboð í Steven Gerrard. Blöðin segja að viðræður Gerrards og Liverpool hafi siglt í strand í gærkvöldi og að Rafael Benitez knattspyrnustjóri vilji selja fyrirliðann til að fjármagna kaup á nýjum leikmönnum. Sport 13.10.2005 19:27
Zenden kominn til Liverpool Boudewijn Zenden stóðst læknisskoðun hjá Evrópumeisturum Liverpool og gengur til liðs við félagið á mánudag. Zenden kemur á frjálsri sölu frá Middlesbrough. Hann er 28 ára miðjumaður og á að baki fjölmarga landsleiki fyrir Hollendinga. Hann lék áður með Barcelona og Chelsea. Sport 13.10.2005 19:27
Samningi Vieris rift Ítalska knattspyrnuliðið Internazionale hefur rift samningi við framherjann Christian Vieri. Vieri átti ár eftir af samningi en það varð að samkomulagi milli leikmannsins og félagsins að leiðir myndu skilja. Sport 13.10.2005 19:27
Baráttusigur Valsmanna Valsarar sigruðu Þróttarar í Laugardalnum í gærkvöldi og fylgja FH-ingum eins og skugginn Sport 13.10.2005 19:26
Ferguson fær peninga til að kaupa Joel Glazer, einn hinna nýju stjórnarmanna Manchester United, hefur fullvissað stuðningsmenn liðsins um að knattspyrnustjórinn, Alex Ferguson, fái peninga til þess að kaupa leikmenn. Joel Glazer er sonur Bills Glazer, bandaríska auðkýfingsins sem borgaði 92 milljarða króna þegar hann keypti félagið fyrr í sumar. Sport 13.10.2005 19:27
Guðjón ræður sér aðstoðarmann Guðjón Þórðarson hefur ráðið sér aðstoðarmann hjá Notts County. Ross McLaren heitir hann og hefur verið aðstoðarstjóri hjá Derby og Aston Villa. Sport 13.10.2005 19:27
Roma má ekki kaupa í eitt ár Alþjóða knattspyrnusambandið hefur bannað ítalska liðinu Roma að kaupa leikmenn í eitt ár. Romaliðið braut reglur þegar það keypti franska leikmanninn Philp Mexes í fyrra. Mexes var búinn að ganga frá samningi við franska liðið Auxerre en forráðamenn Roma settu sig í samband við leikmanninn og hvöttu hann til þess að hætta við félagaskiptin. Sport 13.10.2005 19:27
Lánssamningur við Liverpool Liverpool hefur gengið frá lánssamningi við tvítugan útherja frá spænska liðinu Albacete. Mark Gonzales er Chilemaður og Liverpool fær kauprétt á honum, standi hann sig hjá félaginu. Albacete féll úr spænsku úrvalsdeildinni og er til í að selja Gonzales á 550 milljónir króna. Sport 13.10.2005 19:27
Ronaldo nálægt samningi við United Portúgalinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United er kominn á fremsta hlunn með að skrifa undir nýjan samning við félagið, ef marka má orð knattspyrnustjórans Alex Ferguson, sem segir strákinn líklega ganga frá málinu síðar í kvöld. Sport 13.10.2005 19:26
Alpay þrisvar útaf Tyrkneski knattspyrnumaðurinn Alpay vann það afrek að vera þrisvar sinnum rekinn útaf í 7 leikjum í japönsku 1. deildinni. Sport 13.10.2005 19:26
Robinho til Real Madríd? Líkur á að Brasiliumaðurinn Robinho fari til spænska liðsins Real Madríd eru taldar meiri en áður eftir að leikmaðurinn lýsti því yfir við í samtali við brasilíska sjónvarpsstöð í gærkvöldi að Real Madríd væri góður kostur fyrir sig. Sport 13.10.2005 19:26
Brasilía vann Argentínu Brasilíumenn sigruðu Argentínumenn með fjórum mörkum gegn einu í úrslitaleik álfukeppninnar í knattspyrnu í Frankfurt í Þýskalandi í gærkvöldi. Adriano og Kaka skoruðu í fyrri hálfleik og Ronaldinho kom Brasilíumönnum í 3-0 í byrjun síðari hálfleiks. Sport 13.10.2005 19:26
Poulis vonsvikinn "Ég vill taka það fram að litarháttur eða þjóðerni hafa aldrei haft áhrif á hvernig ég stilli upp mínu liði," sagði vonsvikinn Tony Pulis í samtali við breska fjölmiðla í gær, daginn eftir að hafa verið rekinn frá enska knattspyrnufélaginu Stoke City, sem er að mestu í eigu íslenska fjárfesta. Sport 13.10.2005 19:26
Sao Paulo í úrslit Brasilíska liðið Sao Paulo komst í gærkvöldi í úrslit Suður Ameríkukeppni félagsliða í knattspyrnu eftir 3-2 sigur á argentínska liðinu River Plate. Sao Paolo vann fyrri leikinn 2-0 og því samtals með fimm mörkum gegn tveimur. Sao Paulo mætir annað hvort Atletico Paranaense Brasilíu eða Guadalajara Mexikó í úrslitum. Sport 13.10.2005 19:26
Deyðu Glazer, deyðu Stuðningsmenn Manchester United sýndu vilja sinn í verki þegar nýju stjórnarmenn félagsins, synir Malcom Glazer, mættu á Old Trafford í gær. Kalla á lögreglu til að skakka leikinn þegar fjöldi stuðningsmanna voru með hávær mótmæli fyrir framan völlinn. Sport 13.10.2005 19:26
Gaui vill vinna Mansfield Guðjón Þórðarson hefur lofað áhangendum Notts County að liðið muni leggja sig allt fram undir sinni stjórn á komandi tímabili, en leikmenn eru að koma saman eftir sumarleyfi um þessar mundir og munu hefja stífar æfingar að hætti Guðjóns til að koma sér í stand fyrir átökin. Sport 13.10.2005 19:26
Real Madrid kaupir Garcia Real Madríd hefur fest kaup á 28 ára úrguvæskum miðjumanni, Pablo Garcia frá Osasuna. Garcia er miðjumaður og kemur væntanlega til með að berjast um stöðu í Madrídarliðinu við Danann Thomas Gravesen. Sport 13.10.2005 19:26
Yakubu fær ekki atvinnuleyfi Framherjinn sterki Yakubu, sem Middlesbrough keypti frá Portsmouth fyrir skömmu, uppfyllir ekki þau skilyrði sem sett eru varðandi leikjafjölda með landsliði sínu og hefur því verið synjað um atvinnuleyfi á Englandi. Sport 13.10.2005 19:26
Stoke fréttir Fyrrverandi knattspyrnustjóri Stoke City, Tony Pulis, samdi við framherjann Mamady Sidibe án vitundar Gunnars Þórs Gíslasonar stjórnarformanns félagsins. Þetta kemur fram á Oatcake heimasíðu stuðningsmanna liðsins. Sport 13.10.2005 19:26
Collina dæmir áfram Pierluigi Collina, besti dómari heims, fær að sinna starfi sínu í eitt tímabil til viðbótar vegna nýrra reglna sem ítalska knattspyrnusambandið samþykkti í gær. Collina er orðinn 45 ára og átti að vera hættur þar sem hann hafði náð hámarksaldri dómara. Sport 13.10.2005 19:26
Robinho vill fara til Madrid Brasilíska undrabarnið Robinho hefur tekið af allan vafa um framtíð sína og segist vilja ganga til liðs við Real Madrid á Spáni, en hinn 21-árs gamli sóknarmaður hefur verið orðaður við félög á Englandi. Sport 13.10.2005 19:26
Phillips til Aston Villa Framherjinn Kevin Phillips staldraði stutt við í ensku fyrstu deildinni, því í þessum töluðu orðum er lið Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni að ganga frá kaupum á leikmanninum frá Southampton, sem eins og kunnugt er féll úr úrvalsdeildinni í vor. Sport 13.10.2005 19:26