Ástin á götunni
320 321 322 323 324 325 326 327 328 … 334 ›
Kieran Richardson áfram hjá United Táningurinn Kieran Richardson sem sló í gegn með W.B.A. á síðustu leiktíð í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnunni vill ekki fara aftur félagsins en hann var þar af láni á síðustu leiktíð frá Manchester United. Þess í stað ætlar hann að reyna að berjast fyrir sæti sínu hjá United. Sport 13.10.2005 19:37
Zidane aftur í franska landsliðið Franska goðsögnin Zinedine Zidane hjá Real Madrid kom fótboltaheiminum í opna skjöldu í dag þegar hann tilkynnti endurkomu sína í franska landsliðið, um ári eftir að hann tilkynnti að hann væri endanlega hættur að leika með liðinu. Claude Makelele, miðjumaður Chelsea hefur einnig boðið þjónustu sína í landsliðið en hann hafði einnig sagt skilið við landsliðið. Sport 13.10.2005 19:37
Vålerenga áfram í Meistaradeild Árni Gautur Arason og félagar í norska liðinu Vålerenga tryggðu sér í kvöld farseðilinn í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu þegar þeir lögðu Haka frá Finnlandi 1-4 á útivelli. Árni lék að venju allan leikinn í marki Vålerenga sem mætir Club Brugge frá Belgíu í næstu umferð forkeppninnar. Sport 13.10.2005 19:37
Houllier vill fá Owen Franska knattspyrnustórveldið Lyon lýsti því yfir í dag að félagið hafi mikinn áhuga á að fá enska landsliðsmanninn Michael Owen frá Real Madrid. Owen viðurkenndi í fjölmiðlum fyrr í dag að hann hafi átt í viðræðum við þrjú eða fjögur úrvalsdeildarlið á Englandi undanfarna daga. Sport 13.10.2005 19:37
Fram-FH í beinni á Vísi Leikur Fram og FH í VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu hefst nú kl. 19:40 á Laugardalsvelli. Hægt er að fylgjast BEINT með leiknum á <a href="/UserControls/infosport/ifis_leikurHP.aspx?LeikNr=1000301&st=NS&re=00060&sy=1" target="_blank"><strong>BOLTAVAKTINNI</strong></a> hér á Vísi. Sport 13.10.2005 19:37
Fram jafnaði og framlengt gegn FH Leikur Fram og FH fer í framlengingu en Daninn Bo Henriksen jafnaði metin fyrir Fram 3 mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma í bikarundanúrslitaleik liðanna á Laugardalsvelli. Allt stefndi í öruggan sigur FH sem leiddi 2-0 með mörkum frá Allan Borgvardt í fyrri hálfleik. Andri Fannar Ottósson minnkaði muninn í 2-1 á 81. mínútu. Sport 13.10.2005 19:37
Schalke deildarbikarmeistari Schalke hrósaði sigri í þýsku deildarbikarkeppninni í gær þegar liðið lagði Stuttgart 1-0 í úrslitaleik. Kevin Kuranyi, fyrrverandi leikmaður Stuttgarti, skoraði sigurmarkið á 10. mínútu. Hann fékk síðan að líta rauða spjaldið um miðjan síðari hálfleik og á lokamínútunni var svo samherja hans, Brasilíumanninum Lincoln einnig vikið af velli. Sport 13.10.2005 19:37
Liverpool áfram í Meistaradeild Liverpool tryggði sér í kvöld farseðilinn í 3. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar þegar Evrópumeistararnir lögðu Kaunas frá Litháen, 2-0 í síðari leik liðanna á Anfield. Samanlagður sigur því 5-1. Steven Gerrard skoraði fyrra mark Liverpool í kvöld á 77. mínútu aðeins þremur mínútum eftir að hann kom inn á af varamannabekknum. Sport 13.10.2005 19:37
Carson og Crouch í byrjunarliðinu Sami Hyypia er fyrirliði Liverpool í kvöld þegar Evrópumeistararnir taka á móti Kaunas frá Litháen í síðari viðureign liðanna í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Rafael Benitez setur ungstirnið Scott Carson í markið í stað Jose Reina og þá er kóngurinn á Anfield, Steven Gerrard á varamannabekknum ásamt öðrum stórjöxlum. Leikurinn hófst kl. 18:45. Sport 13.10.2005 19:37
Markalaust í hálfleik á Anfield Staðan í hálfleik í viðureign Liverpool og Kaunas í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar er 0-0 en leikið er á Anfield. Leikurinn hófst kl. 18:45. Þetta er síðari leikur liðanna en Liverpool vann fyrri leikinn í Litháen 1-3. Liverpool hefur ráðið gangi leiksins í fyrri hálfleik. Sport 13.10.2005 19:37
Stubbs til Sunderland Varnarmaðurinn, Alan Stubbs er genginn til liðs við nýliða Sunderland í ensku úrvalsdeildinni en hann var leystur undan samningi við Everton í lok síðustu leiktíðar. Stubbs er 33 ára gamall og var fyrirliði Everton í fyrra sem lennti í fjórða sæti og vann sér sæti í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Sport 13.10.2005 19:37
Laudrup skoraði gegn Íslandi U17 Íslenska piltalandsliðið í knattspyrnu, 17 ára og yngri, tapaði í dag fyrir Danmörku, 4-0, á KR-velli í fyrsta leik sínum á Norðurlandamótinu sem hófst í dag. Mads Thunø Laudrup, sonur dönsku goðsagnarinnar Michael Laudrup, skoraði eitt marka danska landsliðsins í dag. Næsti leikur Íslands verður gegn Írum á morgun klukkan 14.30 á Keflavíkurvelli. Sport 13.10.2005 19:37
Newcastle á eftir Owen Komið hefur upp úr krafsinu að enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle Utd þykir líklegast til þess að hreppa landsliðsmanninn Michael Owen hjá Real Madrid. Hefur Manchester United oftast verið nefnt í því samhengi en BBC hefur öruggar heimildir fyrir því að Man Utd hafi ekki falast eftir Owen. Sport 13.10.2005 19:37
Helsingborg - Djurgarden Heilsingborg sigraði Djurgarden með tveimur mörkum gegn engu í uppgjöri efstu liðanna í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Kári Árnason var í byrjunarliði Djurgarden, en var tekinn af velli þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. Sport 13.10.2005 19:37
Sveittur og kaldur með Liverpool Sigursteinn Brynjólfsson formaður Liverpool klúbbsins á Íslandi á von á því að Jerzy Dudek og Milan Baros fari frá félaginu innan skamms. Hann ætlar á Players í kvöld að horfa á seinni leik Liverpool og Kaunas frá Litháen í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn og hefst kl. 18:45. Sport 13.10.2005 19:37
Andy Johnson áfram hjá Palace <div class="Text194214">Markamaskínan, Andy Johnson, verður áfram í herbúðum Crystal Palace þrátt fyrir að liðið hafi fallið í B deild í vor. Johnson, sem var næstmarkahæsti leikmaður Úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð skrifaði undir fimm ára samning við Palace í gær. Þar með lýkur vangaveltunum um framtíð hans í bili að minnsta kosti.</div> Sport 13.10.2005 19:37
Liverpool lánar Le Tallec Franski sóknarmaðurinn Anthony Le Tallec sem verið hefur hjá Liverpool í á þriðja ár hefur gengið til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Sunderland á árslöngum lánssamningi. Le Tallec er tvítugur og var keyptur til félagsins ásamt Florent Sinama-Pongolle í stjóratíð Gerard Houllier. Sport 13.10.2005 19:37
Leikið við Kólumbíu í ágúst Íslenska landsliðið í knatttspyrnu mætir Kólumbíu í vináttulandsleik á Laugardalsvelli þann 17 ágúst n.k. Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson, landsliðsþjálfarar hafa valið hópinn sem mætir Suður Ameríkumönnunum. Sport 13.10.2005 19:37
Norðurlandamót drengjalandsliða Norðurlandamót drengjalandsliða í knattspyrnu hefst í dag , en leikið verður hér á landi. Leikið er í tveimur riðlum og taka átta þjóðir þátt í mótinu. Íslendingar mæta Dönum í fyrsta leik á KR vellinum hlukkan 14:30, en Ísland og Danmörk léku til úrslita á mótinu í Finnlandi á síðasta ári. Þá höfðu Danir sigur , 3 - 0 , en Ísland vann sigur á mótinu árið 2002. Íslendingar leika í A riðli ásamt Dönum , Írum og Norðmönnum. Í B riðli eigast við Svíar, Finnar, Færeyingar og Englendingar. Sport 13.10.2005 19:37
Ótrúlegur leikur í Glasgow í kvöld Glasgow Celtic er úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu þrátt fyrir 4-0 sigur á Artmedia frá Slóvakíu á Celtic Park í kvöld. Slóvaska liðið vann fyrri leikinn heima fyrir 5-0 og því hefði Celtic þurft að komast í sögubækurnar til að knýja fram framlengingu með því að vinna upp þann mun. Sport 13.10.2005 19:37
Góð byrjun hjá Glasgow Rangers Glasgow Rangers byrjuðu vel í skoska fótboltanum í gær. Þeir unnu Livingstone sannfærandi 3-0. Dado Prso skoraði fyrsta markið á 23 mín. Hinn nýi leikmaður Rangers Pierre-FanFan bætti við öðru marki á 53. mín. Það var svo Daninn Peter Lovendkrands sem innsiglaði góðan sigur Rangers manna. Rétt rúmlega 50 þús manns sáu leikinn á Ibrox. Sport 13.10.2005 19:36
Start enn efst í norska boltanum Start frá Noregi sem Jóhannes Harðarson leikur með, er enn efst í norska fótboltanum. Start sigraði Molde 1-0 en Jóhannes var varamaður í leiknum og fékk ekki að spreyta sig. Start er með 33 stig. Sport 13.10.2005 19:36
Owen til United? Michael Owen, leikmaður Real Madrid gæti verið á leiðinni, til Manchester United eftir að Madrídarliðið keyti brasilísku framherjana Baptista og Robinho. Kaupverðið á Owen er talið vera um 12 milljónir punda. Glazer feðgar hafa fulllvissað stjórnarformann United, David Gill að nægt fjármagn sé til staðar til að styrkja liðið. Sport 13.10.2005 19:36
Walter Samuel til Inter Argentínski varnarmaðurinn Walter Samuel, er genginn til liðs við ítölsku bikarmeistaranna í Inter Milan frá spænska risanum Real Madrid. Samuel er 27 ára gamall og lék afleitlega með Real á síðustu leiktíð. Sport 13.10.2005 19:36
Chelsea - AC Milan Í gærkvöldi áttust við Chelsea og AC Milan. Didier Drogba kom Chelsea yfir en Portúgalinn snjalli Rui Costa jafnaði metin á 79. mín. Lokastaðan því 1-1. Eiður Smári var í byrjunarliði Chelsea en var tekinn útaf um miðjan seinni hálfleik. Sport 13.10.2005 19:36
Arsenal vann Amsterdam mótið Arsenal sigraði á Amsterdam-mótinu í knattspyrnu í dag, þegar liðið lagði Porto frá Portúgal 2-1 í úrslitaleik. Svíinn Fredrik Ljungberg , sem nýlega skrifaði undir fjögurra ára framlengingu á samningi sínum við liðið, kom inn á sem varamaður í síðari hálfleiks og skoraði bæði mörk Arsenal. Sport 13.10.2005 19:36
Sigur hjá Räikkönen Finnski ökuþórinn Kimi Räikkönen á McLaren vann sigur í Ungverjalandskappakstrinum í Formúlu eitt í dag. Í öðru sæti varð heimsmeistarinn Michael Schumacher á Ferrari og bróðir hans Ralf varð þriðji á Toyota. Efsti maður stigakeppninnar, Spánverjinn Fernando Alonso á Renault, varð í 11. sæti og lauk keppni án stiga. Sport 13.10.2005 19:36
Start áfram á toppnum Start í Kristiansand sigraði Molde 1-0 í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og heldur þriggja stiga forystu í deildinni. Skagamaðurinn, Jóhannes Harðarson var varamaður í liði Start, en kom ekki við sögu í leiknum. Sport 13.10.2005 19:36
Sögunni endalausu að ljúka? Sögunni endalausu um hvort Brasilíumaðurinn Robinho gangi til liðs við Real Madrid virðist nú loks að ljúka. Á vefsíðu Real segir að að Robinho muni ganga til liðs við hið stjörnuprýdda lið þeirra þann 25. ágúst. Það er vegna þess að lið hans Santos vill að hann spili tvo leiki til að geta hvatt aðdáendur sína í Brasilíu. Sport 13.10.2005 19:36
Rooney gerði tvö í sigri Wayne Rooney gerði bæði mörk Manchester United sem sigraði Urawa Red Diamonds 2-0 í Japan í morgun. Þar með er Asíutúr Manchester United lokið. Næsti æfingaleikur United er gegn belgíska liðinu Antwerpen á miðvikudag. Sport 13.10.2005 19:36