Ástin á götunni
311 312 313 314 315 316 317 318 319 … 334 ›
Óttast um meiðsli Ljungberg Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segist hafa nokkrar áhyggjur af hnémeiðslum Svíans Freddie Ljungberg, sem hann hlaut í leiknum gegn Chelsea í gær. Sport 13.10.2005 19:44
Rúrik aftur til Charlton Rúrík Gíslason, leikmaður fyrstu deildarliðs HK fór í gær til reynslu hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Charlton Athletic í annað skipti. Hann mun æfa með aðalliði félagsins en fyrir hjá Charlton er Hermann Hreiðarsson, landsliðsmaður. Rúrik, 17 ára hefur leikið 11 deildaleiki í framlínu HK en á þó enn eftir að gera mark. Sport 13.10.2005 19:44
Tilboð Aston Villa samþykkt Tilboði Aston Villa uppá 6.5 milljónir punda í tékkneska framherja Liverpool, Milan Baros hefur verið samþykkt og samkvæmt nýjustu fréttum hefur leikmaðurinn samið um kaup og kjör og á eingöngu eftir að standast í læknisskoðun. Sport 13.10.2005 19:44
Jarosik til Birmingham Tékkneski landsliðsmaðurinn Jiri Jarosik er genginn til liðs við Birmingham að láni frá Englandsmeisturum Chelsea. Jarosik, 27 ára, lék 20 leiki fyrir Chelsea á síðasta leiktímabili. Sport 13.10.2005 19:44
Vonbrigði í Ungverjalandi Eftir tvo sigra á Chile og Kongó í upphafi heimsmeistaramóts U-21 landsliða í Ungverjalandi hafa allir þrír leikir Íslands gegn stærri þjóðum tapast, nú síðast gegn Egyptum í gær, 30-25. Sport 13.10.2005 19:44
Eiður út fyrir Essien Eiði Smára Guðjohnsen hefur verið skipt af velli fyrir nýliðann Michael Essien í leik Chelsea og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. Essien sem kom frá Lyon á 26 milljónir punda er að leika sinn fyrsta leik fyrir félagið og var skipt inn fyrir Eið á 59. mínútu. Staðan í leinum sem hófst kl. 15 er ennþá markalaus. Sport 13.10.2005 19:43
Kári kom inn á hjá Djurgården Kári Árnason lék síðustu 8 mínúturnar í liði Djurgården sem endurheimti toppsætið með sigri á Kalmar, 3-1 í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta nú síðdegis. Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék allan leikinn með Halmstad sem steinlá fyrir Gefle, 1-4. Sport 13.10.2005 19:43
Ísland komið yfir í Laugardalnum Dóra María Lárusdóttir hefur komið Íslandi yfir gegn Hvít Rússum á Laugardalsvelli þar sem staðan er orðin 1-0. Mark Dóru kom á 31. mínútu eftir sendingu frá Ólínu Viðarsdóttur. Leikurinn hófst kl. 14:00 og hefur íslenska liðið verið með meiri yfirburði þó Hvít Rússarnir hafi átt skot í neðanverða þverslá íslenska marksins snemma í leiknum. Sport 13.10.2005 19:43
Mörkunum rignir í Laugardalnum Dóra María Lárusdóttir var að koma Íslandi í 3-0 gegn Hvít Rússum á Laugardalsvelli, aðeins 2 mínútum efir mark Margrétar Láru. Dóra er þar með búin að skora tvívegis í leiknum. Yfirburðir Íslands eru algerir og ráða stelpurnar auðveldlega gangi leiksins. Sport 13.10.2005 19:43
Margét Lára kemur Íslandi í 2-0 Margrét Lára Viðarsdóttir hefur komið Íslandi í 2-0 gegn Hvít Rússum á Laugardalsvelli. Markið sem kom á 56. mínútu var einstaklega gæsilegt og er tólfta mark Margrétar í 16 leikjum með landsliðinu. Sport 13.10.2005 19:43
Inter meistari meistaranna Internazionale í Mílano sigraði Juventus í framlengdum leik í ítölsku meistarakeppninni. Argentínumaðurinn Juan Sebastian Veron skoraði sigurmarkið á 6. mínútu í framlengingu. Keppni í ítölsku úrvalsdeildinni hefst um næstu helgi. Sport 13.10.2005 19:43
Drogba kemur Chelsea yfir Didier Drogba hefur komið Chelsea yfir gegn Arsenal í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Markið kom á 73. mínútu og var þó nokkur heppnisstimpill yfir því. Sport 13.10.2005 19:43
Ajax lagði Roosendaal Suður-Afríkumaðurinn Steven Pienaar, sem lék með landsliði sínu gegn Íslendingum á Laugardalsvelli á miðvikudag, skoraði fyrra mark Ajax sem sigraði Roosendaal 2-0 í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Svíinn Markus Roosenberg skoraði seinna markið. Þetta var fyrsti leikur Ajax í deildinni Sport 13.10.2005 19:43
Auðveldur sigur á Hvít-Rússum Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann auðveldan 3-0 sigur á Hvít-Rússum á Laugardalsvelli í dag en þetta var fyrsti leikur liðsins í undankeppni HM2007. Dóra María Lárusdóttir skoraði tvívegis í dag og Margét Lára Viðarsdóttir eitt. Næsti leikur Íslands verður á sunnudaginn gegn Svíum ytra en þær eru taldar vera með sterkasta liðið í riðlinum. Sport 13.10.2005 19:43
Breiðablik og KS skildu jöfn Einn leikur var í gær í 1. deild karla í knattspyrnu. Breiðablik og KS gerðu 1-1 jafntefli. Hans Fróði Hansson skoraði mark Breiðabliks í fyrri hálfleik en Agnar Þór Sveinsson, fyrirliði KS, jafnaði metin í byrjun síðari hálfleiks. Breiðablik er með 39 stig í fyrsta sæti en KS er í tíunda og neðsta sæti með 12 stig. Sport 13.10.2005 19:43
Chelsea hafði sigur gegn Arsenal Chelsea vann Arsenal 1-0 í stórleik annarrar umferðar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag og skoraði Didier Drogba sigurmarkið á 73. mínútu. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Chelsea í hlutverki miðjumanns en var skipt út af á 59. mínútu fyrir nýliðann Michael Essien sem þótti sýna mjög góðan leik. Sport 13.10.2005 19:43
Lyon efst í Frakklandi Olympique Lyon hefur forystu í frönsku 1. deildinni eftir 1-0 sigur á Nancy í gærkvöldi. Claudio Cacapa skoraði þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Lyon er með 10 stig eftir fjórar umferðir en Lens, Bordeaux og Paris St. Germain eru með 9 stig. Parísarmenn hafa unnið alla þrjá leiki sína og mæta Troyes í kvöld og geta þá endurheimt fyrsta sætið. Sport 13.10.2005 19:43
Everton lagði Bolton Marcus Bent tryggði Everton 0-1 útisigur á Bolton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Sigurmarkið skoraði hann á 52. mínútu og dugði Everton til að næla í sín fyrstu stig í deildinni á tímabilinu en liðið er með 3 stig eftir tvo leiki. Kl. 15:00 hefst stórleikur Chelsea og Arsenal á Stamford Bridge í London. Sport 13.10.2005 19:43
Barcelona vann Konungsbikarinn Real Betis sigraði Barcelona með tveimur mörkum gegn einu í seinni leik liðanna um meistarabikarinn á Spáni. Barcelona vann fyrri leikinn 3-0 og því 4-2 samtals. Samuel Eto´o skoraði fyrsta markið á 15. mínútu en Dani skoraði síðan tvívegis á fimm mínútna kafla um miðjan hálfleikinn. Sport 13.10.2005 19:43
Byrjunarliðið gegn Hvít-Rússum Nú klukkan 14 hófst á Laugardalsvelli leikur Íslands og Hvíta Rússlands í undankeppni HM 2007 í knattspyrnu kvenna og hefur Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari, tilkynnt byrjunarlið Íslands en Ásthildur Helgadóttir er snúin til baka eftir erfið meiðsli og er hún fyrirliði liðsins í dag. Sport 13.10.2005 19:43
Carvalho skilinn eftir í stúkunni Portúgalski varnarmaðurinn Ricardo Carvalho var skilinn útundan og ekki hafður í 16 manna leikmannahópi Chelsea gegn Arsenal í dag. Jose Mourinho knattspyrnustjóri er ekki þekktur fyrir að taka hlutina neinum vettlingatökum og notaði tækifærið í dag og útskyrði fjarveru varnarmannsins í ræðu sinni fyrir leikinn í dag. Sport 13.10.2005 19:43
Eiður byrjar inni á gegn Arsenal Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Chelsea sem mætir Arsenal í dag kl. 15 og leikur hann á miðjunni ásamt Frank Lampard og Claude Makelele. Nýjasti leikmaður félagsins og sá dýrasti, Mickael Essien er á varamannabekknum en hann var í vikunni keyptur frá Lyon í Frakklandi fyrir 26 milljónir punda. Sport 13.10.2005 19:43
Edu frá í 6 mánuði Brasilíski miðjumaðurinn Edu sem gekk í raði spænska knattspyrnuliðsins Valencia frá Arsenal á dögunum meiddist alvarlega á æfingu í dag og missir fyrir vikið af nær öllu tímabilinu á Spáni. Edu sleit krossband í vinstra hné í dag og þarf nú að gangast undir uppskurð að sögn læknis félagsins. Sport 13.10.2005 19:43
Þrjú lið áfram með fullt hús Man. Utd, Tottenham og Charlton hafa unnið tvo fyrstu leiki sína í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool vann fyrsta sigurinn en Newcastle á enn eftir að skora. Tottenham vann annan leikinn í röð 2-0 og er á toppnum á markatölu og ekki gladdi það stuðningsmenn Spurs minna að sjá Edgar Davids spila sinn fyrsta leik með liðinu. Sport 13.10.2005 19:43
Man Utd lagði Aston Villa Man Utd vann 1-0 sigur á Aston Villa á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Ruud van Nistelrooy skoraði sigurmarkið á 66. mínútu eftir skalla frá Olof Mellberg varnarmanni Villa sem ætlaði að hreinsa boltann frá eftir sendingu inn í teig frá Christiano Ronaldo. Man Utd hefur nú unnið fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu. Sport 13.10.2005 19:43
Búum okkur undir erfiðan leik Íslenska kvennalandsliðið leikur í dag sinn eina heimaleik í ár gegn Hvíta-Rússlandi. Jörundur Áki þjálfari segir andann í íslenska liðinu vera góðan. Þetta er fyrsti leikur liðsins í riðli fyrir undankeppni HM 2007 en auk Íslands og Hvíta Rússlands eru Portúgal, Svíþjóð og Tékkland í riðlinum. Sport 13.10.2005 19:43
Stjarnan á toppinn í 2. deild Stjarnan laumaði sér á topp 2. deildar karla í fótbolta í dag þegar Garðabæjarliðið sótti 3-5 útisigur til Seyðisfjarðar gegn Hugin. Stjarnan er nú komin í 30 stig með tveggja stiga forskot á Leikni sem reyndar á leik til góða gegn botnliði Leiftri/Dalvík í dag kl. 16. Sport 13.10.2005 19:43
Lundúnaslagur á Brúnni í dag Fyrsti risaslagur ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili fer fram í dag en þá mætast Lundúnaliðin Chelsea og Arsenal. Liðin mættust fyrir tveimur vikum síðan í leiknum um Samfélagsskjöldinn en þá var það Didier Drogba sem stal senunni og skoraði bæði mörk Chelsea sem hrósaði sigri í leiknum. Sport 13.10.2005 19:43
Jói Kalli búinn að skora Jóhannes Karl Guðjónsson hefur skorað fyrir Leicester gegn Crewe í ensku 1. deildinni í fótbolta þar sem staðan er 2-2. Jóhannes skoraði jöfnunarmarkið úr vítaspyrnu á 60. mínútu. Sport 13.10.2005 19:43
Heiðar kom inn á hjá Fulham Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn með Charlton sem sigraði nýliða Wigan 1-0 í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Charlton hefur þar með unnið báða fyrstu leiki sína í deildinni á tímabilinu. Heiðar Helguson kom inn á sem varamaður í liði Fulham sem tapaði 2-1 fyrir Blackburn. Sport 13.10.2005 19:43