Körfubolti
167 168 169 170 171 172 173 174 175 … 219 ›
Gilbert Arenas skoraði 60 stig gegn Lakers Gilbert Arenas fór hamförum með liði Washington Wizards í nótt þegar liðið sigraði LA Lakers 147-141 í framlengdum leik í Staples Center í Los Angeles. Arenas skoraði 60 stig fyrir Washington og var lykilmaðurinn á bak við góðan sigur liðsins í frábærum leik sem sýndur var beint á NBA TV á Fjölvarpinu. Körfubolti 18.12.2006 13:21
Phoenix jafnaði félagsmet Phoenix Suns vann í nótt 14. leikinn í röð í NBA deildinni í körfubolta þegar liðið skellti Sacramento 105-98 á útivelli. Á sama tíma tapaði Philadelphia 11. leiknum í röð í tapi gegn San Antonio 103-98, en eins og áður kom fram hér á vísi logaði leikur New York og Denver í slagsmálum áður en gestirnir sigruðu 123-100. Körfubolti 17.12.2006 14:54
Madison Square Garden logaði í slagsmálum Leikur New York Knicks og Denver Nuggets í NBA deildinni í nótt breyttist úr körfuboltaleik í hnefaleikakeppni á lokamínútunum. Tíu leikmönnum var vísað úr húsi og á stigahæsti leikmaður deildarinnar Carmelo Anthony líklega yfir höfði sér langt keppnisbann fyrir lúalegt hnefahögg. Körfubolti 17.12.2006 04:09
Miami - Memphis í beinni í kvöld Meistarar Miami Heat taka á móti Memphis Grizzlies í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni í kvöld klukkan hálf eitt. Bæði lið hafa átt mjög erfitt uppdráttar það sem af er vetri, en Dwyane Wade hjá Miami og Pau Gasol hjá Memphis snúa aftur eftir meiðsli í kvöld og því má eiga von á skemmtilegum leik. Körfubolti 16.12.2006 20:19
13 sigrar í röð hjá Phoenix Phoenix Suns hélt áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni í NBA deildinni í nótt þegar liðið lagði Golden State á heimavelli 105-101 og vann þar sinn 13. leik í röð. Amare Stoudemire skroaði 25 stig fyrir Phoenix og Boris Diaw náði fyrstu þrennu sinni í vetur með 21 stigi, 14 fráköstum og 10 stoðsendingum. Monta Ellis skoraði 24 stig fyrir Golden State. Körfubolti 16.12.2006 13:58
Kínverjar Asíumeistarar í körfubolta Kínverjar tryggðu sér í dag Asíumeistaratitilinn í körfubolta þegar lið þeirra lagði Katar 59-44 í úrslitaleik Asíuleikanna. Wang Zhizhi skoraði 28 stig fyrir kínverska liðið og varpaði skugga á ungstirnið Yi Jianlian sem skoraði 8 stig og hirti 15 fráköst, en sá gefur væntanlega kost á sér í nýliðaval NBA næsta sumar. Körfubolti 15.12.2006 19:14
Denver að landa Iverson? Þær fréttir berast nú frá Bandaríkjunum að Denver sé í þann mund að ná í gegn með leikmannaskipti sem myndu færa þeim leikstjórnandann Allen Iverson frá Philadelphia. Fimm lið eru sögð koma að skiptunum og því er haldið fram að málið verði jafnvel klárað í kvöld. Iverson er sem stendur búinn að fá flest atkvæði allra leikmanna í Austudeildinni í Stjörnuleikinn í febrúar nk. Körfubolti 15.12.2006 17:17
Cleveland - Seattle í beinni á Sýn í kvöld Leikur Cleveland Cavaliers og Seattle Supersonics verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan hálf eitt eftir miðnætti í kvöld. Cleveland hefur unnið fjóra heimaleiki í röð og tíu af tólf alls, sem er besti árangur í Austurdeildinni. Mikil meiðsli eru í herbúðum Seattle sem hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum á keppnisferðalagi á austurströndinni. Körfubolti 15.12.2006 16:45
Davis tryggði Golden State sigur á Houston Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Golden State lagði Houston 109-107 þar sem þriggja stiga karfa Baron Davis þegar 1,2 sekúndur voru eftir tryggði Golden State sigurinn. Davis skoraði 34 stig í leiknum en Yao Ming átti líka frábæran leik hjá Houston með 38 stigum og 18 fráköstum. Körfubolti 15.12.2006 13:57
New Orleans - San Antonio í beinni í kvöld Það verður skemmtilegur leikur í beinni útsendingu á NBA TV á Fjölvarpinu þegar New Orleans tekur á móti San Antonio Spurs klukkan 2:30 í nótt. Þá er rétt að minna um leið á leik Cleveland Cavaliers og Seattle Supersonics sem sýndur verður beint á Sýn annað kvöld klukkan 1:30 eftir miðnætti. Körfubolti 14.12.2006 20:28
Tólf sigrar í röð hjá Phoenix Phoenix Suns vann í nótt 12. sigurinn í röð í NBA deildinni þegar liðið vann sigur á meisturum Miami Heat á útivelli 99-89. Þetta er næst lengsta sigurhrina Phoenix í sögu félagsins og lauk það fimm leikja ferðalagi sínu um austurströndina með glæsibrag. Shaquille O´Neal og Dwyane Wade léku ekki með Miami í nótt. Körfubolti 14.12.2006 06:04
LA Clippers - Utah í beinni í nótt Þrettán leikir eru á dagskrá í NBA deildinni í kvöld og verður leikur LA Clippers og Utah Jazz sýndur beint á NBA TV á Fjölvarpinu klukkan 3:30 í nótt. Þá bíður meistara Miami það verðuga verkefni að stöðva 11 leikja sigurgöngu Phoenix Suns og verða meistararnir án Dwyane Wade sem missir af leiknum eftir harkalega heimsókn til tannlæknis. Körfubolti 13.12.2006 22:37
Paul Arizin látinn Bandaríska körfuboltagoðsögnin Paul Arizin sem fyrir nokkrum árum var útnefndur einn af 50 bestu leikmönnum í sögu NBA deildarinnar, lést á heimili sínu í Philadelphia gærkvöldi, 78 ára að aldri. Arizin var kosinn besti leikmaður deildarinnar árið 1952 og var einn fyrsti maðurinn til að notast við stökkskotið á sínum tíma, en það er nú undirstöðuatriði allra körfuboltaiðkenda. Körfubolti 13.12.2006 22:17
Lakers lagði Houston LA Lakers vann góðan útisigur á Houston Rockets í NBA deildinni í nótt 102-94, en bæði lið voru án lykilmanna. Houston var án Tracy McGrady sem verður frá um óákveðinn tíma vegna bakmeiðsla, en Lamar Odom meiddist á hné hjá Lakers og verður líklega frá í um mánuð. Kobe Bryant skoraði 23 stig fyrir Lakers en Yao Ming var með 26 fyrir Houston. Körfubolti 13.12.2006 13:57
Iverson sagði nei við Charlotte Kapphlaupið um Allen Iverson er nú komið á fullt í NBA deildinni og heimildir frá Bandaríkjunum herma að nú sé eitt félag formlega út úr myndinni í þeim efnum. Philadelphia er sagt hafa samþykkt tilboð frá Charlotte Bobcats í leikmanninn, en þangað vildi hann ekki fara og því varð ekkert af þeim viðskiptum. Körfubolti 12.12.2006 20:51
Paul Pierce brotlenti á fæti Wayne Rooney Framherjinn Paul Pierce hjá Boston Celtics var nálægt því að komast í heimsfréttirnar í gær þegar hann kastaði sér á eftir bolta inn í áhorfendastæðin á leik New York og Boston í NBA deildinni, en þá lenti hann á ristinni á knattspyrnumanninum Wayne Rooney sem sat ásamt unnustu sinni og horfði á leikinn. Körfubolti 12.12.2006 21:58
Sloan kominn í úrvalshóp þjálfara Jerry Sloan, þjálfari Utah Jazz í NBA deildinni, komst í gær í sannkallaðan úrvalshóp þjálfara þegar lið hans burstaði Dallas á heimavelli sínum í Salt Lake City. Þetta var þúsundasti sigurleikur Sloan á ferlinum en aðeins fjórir aðrir þjálfarar hafa náð þeim áfanga. Körfubolti 12.12.2006 21:00
Gamli boltinn notaður á ný í janúar David Stern, yfirmaður NBA deildarinnar í körfubolta, hefur nú viðurkennt ósigur sinn og staðfesti í gær að gamli leðurboltinn verði tekinn fram að ný þann 1. janúar næstkomandi eftir að allar helstu stjörnur deildarinnar lýstu yfir óánægju sinni með nýja gerviefnaboltann. Körfubolti 12.12.2006 15:38
Ellefu sigrar í röð hjá Phoenix Phoenix vann í nótt ellefta leik sinn í röð í NBA deildinni í körfubolta þegar liðið skellti Orlando á útivelli 103-89. Amare Stoudemire skoraði 30 stig fyrir Phoenix í leiknum. Þá vann Utah auðveldan sigur á Dallas 101-79 og færði Jerry Sloan þjálfara þúsundasta sigurleikinn á ferlinum. Carlos Boozer skoraði 31 stig og hirti 11 fráköst fyrir Utah, en Dirk Nowitzki skoraði 26 stig og hirti 10 fráköst fyrir Dallas. Körfubolti 12.12.2006 14:32
Orlando - Phoenix í beinni á miðnætti Það má reikna með fyrsta flokks skemmtun á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld þar sem leikur kvöldsins verður viðureign Orlando Magic og Phoenix Suns. Leikurinn hefst á miðnætti og fróðlegt verður að sjá hvernig heitasta liðinu í NBA í dag, Phoenix, vegnar gegn ungu og skemmtilegu liði Orlando. Körfubolti 11.12.2006 22:20
LA Lakers lagði San Antonio Los Angeles Lakers vann í nótt góðan sigur á San Antonio Spurs 106-99 á heimavelli sínum Staples Center í Los Angeles, en lið Spurs hafði unnið fjóra leiki í röð. Kobe Bryant skoraði 34 stig fyrir Lakers og Lamar Odom skoraði 18 stig, hirti 11 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Manu Ginobili skoraði 23 stig af bekknum fyrir Spurs. Körfubolti 11.12.2006 05:04
Nelson náði 1200. sigrinum Don Nelson, þjálfari Golden State Warriors í NBA deildinni, varð í nótt annar þjálfarinn í sögu NBA deildarinnar til að vinna 1200 leiki á ferlinum þegar lið hans lagði New Orleans 101-80. Aðeins Lenny Wilkens hefur unnið fleiri leiki á þjálfunarferlinum en hann á að baki 1332 sigra og er fyrir nokkru hættur að þjálfa. Körfubolti 10.12.2006 14:27
Yao Ming kláraði Washington Kínverski risinn Yao Ming fór á kostum og skoraði 23 af 38 stigum sínum í fjórða leikhluta þegar Houston lagði Washington 114-109 á útivelli í NBA deildinni í nótt. Hann hirti auk þess 11 fráköst og varði 6 skot. Gilbert Arenas skoraði 41 stig fyrir Washington í þessum fjöruga leik sem sýndur var beint á NBA TV á Fjölvarpinu. Körfubolti 10.12.2006 14:04
Níu sigrar í röð hjá Phoenix Phoenix Suns vann í nótt sinn níunda leik í röð í NBA deildinni þegar liðið skellti Boston á útivelli 116-111. Shawn Marion skoraði 29 stig og hirti 12 fráköst fyrir Phoenix en Paul Pierce skoraði 36 stig fyrir Boston. Körfubolti 9.12.2006 15:54
Sacramento - Miami á Sýn í kvöld Leikur Sacramento Kings og Miami Heat frá því liðna nótt verður sýndur á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld klukkan 0:25 eftir miðnætti. Þá verður leikur Milwaukee og Memphis sýndur í beinni útsendingu á NBA TV á Fjölvarpinu klukkan 1:30 í nótt svo það er nóg um að vera á skjánum fyrir körfuboltaáhugamenn í kvöld. Körfubolti 8.12.2006 21:18
Iverson vill fara frá Philadelphia Skorunarmaskínan Allen Iverson hjá Philadelphia 76ers í NBA virðist nú loksins vera búinn að fá nóg af því að tapa og nú hafa þær fréttir lekið út í fjölmiðla að Iverson hafi formlega farið fram á það við forseta félagsins að fá að fara frá félaginu. Körfubolti 8.12.2006 18:03
Skoraði 27 stig með vinstri Körfuboltagoðsögnin Larry Bird sem lék með Boston Celtics á árum áður varð fimmtugur í gær og í tilefni af því var heill dagur helgaður ferli þessa frábæra íþróttamanns á NBA TV sjónvarpsstöðinni. Þar sögðu margir af félögum hans og keppinautum skemmtilegar sögur af honum. Körfubolti 8.12.2006 15:22
Þetta er besti leikur sem ég hef séð Leikur New Jersey Nets og Phoenix Suns í NBA deildinni í nótt er þegar kominn í sögubækurnar, en gestirnir frá Phoenix höfðu sigur 161-157 eftir tvíframlengdan leik. Þetta er fjórða hæsta stigaskor í einum leik í sögu NBA deildarinnar og var hann í járnum allan tímann. Körfubolti 8.12.2006 05:27
Allt vitlaust í Belgrad (myndband) Fjórir stuðningsmenn og tveir lögreglumenn slösuðust þegar óeirðir brutust út fyrir leik Rauðu Stjörnunnar og PAOK Thessaloniki í körfubolta í fyrrakvöld. Átökin brutust út þegar stuðningsmenn erkifjenda heimaliðsins mættu í höllina og ætluðu að styðja við bakið á PAOK. Kveikt var á blysum í stúkunni og öllu lauslegu kastað í allar áttir eins og sjá má að meðfylgjandi myndskeiði. Körfubolti 7.12.2006 17:24
Loks vann Washington á útivelli Washington Wizards vann sinn fyrsta sigur á útivelli á leiktíðinni í NBA í nótt þegar liðið sótt New York Knicks heim og vann 113-102. Gilbert Arenas skoraði 38 stig og Antawn Jamison bætti við 33 stigum fyrir Washington, en Eddy Curry skoraði 22 stig og hirti 11 fráköst fyrir New York. Nokkur óvænt úrslit litu dagsins ljós í leikjum næturinnar. Körfubolti 7.12.2006 14:40